Morgunblaðið - 07.06.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2022
STOFNAÐ 1953
Ertu með allt á
hreinu?
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
Sveppaspretta var með ágætum á
Suður- og Vesturlandi í fyrra en
norðanlands og austan áttu sveppir
fremur erfitt uppdráttar vegna
þurrka, að því er segir í ársskýrslu
Náttúrufræðistofnunar Íslands
2021. Þar er fjallað um margvís-
legar rannsóknir og vöktun.
Þrátt fyrir þurrkinn í fyrra fund-
ust nokkrir áhugaverðir sveppir.
Þar á meðal var hvannarpússryð
sem fannst á ætihvönn í Hrísey.
Ryðsveppurinn hafði áður fundist á
hólma í Laxá í Laxárdal í Suður-
Þingeyjarsýslu. Spíssblekill fannst í
Grasagarði Reykjavíkur í Laugar-
dalnum. Mánuði seinna fékk Nátt-
úrufræðistofnun mynd af blekli við
trjástubb í Grjótaþorpi og var talið
að það væri spíssblekill. Þótt talið
væri að þessi sveppur yxi hér þá
var það ekki staðfest með sýni fyrr
en nú. Jarðtunga fannst svo á gras-
flöt í garði í Reykjavík en tungur
eru flestar fátíðar hér.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir,
sveppafræðingur NÍ, notar Face-
book til að fræða fólk um sveppi
sem það finnur og birtir myndir af í
hópnum Funga Íslands – sveppir
ætir eður ei. Þar á meðal voru þrjár
tegundir sem fundust hér í fyrsta
sinn og ein sem fannst í annað sinn
hérlendis. Brennisteinsbarði, eld-
skrýfa og sólarlagshringlekta fund-
ust í fyrsta sinn hér á landi og loga-
lekta fannst hér í annað skiptið í
fyrra. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Spíssblekill Þessi sveppur fannst í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal.
Töluverð gróska
í sveppunum 2021
- Kafli um sveppi í ársskýrslu NÍ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Frjósemi landans virðist hafa verið
með mesta móti í heimsfaraldri
Covid-19 en heldur virðist hafa
dregið úr henni þegar á veirutímann
leið. Þetta má álykta af upplýsing-
um um starfsemi Landspítalans,
sem finna má á vef sjúkrahússins. Á
tímabilinu janúar til maí í ár fædd-
ust á sjúkrahúsinu alls 1.310 börn,
borið saman við 1.418 börn á þessum
sömu mánuðum á síðasta ári, 2021.
Á fimm fyrstu mánuðum ársins 2020
voru fæðingar á spítalanum 1.263
talsins.
Fæðingar á Landspítalanum allt
árið í fyrra voru 3.466, borið saman
við 3.288 árið 2020. Munurinn á milli
ára er um 5,5%.
Fóru að huga að barneignum
Á síðasta ári, 2021, voru fæðing-
arnar á Landspítalanum flestar í
júlímánuði, alls 334. Eru það þá
börn sem komu undir níu mánuðum
fyrr, það er í október 2020, en á
þeim tíma gildu víðtækar sóttvarn-
arráðstafanir. Ekki máttu fleiri en
tíu manns koma saman, allt íþrótta-
starf og sviðslistir voru bannaðar –
og víðtæk grímuskylda gilti um alla
fimmtán ára og eldri. Ætla má af
tölunum að við þessar aðstæður hafi
pör gjarnan farið að huga að barn-
eignum. Með öðrum orðum; lokan-
irnar leiddu af sér barnsfæðingar
níu mánuðum síðar.
Næstu mánuði eftir þetta voru
fæðingarnar talsvert færri, 297 í
ágúst 2021 og færri alla mánuði það-
an í frá út árið. Voru 245 í desember
sl.
Það sem af er þessu ári voru fæð-
ingar á Landspítalanum flestar í
janúar, 265, en síðan þá að jafnaði
um 250 í mánuði.
Tekið skal fram að tölurnar hér að
framan miðast við Landspítalann
einan. Þjónusta við sængurkonur er
vissulega á sjúkrahúsum í öllum
landsfjórðungum en hvergi eru þó
fleiri börn í heiminn borin en á þjóð-
arsjúkrahúsinu í Reykjavík.
Nýburar á Íslandi
í fyrra voru 4.579
Fæðingar á landinu öllu í fyrra
voru 4.579 og 4.512 árið 2020. Töl-
urnar frá næstu árum þar á undan
fela engin tíðindi í sér, nema hvað
minnast má barnasprengju árið
2009. Þá voru nýburar á Íslandi
5.025 og hefur stundum verið sagt að
barnasprengja hafi verið ein af
markverðari afleiðingum efnahags-
hrunsins.
Barnasprengja
kom eftir Covid
- Færri fæðingar á Landspítala nú en
í fyrra - 1.310 börn það sem af er ári
Nýburi Fæðingartíðni landans
lækkaði eftir frjósaman tíma í fyrra.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Verkefnin framundan eru stór og
krefjandi. Við stjórn sveitarfélagsins
töldum við mikilvægt að mynda
sterkt tvíeyki, þar sem jafnræði
verður lykilatriði,“ segir Fjóla St.
Kristinsdóttir, sem á morgun, mið-
vikudag, tekur við starfi bæjarstjóra
í sveitarfélaginu Árborg. Eins og áð-
ur hefur komið fram í Morgun-
blaðinu, ætla þau Bragi Bjarnason
og Fjóla að skipta með sér embætt-
um bæjarstjóra og formanns bæjar-
ráðs í Árborg. Þau tvö skipuðu 1. og
2. sætið á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins, sem í kosningnum vann
hreinan meirihluta í bæjarstjórn.
Þungur rekstur í mínus
„Ég verð bæjarstjóri fyrri hluta
kjörtímabilsins og Bragi með bæjar-
ráðið. Eftir tvö ár höfum við svo
sætaskipti, enda þótt við munum
deila sömu skrifstofu. Hugsunin með
því að Bragi byrji með bæjarráðið,
þar sem daglegar ákvarðanir eru
teknar, er meðal annars að vinna enn
betur að heildarsýn sveitarfélagins,
stytta boðleiðir og auka skilvirkni
mála inn í stjórnsýsluna. Til þess er
hann réttur maður, eftir að hafa ver-
ið stjórnandi hjá Árborg sl. fjórtán
ár,“ segir Fjóla. Hún heldur áfram:
„Rekstur sveitarfélagsins er
þungur nú um stundir og uppgjör
síðasta árs á A-hluta eru tæpir 2,5
milljarðar króna í mínus. Við þurfum
því að endurhugsa reksturinn með
hagkvæmni að leiðarljósi, þó ég sé
með þeim orðum ekki að boða niður-
skurð. Staðan núna endurspeglar-
vaxtarverki sem fylgja mikilli fjölg-
un hér í Árborg sem nú nálgast
11.000 íbúa markið.“
Fjóla St. Kristinsdóttir er fimm-
tug að aldri, fjölskyldukona, fædd og
uppalin á Selfossi og hefur búið þar
nánast alla sína tíð. Hún er með iðn-
menntun í hágreiðslu, er vottaður
fjármálaráðgjafi, er með B.Sc. í við-
skiptafræði, kennsluréttindi og með
MBA gráðu í rekstri og stjórnun frá
HÍ. Fjóla starfaði meðal annars á
velferðarsviði hjá sveitarfélaginu
Árborg, sem viðskiptastjóri á fyrir-
tækjasviði hjá Landsbankanum og
hefur sinnt kennslu.
Betra samráð við íbúa
„Ég ákvað snemma á þessu ári að
gefa kost á mér í bæjarmálin hér,
þar sem það var margt sem ég vildi
breyta. Mér hefur til dæmis fundist
þurfa meira og betra samráð við
íbúa, um bæði ákvarðanir og þá
þjónustu sem sveitarfélagið veitir og
ber að gera lögum samkvæmt. Það
eru allt atriði sem ég þekki vel, sem
íbúi hér, foreldri og í gegnum
fyrirtækjarekstur,“ segir Fjóla.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Forysta Fjóla St. Kristinsdóttir, væntanlegur bæjarstjóri. Gamlar og nýja byggingar í miðbæ Selfoss í bakgrunni.
Rekstur sveitarfélags
verður endurhugsaður
- Tvíeyki tekur við stjórninni í Árborg - Fjóla kemur fyrst