Morgunblaðið - 07.06.2022, Side 22

Morgunblaðið - 07.06.2022, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Morgunblaðið óskar eftir blaðberum í Keflavík Upplýsingar veitir Guðbjörg í síma 773 5164 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12.Thai Chi kl. 9- 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Bónus-rútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12.Thai Chi kl. 9- 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hæðargarðs Bíó kl. 13. Opin Listas- miðja kl. 13-15.45. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Brids kl. 13. Útileikfimi með Carynu kl. 13.30, allir velkomnir, engin skráning og þátttaka ókeypis. Helgistund kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Opin handverksstofa kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Bókband í smiðju kl. 13-16.30. Opin handverksstofa kl. 13- 16 og síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411- 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarnarness kl. 7.10. Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Pútt á Skólabraut kl. 10.30. alltaf alstaðar mbl.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt University of Veterinary medicine and Pharmacy. Dýralæknaskólinn í Košice Slóvakíu heldur inntökupróf á netinu (online). 23 júní. Umsóknarfrestur til 9 júní. www.uvlf.sk/en Þeir sem hafa lokið landbúnaðarháskólunum eiga möguleika á að fá hluta af sínu námi metið. Upplýsingar kaldasel@islandia.is og 8201071 Sólarfilmur Skírteini VinnustaðaskírteiniJóhanna Jóhannsdóttir RITARI Kt. 051277-5929 Veitingastaðurinn Inn ehf. Kt. 670709-5017 ✝ Ingibjörg Sig- jónsdóttir fæddist á Með- alfelli 2. janúar 1933. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjólgarði 25. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 18. maí 1909, d. 28. nóvember 1998, og Sigjón Einarsson, f. 10. janúar 1896, d. 23. ágúst 1961. Systkini hennar: Elstur var Snorri bóndi, f. 23. júlí 1930, d. 8. nóvember 2013, Þorsteinn, f. 29. nóvember 1939, bóndi í Bjarnanesi, maki Vilborg Jóns- dóttir. Yngst var Jóna, f. 20. mars 1945, d. 5. júní 2021, maki Guðni Karlsson. Fjölskyldan bjó í Móa en flutti í Bjarnanes 1948 en þá var Ingibjörg 15 ára. Hún var alin upp við almenn sveitastörf og inn Gíslason, f. 21. mars 1955, faðir hans er Gísli Vilhjálmur Ákason, f. 28. febrúar 1934, bú- settur í Kópavogi. Börn Ingi- bjargar og Ólafs Runólfssonar eru: 2) Guðlaug Valdís, f. 12. ágúst 1957, maki Jón Benjamín Oddsson, f. 13. ágúst 1956. Börn þeirra eru Ingibjörg Erna og Herdís Harpa. 3) Sigrún Hafdís, f. 21. desember 1958, maki Elías Guðmundsson, f. 9. júní 1957. Börn Hafdísar og Þrastar Rafnssonar, f. 11. apríl 1963, d. 3. október 2010, eru Sunna og Valdís Anna. 4) Ólafur Helgi, f. 12. september 1960, maki Lauf- ey Kristmundsdóttir, f. 30. sept- ember 1963. Börn þeirra eru Ólafur Helgi, Kristmundur Dav- íð og Sigurborg Kristín. 5) Ol- geir Karl, f. 12. febrúar 1962, maki Alma Þórisdóttir, f. 9. október 1964. Börn þeirra eru Sigurbjörg Sandra, Ægir og Þórir Kristinn. Barnabarnabörnin eru orðin tíu. Seinni eiginmaður Ingibjarg- ar var Jón Óskarsson, f. 4. maí 1939, d. 4. nóvember 2007. Son- ur Jóns er Freyr Onryd. Útförin fór fram frá Hafnar- kirkju 6. júní 2022. gekk í barnaskóla á Fornustekkum og í Kirkjukjallaranum við Laxá. Hún fór síðan í Héraðsskól- ann í Reykholti í Borgarfirði í tvo vetur og síðan dvaldi hún í Reykjavík og vann sem heimilishjálp og á elliheimilinu Grund. Hún flutti aftur til Hornafjarðar 1955 og fluttist til Hafnar og fór að starfa sem ráðskona hjá Einari kaupmanni frá Hvalnesi. Hinn 28. desember 1957 gift- ist Ingibjörg Ólafi Runólfssyni skipstjóra, f. 24. júní 1933, d. 15. september 1961. Foreldrar hans voru Sigurborg Ágústs- dóttir, f. 20. júní 1896, d. 10. janúar 1972, og Runólfur Bjarnason, f. 4. nóvember 1891, d. 30. október 1978. Börn Ingibjargar eru: 1) Þrá- Kveðja til mömmu Stöndum saman systkin í grænum kirkjugarði. Minnumst margs. Söknum. Stöndum saman systkin í grónum kirkjugarði Grátum hljótt Syrgjum Stöndum saman systkin í fögrum kirkjugarði Syrgjum mömmu Sárt. Söndum saman systkin í grænum kirkjugarði Kveðjum sátt. Friður fyllir fjörðinn fjöllin og jökulinn. (Sigrun Hafdís Ólafsdóttir) Þín Hafdís. Elsku mamma. Þú varst fjallkonan mín. Þegar ég frétti að þú værir látin, setti mig hljóða. Þú háðir marga bar- áttuna en hélst alltaf áfram með þínum mikla styrk og æðruleysi. Þegar kom að leiðarlokum, gerð- ir þú þetta með þínum hætti, lagðist fyrir eftir umönnun þess dásamlega fólks sem hefur ann- ast þig síðustu árin, lagðir aftur augun og gafst eftir, fallegt. Nú sit ég í Ingibjargarlundi sem þú ræktaðir um árabil og skrifa þér nokkrar línur. Oft er sagt að fötin skapi manninn en mín skoðun er að reynsla, áföll og gleðigjafir lífsins, skapi þá manneskju sem við höfum að geyma. Þú varst komin að níræðu og orðin sú manneskja sem lífið ætlaði þér. Það gaf á bátinn og áföll lífsins urðu stór. Þú misstir pabba okk- ar í hafið, aðeins 28 ára gamlan frá börnunum fimm, en þú barð- ist áfram með barnahópinn þinn og komst okkur til manns. Þess njótum við nú að hafa hvert ann- að. En gleymum ekki því góða, minningarnar um þig eru svo margar og þær ylja. Þú varst fædd á Meðalfelli í Nesjum í Hornafirði og ólst upp í torfbæ að Móa. Þú sagðir mér oft frá lífinu í torfbænum og ljómaðir við frá- sögnina, Fjölskyldan flutti síðan að Bjarnanesi. Að vera alin upp í sveit hefur mótað lífsskoðun þína og viðhorf til náttúrunnar og náttúruverndar. Virkjanir á há- lendi Íslands voru þér mjög hug- leiknar og hafðir þú á þeim sterk- ar skoðanir. Þú elskaðir Ísland. Þú þreyttist aldrei á því að keyra um landið. Þú varst mikil amma og kenndir barnabörnunum þínum margt. Ferðirnar með þér inn á Móa í lundinn þinn eða að veiða með þér og Jóni afa munu seint gleymast. Barnabarnabörnin þín eru orðin tíu. Ég naut þeirrar gæfu að ferðast með þér, þú varst með örnefni á hreinu og sögur staðanna. Landafræði og saga voru þín áhugamál ásamt bók- lestri og þú unnir ljóðum. Í sveit- inni sem barn lastu við tunglsljós og laumaðist með bók þegar þú sóttir kýrnar. Þú kenndir mér að lesa og rýna ljóð. Þú varst sú manngerð sem hikaðir hvergi, tókst hverri nýrri áskorun af áræðni og forvitni. Þú fylgdist með nýjungum og börn þín kætt- ust þegar litla sjónvarpið var komið í hús. Bílpróf tókstu um fertugt og keyptir bíl, gula bjöllu. Þú settist á skólabekk fullorðin og útskrifaðist sem sjúkraliði um sextugt og vannst við það starf og unnir því. Lífið með þér kenndi okkur börnunum þínum margt. Þegar á okkur reyndi í lífinu gafstu okkur ráð, einföld og skýr. Svo unnum við úr málunum sjálf. Þegar þú misstir báða fæturna sökum veikinda, var aðdáunar- vert að fylgjast með hversu sjálfsbjargarviðleitni þín, áræðni og lífsvilji hjálpaði þér að lifa og njóta. Að vera áhorfandi og þátt- takandi í lífsför þinni ætti að kenna okkur að taka þig okkur til fyrirmyndar og eftirbreytni. Fimm börn Þau sitja í brekkunni saman Syngjandi lag tvær stúlkur, þrír drengir með bros um brá, sem blóma leita í dag. Hér syngja þau söngva lífsins sumarsins börn, óhrædd við daginn, sólgin í sólskin, með sakleysið eitt að vörn gegn öllu sem lífinu ógnar um allan heim. Ég heimta af þér veröld, lát vor þeirra lifa og vaxa í friði með þeim. (Jakobína Sigurðardóttir) Elsku mamma mín, nú þegar ég yfirgef skógarlundinn þinn er mér ljóst að lífið verður aldrei eins. Ég mun ávallt sakna þín og minning þín mun lifa í hjarta mínu. Meira á www.mbl.is/minning Takk fyrir allt, þín dóttir Valdís. Elsku besta amma mín. Það er skrítið að hugsa til þess að þú sért farin. En svona er víst lífið, við fæðumst og deyjum, ekkert nýtt undir sólinni. Þetta er samt erfitt. Þú varst mögnuð kona. Misstir manninn þinn frá fjórum börnum og einu sem var á leið- inni. Ég man ekki eftir að þú haf- ir mikið talað um það, enda varstu eins og flestar konur á þessum tíma, ekkert að kvarta heldur bara áfram gakk. Ákveð- in, dugleg, sterk og þrjósk en á sama tíma svo yndislega blíð og góð. Bestu minningarnar eru frá Silfurbrautinni. Þú og afi Jón að leggja kapal með kaffi í glösum. Ég bað þig stundum að kenna mér þessa kapla, en ég skildi þá aldrei og mun örugglega aldrei gera. En þú reyndir allavega. All- ar ferðirnar upp á Móa og allar veiðiferðirnar með ykkur á Lödu Sport sem þú stalst stundum til að leyfa okkur barnabörnunum að keyra. Trúlega leyfðir þú okk- ur bara að stýra en sagan er betri hinsegin. Við eyddum ófáum jólunum á Silfurbrautinni. Mamma keyrði með okkur systur alla Austfirð- ina þvera og endilanga með bílinn fullan af jólapökkum og alltaf fannst manni ferðin endalaus. Ég man þegar við vorum svo á leið- inni aftur heim, þá veifaðir þú okkur bless úr öllum gluggum. Byrjaðir í eldhúsglugganum, hljópst svo í hinn endann á íbúð- inni og veifaðir okkur úr stofu- glugganum, síðan þegar við vor- um komnar út á Hafnarbraut þá varstu aftur komin í eldhús- gluggann veifandi. Ljúfsárasta minningin er þeg- ar þú varst hjá okkur þegar pabbi dó. Þá hjálpaðir þú mér að pressa buxurnar hans, það er stund sem ég mun aldrei gleyma. Ég veit að þér fannst þetta ótrú- lega erfitt, en það var ekki að sjá og stuðningurinn var ómetanleg- ur og ömmuknúsin þín best. Síð- ustu árin var aðeins farið að halla undan fæti hjá þér og ég sé þig fyrir mér hlæjandi núna því það var búið að taka báða fæturna af þér. Það var líka oft erfitt fyrir þig að finna rétt orð yfir hlutina og oftar en ekki sagðir þú hann þegar þú ætlaðir að segja hún og drengur þegar þú ætlaðir að segja stúlka. En það mátti grín- ast og hlæja með þér að lífinu. Þú varst nefnilega algjör húmoristi og hláturinn þinn svo ótrúlega smitandi. Þú fórst í nokkrar erfiðar að- gerðir síðustu ár þar sem við vor- um ekki viss hvort þú myndir vakna aftur. Fyrir eina af þeim aðgerðum kvaddi ég þig og þegar ég var á leiðinni út úr herberginu á hádramatískri stundu sagðir þú við mig: „Þú ert yndislegur drengur,“ síðan hlógum við eins og vitleysingar þegar það rann upp fyrir þér hvað þú hafðir sagt. Þú hafðir líka ótrúlega gaman af ljóðum og mér fannst þú stundum kunna öll ljóð utan að. Þetta skrifaði ég fyrir einhverj- um árum eftir eina kveðjustund. Lítil stúlka í sveit kindur á beit rjóð í kinnum Kaffi í glasi kapall á borði Lada sport Heimsókn til ömmu lítið jólatré veifað bless úr öllum gluggum Mamma erum við komnar? Jökulsárlón og hossubrú ekki enn komnar Jökullinn vaggar þér í svefn og nú er það ég sem veifa þér bless Takk fyrir allt amma mín, þín Sunna. Elsku hjartans amma mín. Þvílík lukka að fá að eiga þig að í lífinu, þú varst einstakur kvenskörungur, hreinskilin og ljúf. Enginn faðmur var hlýrri en þinn og minningarnar um sam- verustundirnar okkar eru afar dýrmætar; öll spilakvöldin í eld- húsinu á Silfurbrautinni þar sem pípureykurinn var ansi þéttur. Ferðir út á sanda og í sveitir, veiði og fugla- og náttúruskoðun. Það var aldrei nein dagskrá þeg- ar ég var hjá þér en samt var allt- af verið að brasa eitthvað. Best var þó að kúra í þínu rúmi og spjalla um alla heima og geima. Við skrifuðumst stundum á þegar ég var barn og í bréfunum þínum var alltaf hvatning til mín um að gera vel það sem ég tæki mér fyrir hendur og ýmis lífs- speki sem ég mun alltaf geyma og leyfa dætrum mínum að lesa. Stelpurnar mínar voru afar hrifnar af langömmu sinni, enda með eindæmum skemmtileg kona og til í alls konar grín. Þvílík fyrirmynd sem þú varst fyrir þær og okkur öll að eiga. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk elsku amma mín og nafna fyrir samveruna og alla hlýjuna. Ljúfu minningarnar um þig munu fylgja okkur alla tíð. Ingibjörg Erna Jónsdóttir. Ingibjörg Sigjónsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.