Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 32

Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 32
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ! Í OUTLET VERSLUN TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI! 25-50% afsláttur af völdum vörum og 10% afsláttur af öllu í verslun, nema vörum í umboðssölu. Korda samfónía heldur tónleika í Fíladelfíukirkj- unni í dag, 30. maí, kl. 19.30, undir stjórn Sig- rúnar Sævars- dóttur. Korda er í tilkynningu lýst sem einni óhefð- bundnustu hljóm- sveit landsins. Hún var stofnuð fyrir rúmu ári og var í gær sýndur heimildarþáttur um hljómsveitina á RÚV. Liðsmenn Kordu koma úr ýmsum áttum og þeirra á meðal eru lærðir og reyndir tónlistarmenn, nemendur úr Lista- háskóla Íslands og fólk sem orðið hefur fyrir áföllum og er mislangt komið í endurhæfingarferli. Korda- verkefnið er á vegum samfélagsmiðaðs fyrirtækis, MetamorPhonics, sem Sigrún stýrir í Lundúnum. Á tón- leikunum verða fluttar nýjar tónsmíðar og lög sem sveitin samdi fyrir fyrstu tónleika sína í fyrra. Korda samfónía í Fíladelfíu MÁNUDAGUR 30. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Karlalið Vals í handknattleik tryggði sér á laugardag Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið hafði naumlega bet- ur gegn ÍBV í fjórða leik liðanna, 31:30, í Vestmanna- eyjum. Valur vann þar með einvígið 3:1 og tókst að verja bæði Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitla sína á tímabilinu. »27 Valur varði báða bikarana ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vélmenni geta létt undir með of fáu starfsfólki á hjúkrunarstofnunum og sérstök tæki til að tína upp rusl eru heppileg á báta, sem sigla með far- þega í útsýnisferðir við strendur landa, í viðleitni til þess að hreinsa hafið. Þessar hugmyndir sigruðu í keppni í evrópskum frumkvöðlabúð- um ungmenna, þar sem Ingveldur Þóra Samúels- dóttir og Jökull Jónsson, nem- endur í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti, voru hvort í sínu sigur- liðinu. FB hefur tekið þátt í frum- kvöðlabúðum, sem Erasmus+ styrkir, undan- farin ár og í lok apríl fór þátttakan í gang á ný eftir að starfsemin hafði legið niðri í tvö ár vegna kórónu- veirufaraldursins nema hvað sérstök keppni á netinu fór fram í fyrra. Fjögur framhaldsskólalið úr hópum frá Íslandi, Ítalíu, Portúgal, Finn- landi og Noregi eru valin, einn þátt- takandi frá hverju landi í liði, vegna keppni í hverju landi fyrir sig. Að þessu sinni nefnist verkefnið Eur- opean Voice of Tomorrow. Mismun- andi hópar keppa í hverju landi og sigurliðin á hverjum stað mætast í úrslitakeppni í Turku í Finnlandi í febrúar 2023. Fyrsta keppnin fór fram skammt frá Þrándheimi í Noregi í lok apríl, önnur í Lissabon í Portúgal 9.-13. maí, sú þriðja verður í Como á Ítalíu 2.-7. október og síðan verður FB gestgjafi 21.-25. nóvember. Sjálfbærni Ágústa Unnur Gunnarsdóttir kynningarstjóri er alþjóðafulltrúi FB. Hún heldur utan um verkefnin og fylgir liðunum í keppni ásamt öðrum kennara. Síðast unnu nem- endur verkefni í sölumennsku en nú fjalla þau um sjálfbærni. „Í Portúgal tengdist verkefnið ferðaþjónustu,“ segir Ágústa. „Nemendurnir áttu að finna leiðir til þess að halda hafinu hreinu á sama tíma og tekið væri á móti ferðamönnum og siglt með þá meðfram ströndum Portúgals.“ Hugmynd Jökuls og félaga var valin sú besta. Hann segir að hóp- urinn hafi viljað opna augu ferða- manna fyrir mikilvægi þess að halda sjónum hreinum og það gagnaðist öllum. „Aðaláherslan var samt að kynnast nýju fólki og styrkja tengsl milli landanna,“ segir Jökull, sem kom inn í hópinn á síðustu stundu, þar sem annar forfallaðist. Hann er á húsasmíðabraut og hlakkar til þess að útvíkka sjóndeildarhringinn enn frekar. „Eftir að hafa hitt svona margt fólk og kynnst nýrri menn- ingu langar mig til þess að kynnast heiminum betur og næst er það Finnland.“ Verkefnið í Noregi fólst í því að finna sjálfbæra lausn á manneklu í norska heilbrigðiskerfinu. „Við „fundum upp“ vélmenni, sem flokk- ar skjöl, sjúkraskrár og þvíumlíkt, og sparar þannig tíma hjá starfsfólki eins og til dæmis hjúkrunarfræð- ingum,“ segir Ingveldur Þóra. Hún segist hafa kynnst mjög mörgu fólki og eignast vini til lífstíðar. „Að vinna í hópi með fólki sem talar ekki sama tungumál er einstök lífsreynsla.“ Hún er á félagsvísindabraut og gerir ráð fyrir að útskrifast að ári. „Ég hlakka ótrúlega mikið til að fara í úrslitakeppnina og svo dreymir mig um að verða grunnskólakennari.“ Ágústa segir að þátttaka í þessum verkefnum sé mjög skemmtilegt tækifæri til þess að kynnast nem- endum annarra þjóða, menningu þeirra og skólastarfinu. „Krakkarnir standa frammi fyrir raunverulegum verkefnum og eiga að finna lausnir sem henta hverju sinni.“ Vélmenni og hreinsun - Nemendur FB finna lausnir í aðkallandi verkefnum Ljósmyndir/Ágústa Unnur Gunnarsdóttir Í Portúgal Jökull Jónsson annar frá hægri í góðum hópi. Í Noregi Ingveldur Þóra Samúelsdóttir kynntist nýrri veröld í verkefninu. Ágústa Unnur Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.