Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022 w w w. i t r. i s S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi Jóna Gréta Hilmarsdóttir jonagreta@mbl.is „Ég held það verði pínu spenna á tónleikunum af því að þetta er í fyrsta skipti sem við erum að spila fjórar saman, í fyrsta skipti sem sum þessara verka eru spiluð og því mikil leikgleði,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir, tónlistarkona og stjórnandi viðburðarins Domina Convo, sem verður á dagskrá Listahátíðar Reykjavíkur í dag, þriðjudaginn 7. júní, kl. 20 í salnum Kaldalóni í Hörpu. Domina Convo er fengið úr lat- ínu, að sögn Sunnu , en domina þýðir á latínu kona eða frú og convo samkoma, sem er mjög við- eigandi þar sem fjórar djasskonur, allar frá mismunandi löndum, koma saman og spila á viðburðinum. Á tónleikunum koma fram, auk Sunnu, Rita Marcotulli frá Ítalíu, Julia Hülsmann frá Þýskalandi og Carmen Staaf frá Bandaríkjunum. Leika þær á tvo flygla. Að sögn Sunnu var Marcotulli al- in upp við ítalska kvikmyndatónlist en hún var áberandi í bandarískum djassi þegar Sunna var að byrja í námi. „Ég hef vitað af henni síðan ég hóf nám í Bandaríkjunum. Þá var hún mikið að spila með banda- rískum djassleikurum, en það var á þeim tíma svolítið óvenjulegt fyrir evrópska konu að komast inn í bandarísku djasssenuna,“ segir hún. Sunna segist hafa tekið fyrst eft- ir Juliu vegna tónlistarútgáfunnar ECM (Edition of Contemporary Music). „Mér fannst spennandi að sjá aðra evrópska konu hjá svona virtu útgáfufyrirtæki,“ segir hún og að Hülsmann sæki innblástur í ljóð- listina og hafi áhuga á nýjum upp- götvunum en Staaf flakki á milli sí- gilds djass sem hún þekki og þess óþekkta. Krossgötur lífsins leiddu þær saman Spurð um hvernig það kom til að þær spili saman á Listahátíð í Reykjavík segir Sunna: „Við Julia hittumst fyrst í norræna sendi- ráðinu í Berlín árið 2013 þegar við spiluðum á tónleikum þar en síðan þá höfum við haldið sambandi. Hún hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og við spiluðum t.d. dúó á Jazzhátíð Reykjavíkur og í Tíbrár- tónleikaröðinni. Þegar ég var að byrja með tónleikaröðina Jazz í Salnum bauð ég svo Ritu að koma og spila einsleikstónleika. Í spjalli við hana komst ég að því að hún hafði áður spilað dúó með Juliu. Þá kom upp sú hugmynd að við mynd- um spila allar saman og fá þá fjórðu manneskjuna.“ Að takast á við hið óvænta Að sögn Sunnu átti Myra Mel- fors upphaflega að spila með þeim en vegna Covid-19 var viðburðinum frestað um tvö ár og þegar loks kom að því að halda hann var hún búin að lofa sér í annað. Sunnu datt þá í hug Carmen Staaf en hún hafði spilað á Jazzhátíð Reykjavík- ur árið 2015. Sunna segir að áhorf- endur megi búast við hinu óvænta á tónleikunum: „Við höfum ekki oft æft saman enda komum við frá fjórum mismunandi löndum. Það verður því spennandi fyrir okkur að finna út úr því hvernig við ætl- um að vinna þetta. Ég reikna með því að það verði dálítið góð vídd á tónleikunum, falleg verk og svo eitthvað tilraunakennt líka. Við munum ekki spila fjórar saman all- an tímann heldur skiptumst við á að spila dúó svo að hver einstak- lingur fái að njóta sín betur. Það verður örugglega líka svolítið vandasamt að spila á tvo flygla og að flækjast ekki hver fyrir annarri þannig að ég er búin að skrifa tvö verk fyrir okkur fjórar og Carmen og Julia ætla líka að koma með ein- hver verk sérstaklega fyrir þennan viðburð.“ Ljósmynd / Dovile Sermokas Leikgleði og tilraunamennska - Fjórar djasskonur frá fjórum löndum koma saman á tónleikunum Domina Convo á Listahátíð Julia Hülsmann Carmen Staaf Rita Marcotulli Sunna Gunnlaugs Myndlistarkonan Yto Barrada hlýtur Queen Sonja Print Award skv. frétt á vef The Art Newspaper. Stofnað var til verðlaunanna af norska konungsdæminu og er verð- launafé ein milljón norskra króna. Einnig voru veitt QSPA innblásturs- verðlaunin en þau hlýtur samíski listamaðurinn Meerke Vekterli. Innblástursverðlaununum fylgir verðlaunafé að upphæð 50 þúsund norskar krónur. QSPA hófu göngu sína sem norr- æn verðlaun en farið var að veita þau á heimsvísu árið 2014. Þau eru merkustu myndlistarverðlaun heims á sviði grafíklisar og af fyrri verð- launahöfum má nefna bandarísku myndlistarkonuna Taubu Auerbach f (2016), japansk-kanadísku lista- konuna Emmu Nishimura (2018) og hina kanadísku Ciara Phillips (2020). Queen Sonja Art samtökin voru stofnuð árið 2011 með það að mark- miði að styðja við allar gerðir grafík- listar. Í viðtali á sama vefmiðli árið 2018 þakkar Sonja, drottning Noregs, Edvard Munch fyrir að vekja áhuga hennar á miðlinum en hún stundar sjálf grafíklist. Yto Barrada er fædd í París en starfar í Brooklyn. Dómararnir hrósuðu Barrada, skv. frétt The Art Newspaper, fyrir leita út fyrir mörk listmiðilsins og víkka um leið skiln- ing þeirra á grafíklist. Verk mynd- listarkonunnar eru einnig undir áhrifum frá síðnýlenduhugsun og félags-pólitískum áhyggjum, segja dómararnir. Í dómnefnd þessa árs voru ástralski sýningarstjórinn Rachel Kent, Pablo del Val, listrænn stjórnandi Art Dubai sýningarinnar og kínverski listamaðurinn Qiu Zhijie. jonagreta@mbl.is Ljósmynd/Benoît Peverelli Verðlaunahafi Yto Barrada. Yto Barrada hlýtur QSPA verðlaunin - Leitar út fyrir mörk grafíklistar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.