Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Áttu rétt á veitingahúsa- eða viðspyrnustyrk?
Nánari upplýsingar á skatturinn.is
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2022
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vonast er til að íslenskt lambakjöt
fái evrópska upprunatilvísun fyrir
lok ársins. Umsókn markaðsstofunn-
ar Íslenskt lambakjöt hefur verið í
ferli hjá Evrópu-
sambandinu í
hálft annað ár. Er
þetta fyrsta og
eina íslenska upp-
runatilvísunin
sem er í þessu
ferli. Hafliði Hall-
dórsson fram-
kvæmdastjóri
segir að evrópsk
vottun auki virði
afurðanna og
stuðli að neytendavernd.
Umsóknarferlið er langt og
strangt að sögn Hafliða. Markaðs-
stofan þarf að sýna fram á sérstöðu
íslensks lambakjöts. Á þeim tíma
sem umsóknin hefur verið til um-
fjöllunar hefur markaðsstofan svar-
að tveimur athugasemdum og þriðja
svarið fer í þessari viku. „Við töldum
að þetta myndi ganga hraðar í gegn.
Nálaraugað er greinilega að þrengj-
ast því gerðar eru ítarlegri kröfur en
stundum áður,“ segir Hafliði en
hann telur öruggt að vottun fáist en
reiknar þó ekki með henni úr þessu
fyrr en seint á árinu.
Umsóknin er gerð á grunni þeirr-
ar vinnu sem þegar hefur farið fram
hér á landi með íslenskri uppruna-
merkingu lambakjöts. Lambið er
fyrsta afurðin sem hefur fengið þá
stöðu, enn sem komið er. Skilti um
vottunina má sjá á mörgum veitinga-
stöðum og Kjarnafæði Norðlenska
er byrjað að merkja framleiðsluvör-
ur sínar með merkinu.
Spurður að því hvað vinnist með
því að fá evrópsku upprunatilvís-
unina segir Hafliði að hún sé hugsuð
til að vernda afurðina gagnvart stað-
gönguvörum, ábyrgjast uppruna og
tengja neytendur við frumfram-
leiðslu. Reynslan sýni að hún auki
virði matvælanna um 15-20%, fram
yfir staðgönguvörur. Íslenskar
markaðsrannsóknir gefi til kynna að
neytendur séu tilbúnir að greiða 10-
15% hærra verð fyrir vörur sem hafi
fengið þessa viðurkenningu.
Hafliði segir að evrópska upp-
runatilvísunin hafi á sínum tíma ver-
ið svar við þeirri þróun sem verið
hefur og er enn í gangi að keðjur
stórmarkaða vilja helst láta fram-
leiða vörur undir eigin merki, það
henti þeim betur en að vera með
vörur úr ýmsum áttum. Verið sé að
vernda vörur sem hafa sérstöðu, vísa
annaðhvort til landsvæðis, stofna eða
hefða. Nefna má parmaskinku og
parmesanost frá Ítalíu, fetaost frá
Grikklandi og kampavín og camem-
bert-ost frá Frakklandi. Eingöngu
framleiðendur á viðkomandi svæð-
um mega nota heitið. Þetta þekkjum
við vel hér á landi, þar sem MS má
ekki selja fetaost heldur verður að
nota annað heiti á afurðina, í því til-
viki salatost.
Lambið skorar hátt
Segir Hafliði að umsókn fyrir ís-
lenska lambakjötið grundvallist á því
að kjötið sé einstök afurð, af sauð-
fjárstofni sem verið hefur hér í 1100
ár án aðflutts erfðaefnis. Kindurnar
búi við mikið frelsi og rými, geti valið
sér beit í grasi, villtum jurtum og
berjum og hafi nægt aðgengi að
hreinu vatni. Lömbin séu 4-6 mán-
aða við slátrun sem er mun yngra en
þekkist víðast hvar erlendis. Þá
skorar kjötið hátt hjá matgæðingum
og í alþjóðlegum samanburðarrann-
sóknum.
„Vegna þess að bannað er að flytja
inn erfðaefni hafa íslenskir sauðfjár-
bændur þurft að vera ansi klárir í
starfi við kynbætur á fjárstofnum
sínum. Þeir eru leiðandi í Evrópu á
sínu sviði og hér er kjöt eftir hverja
kind 30% meira en hjá þeirri þjóð
sem vermir annað sætið. Lykillinn er
skýrsluhald þannig að menn geti val-
ið bestu gripina til ræktunar. Hér
eru 97% kindanna ættbókarfærð en
Norðmenn sem koma næstir okkur
eru með 50% af sinni sauðfjárrækt í
skýrsluhaldi,“ segir Hafliði.
Áhersla á ferðamenn
Markaðsstofan Íslenskt lamba-
kjöt vinnur aðallega á innanlands-
markaði og áherslan hefur verið á að
ná til erlendra ferðamanna. „Besti
útflutningurinn er að selja erlendum
ferðamönnum lambakjöt,“ segir
Hafliði og telur að vel hafi tekist til
með það. Kannanir sýna að salan til
ferðafólks jókst um 5% á milli ár-
anna 2017 og 2019. Á kórónuveiru-
árinu 2020 minnkaði salan um 20% í
magni sem hann segir að sé nálægt
neyslu ferðafólks 2019. Telur hann
líklegt að heildsöluverðmæti afurð-
anna hafi minnkað meira en nemur
magninu því samdrátturinn hafi orð-
ið á dýrari hlutum skrokksins sem
seldur er veitingahúsum og ferða-
þjónustufyrirtækjum.
Hafliði bendir loks á að á tíma-
bilinu 2017 til 2019 var lambakjöt
alltaf sú íslenska afurð sem flestir
ferðamenn neyttu, að jafnaði 56%
svarenda, en á eftir komu þorskur,
lax og skyr. Þetta hlutfall var komið
upp í 70% á síðasta ári samkvæmt
neyslukönnun Gallup. Einnig kom
fram að þeir ferðamenn sem þekktu
merki Íslensks lambakjöts og skildu
merkingu þess voru mun líklegri til
að neyta lambakjöts oftar en einu
sinni.
Evrópsk upprunatilvísun fyrir lamb
- Búist við að evrópsk upprunatilvísun fyrir íslenskt lambakjöt fáist á árinu - Unnið að því að skýra
sérstöðu afurðanna - Fer í flokk með parmaskinku, fetaosti og kampavíni - Virði afurðanna eykst
Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt
Lambasteik Um 70% erlendra ferðamanna sem hingað koma fá sér lamba-
kjöt að borða. Markaðsrannsóknir benda til að sumir panti sér oft lamb.
Hafliði
Halldórsson
„Þetta skilti er reyndar búið að
standa þarna í nokkur ár, en það var
á sínum tíma sett þarna upp vegna
ákveðins vandamáls … já, fólk var
að gera þarfir sínar þarna,“ segir
Jón Ben. Einarsson, byggingar-
fulltrúi Suðurnesjabæjar, spurður út
í ástæður þess að skiltið, sem sést á
myndinni hér til hliðar, var sett upp.
Skilti þetta stendur við hvíldar-
stæði nærri Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, innan landsvæðis Suðurnesja-
bæjar. Þarna geta bílstjórar slakað
á enda ekki mikið pláss fyrir bíla í
biðstöðu fyrir utan flugstöðina
sjálfa.
Jón segir umgengni við stæðið,
einkum á tímum fyrir kórónuveiru-
faraldur, hafa verið þannig að fólki
hreinlega blöskraði. Þá segir hann
skiltið sjálft vafalaust vekja sömu
viðbrögð hjá einhverjum.
Bannið virðist skila árangri
„Við gripum til þessara aðgerða til
að sjá hvort við gætum ekki aðeins
hamið þetta ástand og það virðist al-
veg hafa virkað,“ segir Jón um gagn-
semi skiltisins.
Þá segir Jón notkun á stæðinu
hafa aukist mjög undanfarið og kann
það eitt og sér að hafa haft áhrif,
enda betra fyrir fólk að vera í góðu
skjóli við þessa iðkun sína. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sóðaleg hegðun
kallaði á skiltið
- Fólk gekk örna sinna á bílastæði