Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, greindi frá því í gær að rússneskar hersveitir í borginni Severódónetsk væru orðnar fleiri en þær úkraínsku, degi eftir að yfirvöld í Úkraínu lýstu því yfir að hersveitir þeirra hefðu náð helmingi af borginni til baka. Úkraínumenn hafa veitt sókn Rússa í borginni mikla mótspyrnu síðustu daga en nú virðast Rússar vera með yfirhöndina. Severódónetsk er sögð vera lykilborg þegar kemur að bar- áttunni um Donbas-hérað í Austur- Úkraínu. „Við höldum út í lykilborg- inni en þeir eru fleiri og sterkari,“ sagði Selenskí og bætti við að Seve- ródónetsk og Lyshychansk væru báðar „dauðar borgir“ sökum mikilla átaka. Þrátt fyrir yfirburði Rússa hefðu úkraínskar hersveitir aftur á móti alla möguleika á að berjast á móti. Ef borgirnar falla í hendur Rússum hafa þeir náð tökum á öllu Luhansk-héraði í austurhluta Úkra- ínu. „Þeir skjóta hér endalaust, þetta er hryllingsþáttur“ Stórskotaliðsárásir hafa aukist í Lyshychansk, sem er við hlið Seve- ródónetsk, en Selenskí heimsótti borgina á sunnudag. Aldraður íbúi í borginni, Oleksandr Lyakhovets, sagði að rússneskt flugskeyti hefði lent á íbúð hans skömmu síðar og kveikt í henni. „Þeir skjóta hér enda- laust, þetta er hryllingsþáttur,“ sagði hann. Frá því að Rússar drógu herlið sitt til baka frá Kænugarði í mars, hafa þeir einbeitt sér að austurhluta Don- bas, þar sem þeir hafa náð hægum framförum undanfarnar vikur. Her- sveitir þeirra ráða nú nánast öllu Luhansk-héraði sem og talsverðum hluta Donetsk-héraðsins. Bardagar hafa verið hægir og blóðugir og hafa báðir aðilar orðið fyrir verulegu mannfalli. Fá langdrægnari vopn frá Vesturlöndum Vestræn ríki hafa brugðist við hörðum átökum með því að heita því að senda enn langdrægnari vopn til Úkraínu, í von um að það muni styrkja varnargetu Úkraínu í austri. Bretar ætla í fyrsta sinn að senda langdrægar eldflaugar til Úkraínu, þrátt fyrir hótanir Rússa í garð Vest- urlanda. Ákvörðunin var tekin eftir að Bandaríkjamenn tilkynntu í síð- ustu viku að þeir ætluðu að senda Úkraínumönnum háþróaðar eld- flaugar. Vladimír Pútín Rússlands- forseti hefur sagt að hann líti á hvers kyns afhendingu á langdrægum vopnum frá vestrænum ríkjum sem tilraun til að lengja átökin. Þúsundir almennra borgara hafa verið drepn- ar og milljónir neyddar til að flýja heimili sín frá því að Pútín skipaði rússneskum hersveitum að ráðast inn í Úkraínu 24. febrúar. karlottalif@mbl.is Selenskí segir Severódónetsk og Lyshychansk „dauðar borgir“ - Ef borgirnar falla í hendur Rússum hafa þeir náð tökum á öllu Luhansk-héraðinu í austurhluta Úkraínu Vantrauststilaga Íhaldsflokksins á hendur Boris Johnson, forsætisráð- herra Bretlands, var felld í gær- kvöldi með 211 atkvæðum gegn 148. Hann mun því áfram gegna embætt- inu, þrátt fyrir að rúmlega 41% íhaldsmanna styðji ekki Johnson. Einfaldan meirihluta þurfti til þess að fella forsætisráðherrann, eða 180 þingmenn. Því vantaði 32 at- kvæði til þess að honum yrði vikið úr embætti. Tillagan var sett fram af 54 þingmönnum Íhaldsflokksins, í kjöl- far hneykslismála í tengslum við veisluhöld í Downingstræti á meðan strangar sóttvarnareglur voru í gildi vegna kórónuveirunnar. Fyrir tæplega fjórum árum var lögð fram vantrauststilaga á hendur Theresu May, forvera Johnsons í embætti forsætisráðherra, sem hún stóð af sér. Þá kusu 133 með tillög- unni. May sagði af sér rúmlega sex mánuðum síðar og tók Johnson þá við embætti, árið 2019. urdur@mbl.is Van- trauststil- lagan felld AFP Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þurfti að hætta við heim- sókn til Serbíu í gær, eftir að ná- grannalönd Serbíu komu í veg fyrir að flugvél hans kæmist í gegnum lofthelgi þeirra. Lavrov átti að ræða við hæstráðendur í Belgrad, höfuð- borg Serbíu, en þjóðin er einn af fáum bandamönnum Rússa sem eft- ir eru í Evrópu síðan þeir réðust inn í Úkraínu fyrr á þessu ári. Líkt og mörg önnur evrópsk ríki, treystir Serbía að miklu leyti á gas frá Rúss- landi. Lavrov gagnrýndi evrópskar þjóðir harðlega á blaðamannafundi. „Hið óhugsandi hefur gerst.“ Hann lýsti hegðun ríkjanna sem „svívirði- legri“ og sagði að tengsl Rússa og Serba yrðu ekki eyðilögð. „Réttur fullvalda ríkis til að fram- fylgja utanríkisstefnu sinni var tek- inn í burtu,“ sagði Lavrov og bætti við að hann hefði boðið Nikola Selak- ovic, utanríkisráðherra Serbíu, til Rússlands í staðinn. Nágrannaríkin, sem komu í veg fyrir að flugvélin kæmist leiðar sinn- ar, voru Búlgaría, Makedónía og Svartfjallaland. AFP Rússland Sergei Lavrov utanríkisráðherra á blaðamannafundi í gær. Lavrov meinað að komast til Serbíu - Lofthelgi nágrannalandanna lokað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.