Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 07.06.2022, Side 4

Morgunblaðið - 07.06.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Golfferðir Haustferðirnarkomnarísölu Heimsferða LaManga•LaTorre•Anoreta Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Engin rök eða rannsóknir eru fyrir því að afnám takmarkana á fjölda leyfa til leigubílaaksturs á tiltekn- um svæðum, skili sér í betri þjón- ustu. Þetta segir í umsögn Har- aldar Axels Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Hreyfils, við svo- nefnt leigubílafrumvarp, sem Sig- urður Ingi Jóhannsson innviða- ráðherra hefur lagt fram og er nú til umfjöllunar á Alþingi. Gert hef- ur verið ráð fyrir að frumvarpið verði samþykkt á yfirstandandi þingi og taki gildi 1. september nk. Inntak frumvarpsins er stórauk- ið frelsi í öllu sem að leiguakstri snýr. Gert er til dæmis ráð fyrir að öll ákvæði sem snúa að lágmarks- nýtingu atvinnuleyfis verði numin úr gildi, svo sem að akstur sé aðal- starf leyfishafa. Þá verða þeir ekki lengur skyldugir til að hafa af- greiðslu á leigubílastöð. Sömuleiðis mætti gefa undanþágu frá skyldu um notkun gjaldmælis í bíl þegar ekið er fyrir fyrir fram umsamið fast gjald. Öðruvísi atvinnuleyfi Verði frumvarpið svo að lögum er ætlunin að gefa út nýjar teg- undir af atvinnuleyfum til leigubíl- stjóra. Annars vegar yrðu í boði leyfi til starfa sem leigubílstjóri, þrátt fyrir að leyfishafi reki ekki sjálfur bílinn, og hins vegar leyfi til þess sem rekur og ekur eigin bíl. Fyrir liggja upplýsingar um að í þeim löndum, þar sem akstur og rekstur leigubifreiða hefur verið gefinn frjáls, að verð fyrir þjón- ustuna hefur hækkað, segir í um- sögn Hreyfils. Er þar bent á reynslu frá Finnlandi, þar sem akstur og rekstur leigubíla var gef- inn frjáls fyrir fjórum árum síðan. Þjónusta innan tímamarka „Hreyfill leggur mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og örugga þjónustu, í sam- ræmi við markmið laga um leigu- bifreiðar. Í því felst að viðskipta- vinir upplifi samfellu í þjónustu, pöntunum sé svarað hratt og örugglega og þjónustan sé veitt innan viðunandi viðbragðstíma,“ segir í umsögn leigubílastöðvarinn- ar. Þar er sömuleiðis undirstrikað að með stöðvaskyldu leigubílstjóra sé öryggi viðskiptavina tryggt, ferðir séu skráðar, sem komi sér vel þegar upplýsingar þarf um til- teknar ferðir. Hreyfilsmenn líti einnig á starfsemi sína sem hluta af félagslegri ferðaþjónustu fyrir fólk sem ekki geti ekið bíl eða not- að strætisvagna. Hér má sem dæmi nefna blinda, öryrkja og aldraða. „Það, að afnema stöðvarskyldu og draga úr kröfum til bílstjór- anna, mun að mati Blindrafélagsins skerða þjónustuna og öryggi far- þeganna, sérílagi farþega sem til- heyra viðkvæmum hópum,“ segir í umsögn þess félags um frumvarpið – sem send hefur verið Alþingi. Frelsið tryggir ekki betri þjónustu - Leigubílafrumvarp innviðaráðherra gagnrýnt - Stöðvaskylda og hámarksfjöldi bíla á tilteknum svæð- um afnumin - Félagsleg ferðaþjónusta, segir Hreyfill - Skerðir öryggi farþega, segir Blindrafélagið Morgunblaðið/Unnur Karen Taxi Leigubílar fara alla leiðina. Skjaldborg, hátíð íslenskra heimild- armynda var haldin um helgina á Patreksfirði. Tíu íslenskar heimild- armyndir voru frumsýndar, auk þess sem sex verk í vinnslu voru kynnt. Þetta segir í tilkynningu frá framkvæmdateymi hátíðarinnar en þetta er í fimmtánda skipti sem Skjaldborgin er haldin. Hátíðinni lauk formlega á sunnu- dagskvöld með verðlaunaafhendingu og lokaballi, þar sem hljómsveitin Celebs lék og skemmti. Haldið var í hefðina og fylktu gestir hátíðarinnar liði í skrúðgöngu frá Skjaldborgar- bíó í Félagsheimili Patreksfjarðar að lokinni síðustu mynd og atkvæða- greiðslu. Áhorfendaverðlaunin Einarinn hlaut heimildamyndin Velkominn Árni eftir Viktoríu Hermannsdóttur og Allan Sigurðsson. Í myndinni heyrum við sögu Árna Jóns Árna- sonar, sem á áttræðisaldri kemst óvænt að því hver faðir hans var. Heimildarmyndin Hækkum rána eftir Guðjón Ragnarsson hlaut dóm- nefndarverðlaunin: Ljóskastarann. Myndin fjallar um körfuboltaflokk 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi og óvenjulegan þjálfara þeirra sem hækkaði sífellt rána. „Þær voru þjálfaðar sem leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar,“ segir í tilkynningunni. Hvatningarverðlaun Skjaldborgar hlaut myndin Thinking about the Weather eftir Garðar Þór Þorkels- son. Þótti myndin sameina marga mikilvæga þætti heimildarmynda- gerðar og fjallar hún um loftslags- vána sem heimurinn stendur frammi fyrir. Dómnefnd skipuðu Kristján Loðmfjörð, Hrönn Sveinsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir. Tækja- leigan Kukl og eftirvinnslufyrir- tækið Trickshot veita vinnings- höfum Einarsins og Ljóskastarans veglega vinninga í formi inneignar og Pfaff gefur inneign til vinnings- hafa hvatningarverðlaunanna. Velkominn Árni og Hækkum rána unnu Skjaldborgina - Hátíð íslenskra heimildarmynda haldin um helgina Ljósmynd/Aðsend Bíó Tíu íslenskar heimildarmyndir voru frumsýndar um helgina. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Ekkert verður af fyrirhuguðum þinglokum á föstudag ef marka má forseta Alþingis og helstu þing- flokksformenn, sem nú reyna að ná til botns í hinum ýmsu málum áður en samið er um þinglok. „Það er alveg ljóst að það bætast einhverjir dagar við starfsáætl- unina,“ segir Birgir Ármannsson forseti Alþingis en fyrirhuguð þing- lok eru á föstudaginn næsta. „Það er fullt af málum sem er auðvitað verið að ræða og reifa.“ Fjöldi mála séu enn til umfjöll- unar. „Við erum að vinna okkur í gegnum þann bunka,“ segir Birgir en þingflokksformenn funda nú strangt sín á milli, og gerðu það alla hvítasunnuhelgina. Vonast er eftir að þinginu ljúki í næstu viku, fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní. Helst er deilt um útlendingamál að sögn allra þingflokksformanna sem Morgunblaðið náði tali af. Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks tekur undir orð flokksbróður síns. „Það er alveg ljóst að þinglok verða ekki í þessari viku,“ segir Óli Björn. Aðspurður jánkar hann því að út- lendingamálin séu helst til ágrein- ings. „Já, það er það sem er helst deilt um en auðvitað eru fleiri at- riði.“ Um leigubílafrumvarp Sigurð- ar Inga Jóhannssonar innviðaráð- herra segir Óli Björn að séu skiptar skoðanir en það sé þó ekki helsti hausverkurinn. Þá býst hann sterk- lega við því að kvikmyndafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, fari í gegn. „Að einhverju leyti fer þetta eftir þeim tímaramma sem við setjum okkur, þarna eru einhverjir tugir mála undir. Það er alveg ljóst að ekki verða öll mál afgreidd eins og ráðherrar láta sig dreyma um,“ segir hann og heldur áfram: „Ég held það sé bara heill lands og þjóðar undir, að þetta klárist.“ Hanna Katrín Friðriksson, þing- flokksformaður Viðreisnar, segir mikilvægt að finna lendingu um út- lendingafrumvarp Jóns Gunnars- sonar dómsmálaráðherra. Okkur „ekki til sóma“ „Það mál er okkur Íslendingum ekki til sóma eins og það lítur út núna,“ segir hún, spurð um afstöðu Viðreisnar til þess. Hún segir stofnun ráðherra- nefndar um útlendingamál hafi komið eins og „þruma úr heiðskíru lofti“, inn í vinnu þingflokkanna að frumvarpinu. Það skýrist þó á næstu dögum hvernig það fer. Ráðuneytið sé komið með breytingatillögu og bolt- inn sé hjá því. „Við höfum lagt fram tillögur til breytinga og vonandi ná þær fram að ganga.“ Helga Vala Helgadóttir, þing- flokksformaður Samfylkingar, tekur í sama streng og segir mest deilt um útlendingafrumvarp dómsmála- ráðherra. Helst vilji Samfylking að það frumvarp verði sett á ís. „Það eru önnur mál sem að við viljum mjög gjarnan að komist í gegn,“ segir Helga Vala og nefnir sem dæmi rammaáætlun og það að komið verði í veg fyrir brottvísun þeirra hælisleitenda sem dvalist hafa hérlendis í tvö ár vegna farald- ursins. Bergþór Ólason, þingflokksfor- maður Miðflokksins, segir málin skýrast væntanlega á komandi fundum og er sammála um að út- lendingamálin séu helsta stíflan. Um leigubílafrumvarp Sigurðar Inga segir hann Miðflokkinn með efasemdir en það klárist vonandi sem fyrst. „Við gerum áfram at- hugasemdir við framgang hvers máls.“ Þinglok ekki enn í augsýn - Hart tekist á um útlendingamál - Vonast eftir þinglokum fyrir 17. júní - Leigubílamál „minni haus- verkur“ - Kvikmyndafrumvarp líklega í gegn - Ráðherranefnd eins og „þruma úr heiðskíru lofti“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Salur Útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra er helsta stíflan að sögn fjögurra þingflokks- formanna. Þingi lýkur vonandi fyrir þjóðhátíðardaginn. Fundað var um helgina en þinglok verða varla á föstudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.