Morgunblaðið - 07.06.2022, Qupperneq 10
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Annar þáttur
ámbl.is
* %)'%#)&" !($+
íþróttafréttamanna, árin 2018 og
2020.
„Bakvið allan þennan árangur og
alla þessa titla er ákveðin saga og
vegferð og það er það sem stendur
upp úr á ferlinum,“ sagði Sara Björk
meðal annars í þættinum, þegar hún
ræddi farsælan atvinnumannaferil
sinn.
„Þetta hefur verið ógeðslega erfitt
en á sama tíma ótrúlega skemmtilegt
og þroskandi líka og þetta er held ég
besti lærdómur sem þú færð,“ bætti
Sara við.
Besti lærdómur sem þú færð
Morgunblaðið/Hallur Már
Einkasonurinn Sara eignaðist sitt fyrsta barn í nóvember á síðasta ári, soninn Ragnar Frank Árnason, með sambýlismanni sínum Árna Vilhjálmssyni.
- Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir kveður Lyon sem Frakklands- og Evrópumeistari
- Sara er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 14 ára gömul
Morgunblaðið/Hallur Már
Frakkland Sara Björk sýndi okkur æfinga- og keppnis-
aðstöðuna hjá Lyon en hún er á förum frá félaginu.
Morgunblaðið/Hallur Már
Borgarlíf Sara Björk hefur verið búsett í Lyon, sem er
þriðja stærsta borg Frakklands, frá sumrinu 2020.
DÆTUR ÍSLANDS
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Í öðrum þætti af Dætrum Íslands
heimsækjum við knattspyrnukonuna
Söru Björk Gunnarsdóttur en hún
varð Frakklandsmeistari og Evrópu-
meistari í annað sinn á ferlinum með
stórliði Lyon í Frakklandi á nýliðnu
keppnistímabili.
Sara, sem er 31 árs gömul, gekk til
liðs við Lyon sumarið 2020 frá Wolfs-
burg í Þýskalandi.
Hún er uppalin hjá Haukum í Hafn-
arfirði og lék sinn fyrsta meistara-
flokksleik fyrir félagið í maí 2004, þá
14 ára gömul í 1. deildinni en alls skor-
aði Sara 18 mörk í 22 leikjum í fyrstu
deildinni. Um mitt sumarið 2008 gekk
Sara til liðs við Breiðablik á láni frá
Haukum og hún gekk svo formlega til
liðs við Blika í nóvember 2008. Sara
lék með Breiðabliki tvö tímabil en alls
á hún að baki 41 leik í efstu deild, þar
sem hún hefur skorað 17 mörk.
Hún hélt út í atvinnumennsku árið
2011 þar sem hún samdi við Rosen-
gård í Svíþjóð en þar lék hún í sex ár
og varð fjórum sinnum Svíþjóðar-
meistari með liðinu og einu sinni
bikarmeistari.
Vegferðin stendur upp úr
Árið 2016 gekk hún til liðs við
Wolfsburg í Þýskalandi þar sem hún
varð fjórum sinnum Þýskalands-
meistari og fjórum sinnum bikar-
meistari. Þá lék hún til úrslita í Meist-
aradeildinni tímabilið 2017-18 þar sem
Wolfsburg tapaði 1:4 fyrir Lyon í úr-
slitaleik í Kænugarði í Úkraínu. Hjá
Lyon hefur hún tvívegis orðið Evr-
ópumeistari, einu sinni Frakklands-
meistari og einu sinni bikarmeistari.
Sara er leikjahæsta landsliðskona
Íslands frá upphafi, með 138 A-
landsleiki. Í þessum leikjum hefur
hún skorað 22 mörk. Sara hefur verið
fyrirliði kvennalandsliðsins frá árinu
2014.
Sara eignaðist sitt fyrsta barn,
Ragnar Frank Árnason, ásamt sam-
býlismanni sínum Árna Vilhjálms-
syni, í nóvember á síðasta ári en hún
snéri aftur til æfinga hjá Lyon eftir
áramót. Líkt og Morgunblaðið greindi
frá á dögunum, mun Sara yfirgefa
Frakklandsmeistarana þegar samn-
ingur hennar rennur út í sumar en
hún hefur tvívegis verið útnefnd
íþróttamaður ársins af samtökum