Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.06.2022, Blaðsíða 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Nýtt menningarhús Flóru var opnað í hinu sögufræga húsi Sigurhæðum á Akureyri í gær. Ávörp fluttu forseti Ís- lands, Guðni Th. Jóhannes- son, Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og opnuðu staðinn formlega. Kynnir var Vilhjálmur B. Bragason og um tónlistar- flutning sáu Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir og fé- lagar. Á efri hæð hússins verða vinnustofur fyrir lista- menn og hönnuði og á aðalhæð stíga Guðrún Runólfs- dóttir, Matthías Jochumsson og mörg fleiri úr menn- ingarsögu landsins fram í sviðsljósið, eins og það er orðað í tilkynningu. Hönnuður sýningarinnar er Þór- arinn Blöndal. Myndlistarmenn með verk í sýningu eru þau Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Jón Laxdal Halldórsson. Fjölmargir aðrir komu að gerð staðarins og verkefnis- stjóri og staðarhaldari nýja menningarhússins verður Kristín Þóra Kjartansdóttir. Menningarhús í Sigurhæðum ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 158. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Stjarnan er komin upp að hlið Vals á toppi Bestu deild- ar kvenna í fótbolta eftir afar sannfærandi 5:0- heimasigur á Þór/KA í eina leik deildarinnar í gær. Bæði lið eru með 16 stig en Valur á einn leik til góða. Stjarnan lagði grunninn að sigrinum strax í upphafi leiks, því Gyða Kristín Gunnarsdóttir skoraði tvö fyrstu mörkin á fyrstu tíu mínútunum. Arna Dís Arnþórsdóttir skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og Jasmín Erla Inga- dóttir gerði eitt mark. Nýsjálenska landsliðskonan Betsy Hassett lagði upp tvö mörk. »26 Stjarnan upp að hlið toppliðsins ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hjónin Halla Benediktsdóttir og Hrannar Hólm hafa búið í Dan- mörku í um 13 ár og hún verið for- stöðumaður Jónshúss í Kaup- mannahöfn undanfarin nær sjö ár. „Við búum í Jónshúsi, ég er alltaf í vinnunni og þar er ég helst jafn- framt í tómstundum,“ segir hún. Halla er í mörgum prjónahópum, meðal annars í Hinu íslenska prjónafélagi, HÍP, ásamt þremur vinkonum sínum á Íslandi. „Prjón er helsta áhugamálið mitt og við í HÍP hittumst reglulega og erum auk þess í samprjóni á netinu.“ Hún segist eiginlega nota hverja dauða stund til þess að prjóna og því fari enginn tími til spillis. „Ásamt öðrum held ég úti prjóna- klúbbnum Garnaflækjunni í Jóns- húsi og ég hef ekki aðeins ótrúlega mikinn áhuga á prjóni heldur nota hvert tækifæri til þess að kynna Dönum handprjón, íslenska prjóna- sögu og fleira þvíumlíkt.“ Ástríða Hún nefnir að í september undanfarin átta ár hafi hún verið með hliðarverkefni í menningarhúsi Íslendinga, Færeyinga og Græn- lendinga á Norðurbryggju, en þá hafi þær Ásta Stefánsdóttir verið verkefnisstjórar viðamikillar sýn- ingar um prjón. „Þar höfum við kynnt prjón frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Þetta er nokkurs konar ástríða, því mig langar svo til þess að allir Danir skilji hvað ís- lenska prjónahefðin er yndisleg og hvað við eigum gott hráefni.“ Í því sambandi nefnir hún að lopapeysa sé ekki það sama og kynnt sé sem „Islænder Sweater“. „Fyrir nokkr- um árum hélt ég fyrirlestra í Dan- mörku, þar sem ég sagði frá því að peysa leikkonunnar Söru Lund í framhaldsþáttunum „Forbrydelsen“ væri ekki lopapeysa heldur fær- eysk, handprjónuð peysa.“ Fyrir nokkrum árum byrjuðu hjónin að halda úti Facebook-síðu (Halla og Hrannar á göngu um Kaupmannahöfn) um gönguferðir þeirra ytra og hafa nú skráð tæp- lega 50 ferðir. „Við Hrannar höfum gengið þvers og kruss um borgina og eitt áhugamál okkar er að kynna Íslendingum Kaupmanna- höfn og sögu hennar. Ég er ekki í golfi, geng ekki á fjöll og er ekki á skíðum en prjóna og geng um Kaupmannahöfn.“ Áður en Halla flutti til Kaup- mannahafnar vann hún hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands. Eitt verkefna hennar var að þjónusta Félag kvenna í atvinnurekstri á Ís- landi. „Þá upplifði ég hvað máttur kvenna og tengslanet þeirra er frá- bært.“ 2015 stofnaði hún Félag ís- lenskra kvenna í atvinnurekstri í Kaupmannahöfn eftir að hafa hafið rekstur eigin hönnunarfyrirtækis. „Félagsskapurinn er opinn öllum íslenskum konum í atvinnulífinu í Danmörku og nágrenni og hjá okk- ur er engin stéttaskipting.“ Einu sinni til tvisvar á ári velja vinkonurnar í HÍP sér sömu peysu- uppskrift og prjóna í samprjóni á netinu. „Við erum pínulitlir nördar og skrýtnar, prjónum saman og spjöllum, og höldum neyðarfundi þegar við skiljum ekki uppskriftina. Svo hittumst við alltaf þegar ég kem til Íslands og þær eru dugleg- ar við að heimsækja mig. Þetta er ómissandi félagsskapur.“ Með margt á prjónunum - Halla göngugarpur í Köben í Hinu íslenska prjónafélagi Í kóngsins garði Hrannar Hólm og Halla Benediktsdóttir á göngu fyrir framan Rósenborgarhöllina áður en hvítasunnan gekk í garð. HÍP Frá vinstri: Halla Benediktsdóttir, Kristín Jóna Magnúsdóttir, Kristín Hjálmtýsdóttir og Hlín Hólm bera saman prjónaskapinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.