Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022
ÞAR SEM VÍSINDI
OG NÁTTÚRA
KOMA SAMAN
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
7. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.52
Sterlingspund 161.44
Kanadadalur 102.27
Dönsk króna 18.538
Norsk króna 13.649
Sænsk króna 13.185
Svissn. franki 133.94
Japanskt jen 0.9879
SDR 173.45
Evra 137.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.9411
Rösklega fjórir af hverjum fimm
Bandaríkjamönnum telja efna-
hagsástand þjóðarinnar slæmt og
meira en þriðjungur þeirra segjast
vera óánægður með eigin fjárhag.
Þetta kemur fram í nýrri könnun
sem Wall Street Journal fram-
kvæmdi í samstarfi við félagsrann-
sóknastofnun Chicagoháskóla.
Hefur óánægja svarenda með eigin
efnahag aldrei verið meiri, frá því
stofnunin hóf fyrst mælingar árið
1972.
Sögðu 27% svarenda að góðar
líkur væru á að þeim muni takast
að bæta lífskjör sín en 46% svar-
enda væntu þess að standa í stað
fjárhagslega. Þá sögðu 38% að
fjárhagsleg staða þeirra hefði
versnað á undanförnum árum.
Í umfjöllun WSJ um könnunina
kemur fram að niðurstöðurnar
endurspegli að hátt verðbólgustig
hefur haft neikvæð áhrif á efnahag
bandarískra heimila. Hins vegar
virðist bandarískur almenningur
upplifa ágætis horfur á vinnumark-
aði. Tveir af hverjum þremur svar-
endum sögðu að þeir væntu þess
að það gæti verið mjög eða frekar
auðvelt fyrir þá að finna sér nýtt
starf sem greiddi jafnhá laun. Er
það hæsta hlutfall sem mælst hef-
ur frá 1977. ai@mbl.is
Almenningur í Banda-
ríkjunum svartsýnn
Dýrtíð Viðskiptavinir skoða úrvalið í fataverslun í Nevada. Þó að framboð
af störfum sé gott þá virðist verðbólgan þrengja að bandarískum heimilum.
STUTT
Lögfræðingar Elons Musks hafa sent stjórn Twit-
ter erindi þar sem hótað er að hætta við 44 millj-
arða dala yfirtöku fyrirtækisins. Að því er Fin-
ancial Times greinir frá halda lögfræðingarnir því
fram að stjórnendur samfélagsmiðilsins hafi ekki
fullnægt kröfu Musks um að framvísa nákvæmum
upplýsingum um fjölda gervi-notendareikninga á
Twitter.
Musk hefur gefið lítið fyrir fullyrðingar Twitter
um að aðeins 5% notendareikninga sé stjórnað af
tölvuforritum og svindlurum sem villa á sér heim-
ildir. Um miðjan maí sagðist hann hafa sett yf-
irtökutilboð sitt á ís á meðan beðið væri eftir ít-
arlegri upplýsingum frá forsvarsmönnum Twitter.
Hefur Morgunblaðið áður greint frá því að Musk
hafi lagt til að lækka tilboð sitt í réttu hlutfalli við
hlutfall gervinotenda á samfélagsmiðlinum.
Hindra Musk í að nýta rétt sinn
Lögfræðistofan Skadden, Arps, Slate, Meagher
& Flom sendi bréfið fyrir hönd Musks en þar
stendur að frá 9. maí síðastliðnum hafi hann ítrekið
beðið Twitter um nánari upplýsingar og að tregða
félagsins við að verða við þeirri beiðni brjóti í bága
við samkomulag sem gert var við Musk til að gera
yfirtökuna að veruleika. „Að teknu tilliti til hegð-
unar [fulltrúa] Twitter fram til þessa, og sér í lagi í
ljósi síðasta skriflega svars félagsins, telur Musk
að félagið sé af ásetningi að reyna að aftra honum
frá því að nýta rétt sinn til upplýsingaöflunar,“
segir í bréfinu. Bæta höfundar bréfsins við að þar
sem hegðun Twitter-manna feli í sér alvarlegt brot
á gildandi samkomulagi áskilji Musk sér rétt til að
hætta við yfirtökuna. ai@mbl.is
Musk hársbreidd frá að
slíta kaupunum á Twitter
AFP
Hnútur Enn virðist langt í að náist botn í yfirtöku
Elons Musks á samfélagsmiðlinum Twitter.
- Sakar stjórn samfélagsmiðilsins um að standa ekki við samkomulag
Vogunarsjóðurinn Elliott Associates
hefur höfðað mál gegn Málma-
kauphöllinni í London, LME, og
krefst 456 milljóna dala í bætur fyr-
ir þá ákvörðun kauphallarinnar að
gera hlé á viðskiptum með nikkel í
síðasta mánuði.
Verð á nikkelmálmi rauk upp um
meira en 50% þann 8. mars síðast-
liðinn. Hækkunin stafaði einkum af
viðskiptum kínverska stálframleið-
andans Tsingshan Holding Group.
Líkt og Morgunblaðið hefur áður
greint frá, hafði fyrirtækið skortselt
málminn og þurfti að loka hluta af
stöðu sinni eftir miklar verðhækk-
anir.
Er nikkel notað við framleiðslu á
ryðfríu stáli auk þess að gegna lyk-
ilhlutverki í framleiðslu rafhlaðna
fyrir rafmagnsbíla. Rússland er
þriðji stærsti nikkelframleiðandi
heims á eftir Indónesíu og Filipps-
eyjum og þykir sennilegt að eftir
innrás Rússlandshers í Úkraínu
dragi úr framboði á rússneskum
nikkelmálmi, með tilheyrandi áhrif-
um á heimsmarkaðsverð.
Þótti LME ástæða til að grípa
inn í þegar verðið á nikkeli rauk
upp. Kauphöllin ógilti alla kaup- og
sölusamninga sem gerðir voru þann
8. mars og veitti markaðsaðilum
viðbótarfrest til að standa við gerða
afhendingarsamninga. Þegar við-
skipti hófust að nýju, leyfði LME
aðeins 5% sveiflu í verði málmsins
innan hvers viðskiptadags.
Reuters hefur eftir talsmanni El-
liott Associates að inngrip LME
hafi verið ósanngjarnt og órökrétt.
Ekkert hefur verið gefið upp um
umfang nikkelviðskipta Elliott þeg-
ar markaðinum var lokað. Vísar
LME málarekstri Elliott á bug og
segir að kauphöllin hafi mikilvægu
hlutverki að gagna við að tryggja að
viðskipti fari fram með sanngjörn-
um og öguðum hætti.
ai@mbl.is
AFP
Skot Nikkelverð rauk upp í mars vegna vandræða kínversks fyrirtækis.
Vilja bætur vegna inngripa LME
« Reiknað er með að stjórn Seðlabanka
Evrópu muni síðar í þessari viku sam-
þykkja nýtt úrræði sem fæli í sér kaup á
ríkisskuldabréfum ef lántökukostnaður
einstakra ríkja fer úr böndunum. Hefur
bankinn þegar úr um það bil 200 millj-
arða evra sjóði að spila ef ástæða þykir
til að veita innspýtingu á ríkisskulda-
bréfamarkaði.
FT segir að væntanlegar stýrivaxta-
hækkanir á evrusvæðinu kunni að valda
titringi á ríkisskuldabréfamarkaði og geti
fælt fjárfesta frá skuldabréfum þeirra
hagkerfa Evrópu sem tæpast standa,
með tilheyrandi hækkun ávöxtunarkröfu.
Hafa greinendur m.a. áhyggjur af
stöðu Ítalíu en í lok síðustu viku var 2,14
prósentustiga munur á ávöxtunarkröfu
ítalskra og þýskra ríkisskuldabréfa og
hefur munurinn ekki verið meiri síðan í
ársbyrjun 2020.
Næsti vaxtaákvörðunarfundur SBE
verður haldinn þann 21. júlí og er fast-
lega búist við að fundinum ljúki með að
minnsta kosti 25 punkta hækkun stýri-
vaxta. ai@mbl.is
SBE eflir varnir
ríkisskuldabréfa
Morgunblaðið/Ómar
AFP