Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 11
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mannúðarhlutverk Rauða kross- ins felur í sér að við tökum af- stöðu með fólki sem er í erfiðum aðstæðum. Slíkt er alltaf rauði þráðurinn í okkar starfi, í sam- félagi og veröld sem breytist hratt,“ segir Silja Bára Ómars- dóttir, sem á dögunum var kjörin nýr formaður Rauða kross Ís- lands. Sem endranær eru mörg verkefni á vettvangi hreyfingar- innar, sem bæði hér innanlands og á heimsvísu hefur víðtækt hlutverk í hjálparstarfi – sem þarf í stríði, náttúruhamförum, hungursneyð, vegna flóttafólks og svo mætti áfram telja. Skemmst er svo að minnast margvíslegrar neyðarhjálpar sem hreyfingin sinnti hér á innlendum vettvangi meðan á kórónaveiru- faraldrinum stóð. Stoppaði þar í ýmis göt og sá um verkefni sem opinberir aðilar gátu ekki sinnt. Einstakt hlutverk á átakasvæðum „Stoðhlutverk Rauða kross- ins við stjórnvöld er mikilvægt. Hreyfingin þarf því alltaf að að hafa slagkraft og afl til að geta brugðist við ófyrirséðum atburð- um og aukið umsvif sín hratt og vel,“ segir Silja Bára sem hefur lengi verið félagi í Rauða kross- inum. Hún segir stefnu samtak- anna vera í samræmi við sína lífs- sýn; það er að við séum öll jöfn og að uppruni og stétt hafi ekk- ert með manngildi að gera. Hún gerðist sjálfboðaliði í kjölfar þess að flóttafólki frá Sýr- landi fjölgaði og tók sæti í lands- stjórn félagsins árið 2018. Þegar Sveinn Kristinsson lét af for- mennsku í Rauða krossinum eftir langt starf, var nefnt við Silju Báru að gefa kost á sér, sem hún og gerði og var kjörin. „Rauði krossinn hefur ein- stakt hlutverk á átakasvæðum. Hann hefur líka, stöðu sinnar vegna, aðgengi að þolendum átaka sem önnur hjálparsamtök hafa oft ekki. Sérstaðan felst í því að þetta er hlutlaus og óháður að- ili og getur rætt við alla aðila átaka; frætt þá um Genfarsamn- ingana sem eru lög sem gilda í stríði og mætt þörfum þolenda stríðsátaka. Það gerum við til dæmis með því að tryggja að inn- viðir virki. Þetta er mjög flókið og erfitt hlutverk, sér í lagi í meiri háttar vopnuðum átökum. Langt starf felur í sér mikinn lærdóm og að því búum við.“ Strax, á sínum allra fyrstu dögum sem formaður Rauða krossins, setti Silja Bára fram gagnrýni á stjórnvöld. Tilefnið var sú ákvörðun að flóttafólki, sem hingað hefur til lands hefur komið á síðustu árum – og varð hér innlyksa hér á landi í kórónu- faraldrinum – skuli nú þegar heimurinn hefur opnast að nýju vísað úr landi. Í þessum hópi eru 200-300 manns; fólk sem í flestum tilvikum yrði sent til Grikklands. „Rauði krossinn hefur gagn- rýnt bæði samráðsleysi við mótun útlendingalöggjafar og innihald þeirra frumvarpa sem hafa verið lögð fram. Gagnrýnin sem ég setti fram var því ekki mín, né var hún gripin úr lausu lofti. Af- leiðingar þess að núverandi frum- varp til útlendingalaga yrði sam- þykkt, væri mun ómannúðlegri stefna og væri í takt við harðari stefnur og lög sem hafa verið tek- in upp í nágrannalöndum okkar. Ísland hefur ekki endursent um- sækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands í um áratug, vegna þess hve slæmt ástandið er þar,“ segir Silja Bára og heldur áfram: „Við tölum öll um fordæma- lausar aðstæður vegna Covid, hér hefur fólk verið fast á landinu í allt að tvö ár. Það hefur margt fest hér rætur, börn hafa gengið í skóla og eignast vini. Ég sagði aldrei að við Íslendingar værum með hörðustu stefnuna í útlend- ingamálum, heldur að stjórnvöld væru að elta stefnumótun sem er í harðari átt en verið hefur hing- að til.“ Gæti orðið fordæmalaus fjölgun flóttafólks Loftslagsbreytingar eru mik- il áskorun fyrir mannkynið allt. Öfgar í veðurfari, segir Silja Bára, skapa ekki aðeins hættu meðan á storminum eða hita- bylgjunni stendur, heldur hefur það afleiðingar, svo sem að ef uppskerubrestur er tíður neyðist fólk til að flýja heimkynni sín. Haldi svo fram sem horfir gæti af þeim sökum komið til meiri hátt- ar fólksflutninga innan nokkurra áratuga. „Hér gæti orðið fordæmalaus fjölgun flóttafólks á heimsvísu, með ófyrirséðum hindrunum og afleiðingum. Möguleikarnir eru að draga sem mest við getum úr hlýnun jarðarinnar með öllum mögulegum ráðum. Að búa til að- stæður og stuðning, þar sem fólk nær að búa við mannsæmandi að- stæður og stuðla að sjálfbærum samfélögum. Þetta er risastórt verkefni og samtakamáttur okkar allra er það eina sem gengur. Þarna hefur alþjóðahreyfing Rauða krossins mikilvægu hlut- verki að gegna,“ segir Silja Bára. Lífsbjargandi aðstoð Sé litið til innanlandsverk- efna Rauða krossins má þar nefna námskeið, í t.d. skyndi- hjálp, sem tugir þúsunda lands- manna hafa sótt, heimsóknir til fólks í einsemd og skaðaminnk- andi aðstoð við fólk í neyslu, eins og haldið er úti á höfuðborgar- svæðinu, á Reykjanesi og í Eyja- firði. Einnig að settar eru upp fjöldahjálparstöðvar með skömm- um fyrirvara þegar þörf krefur. Svo mætti áfram telja. „Við viljum sporna gegn fé- lagslegri einangrun og styrkja velferðarsamfélagið. Við leggjum okkur fram um að finna göt í kerfinu, setja á fót verkefni sem stoppa í þau, sem aðrir taka svo við í fyllingu tímans. Þá þurfum við sem samfélag að vera tilbúin fyrir næstu eldgos, jarðskjálfta og aðrar hamfarir. Við styrkjum viðbragðsgetu okkar heima fyrir með því að þjálfa sendifulltrúa okkar í erfiðum aðstæðum er- lendis. Veita um leið lífsbjargandi aðstoð. Þá verður landsfélagið 100 ára árið 2024: þess verður minnst með ýmsu móti og undir- búningur er þegar hafinn,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir að síð- ustu. Öll jöfn og uppruni og stétt hafa ekkert með manngildi að gera, segir Silja Bára Ómarsdóttir, nýr formaður Rauða kross Íslands Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veröld Hreyfingin þarf að að hafa slagkraft og afl til að geta brugðist við ófyrirséðum atburðum, segir Silja Bára, hér með heiminn í höndum sér. Mannúð og velferð FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 - Silja Bára R. Ómarsdóttir er fædd í Ólafsfirði 1971. Hún er með doktorspróf í alþjóða- stjórnmálafræði og stundaði nám í Bandaríkjunum. Í dag er hún prófessor í alþjóðasam- skiptum við stjórnmálafræði- deild Háskóla Íslands. - Í tímans rás hefur Silja Bára hefur verið virk í félagsstörf- um, meðal annars á vettvangi Femínistafélags Íslands og Kvenréttindafélags Íslands. Þá var hún um skeið formaður Jafnréttisráðs. Hún hefur að auki setið í nefndum á vegum hins opinbera, til dæmis áhættumatsnefnd sem mat stöðu mála í kjölfar þess að Bandaríkjaher hvarf héðan af landi brott árið 2006. Hver er hún? Eimskip efnir til hátíðlegrar athafnar í Sundahöfn í Reykjavík í dag þar sem nýlegu flutningaskipi félagsins verður formlega gefið nafn. Dettifoss, sem smíðaður var í Kína, kom inn í flota félagsins fyrir um tveimur árum og hefur síðan þá siglt milli Íslands, Færeyja og Skandinavíu. Meðal ann- ars vegna kórónaveirufaraldursins og sóttvarna hefur ekki gefist svigrúm til formlegrar nafngjafar en þá athöfn annast sr. Pálmi Matthíasson. At- höfnin í dag hefst kl. 16:30 og stendur í um tvær klukkustundir. Hinn nýi Dettifoss er 180 metra langt skip, 31 metri á breidd og burð- argeta þess eru 2.150 gámaeiningar. Aðalvélin er 17.000 kW. Sömu tölur og staðreyndir gilda hér um systur- skipið Brúarfoss sem siglir skv. sömu áætlun og Dettifoss. „Dettifossinn nýi er besta skip sem ég hef nokkru sinni kynnst,“ sagði Ríkharður Sverrisson skipstjóri í samtali við Morgunblaðið í síðasta mánuði og ennfremur; „Þótt skipin verði æ betri og tæknin meiri þá er farmennskan í sjálfu sér alltaf eins. Íslendingar eiga allt sitt undir sjó- flutningum og verða að halda sínum hlut þar. Siglingar ráða sjálfstæði þjóða.“ sbs@mbl.is - Hátíðleg athöfn í Sundahöfn í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Glæsiskip Dettifoss á dögunum á siglingu inn til Þórshafnar í Færeyjum, sem er viðkomustaður skipsins á áætlun þess um Norður-Atlantshafið. Dettifossi form- lega gefið nafnið SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Tankini toppur 10.990 kr Stærðir 42-56 Sundbolur 8.990 kr Stærðir 46-54 Sundbolur 12.990 kr Stærðir 42-58 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is SU ÖT FY SUMARIÐ Frábært úrval af fatnaði í stærðum 42-60 Skoðað úrvalið eða pantað í netverslun www.curvy.is Afgreiðslutímar í verslun Curvy í Hreyfilshúsinu við Grensásveg Alla virka daga frá kl. 11-18 og Laugardaga frá kl. 11-16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.