Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Bergsveinn S. 863 5868 Sigurður J. Helgi Már S. 897 7086 Magnús S. 861 0511 Ólafur S. 824 6703 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is - Sími 534 1020 TIL LEIGU Smiðjuvellir 28, Akranesi Stærðir: frá um 150-600 m² Gerð: Verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhúsnæði Verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhúsnæði á góðum stað í alfaraleið við hlið Þjóðbrautar. 147,3 m² glæsilegt og nýtt verslunar-/ þjónustuhúsnæði. Húsnæðið skiptist upp í opið verslunar-/ þjónusturými með góðum verslunargluggum á tvo vegu. 151 m² glæsilegt og nýtt verslunar-/ þjónustuhúsnæði. Húsnæðið skiptist upp í opið verslunar-/ þjónusturými með góðum verslunargluggum á tvo vegu. 157,4 m² glæsilegt og nýtt skrifstofuhúsnæði á 2. hæð. Húsnæðið skiptist upp í opið og bjart skrifstofurými með uppteknu lofti, vandaðri hljóðvist, gluggum á tvo vegu með útgengi á svalir. Við hlið þessa rýmis er 153,6 m² rými sem hægt er að opna á milli og verður þá hægt að ná samtals 311 m² rými á einum gólffleti. Væntanlegir leigjendur geta komið að hönnun og innréttingu rýmanna. Næg bílastæði eru á lóð hússins. Nánari upplýsingar um eignina veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í s. 897 7086, hmk@jofur.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég fór úr kokkaríinu á togaranum Vestmannaey VE árið 1986 og í blaðamennsku þegar ég byrjaði á Fréttum eins og blaðið hét þá. Þar ætlaði ég að hafa stuttan stans, en var þar samfleytt í meira en þrjátíu ár. Á því tímabili reyndi ég að hætta en var fenginn aftur að borðinu. Það má því segja að þetta sé í þriðja skipti sem ég tek við blaðinu,“ segir Ómar Garðarsson ritstjóri. Hann tók nýlega við ritstjórn Eyjafrétta í Vestmannaeyjum. „Fráfarandi ritstjóri, Sindri Ólafs- son, var búinn að spyrja mig hvort ég vildi leysa hann af. Ég svaraði því neitandi. Svo ákvað hann að hætta og þá lenti ég í ákveðinni hringiðu sem endaði með því að ég sat uppi með krógann í fanginu. Ég er aðeins að átta mig á því að vera aftur orðinn ritstjóri,“ segir Ómar. Héraðs- fréttablaðið Eyjafréttir og áður Fréttir hefur áratugum saman verið ein af stoðum samfélagsins í Vest- mannaeyjum. Eygló Egilsdóttir starfar við hlið Ómars og er tekin við sem ritstjóri fréttavefjarins eyjafrettir.is. Hún er frá Vestmannaeyjum og er að flytja aftur heim eftir að hafa búið uppi á landi. Ómar segir að vissulega sé töluvert aldursbil á ritstjórninni, en meðalaldurinn alveg innan marka! Þá er þar enginn kynjahalli. „Þetta verður vonandi til þess að blaðið verði betra og nái til breiðari hóps lesenda og eins að vefurinn okkar hafi víðari sýn en ella. Eygló er hörkukona og ég hlakka til að vinna með henni,“ segir Ómar. Verk- efni sumarsins hjá þeim verður að koma blaði og vef í það horf sem rit- stjórarnir vilja. „Þetta er tilraun eig- enda Eyjafrétta til að halda úti al- mennri blaðamennsku í Vestmanna- eyjum og að skrifa fréttir og annað sem til fellur,“ segir Ómar. Blaðið er selt í áskrift og á blað- sölustöðum í Vestmannaeyjum. Einnig eru margir brottfluttir Eyja- menn um allt land áskrifendur ýmist að prent- eða netútgáfunni. Ómar segir að fyrsta tölublaðið sem komið er út undir nýrri ritstjórn hafi fengið góð viðbrögð og sama sé að segja um fréttavefinn eyjafrettir.is. Blaðaútgáfa hefur löngum verið blómleg í Eyjum. Auk Eyjafrétta kemur út fríblaðið Tígull sem er með vefinn tigull.is. Þá er fréttavefurinn eyjar.net einnig starfandi. Fylkir, blað Sjálfstæðisflokksins, Fram- sóknarblaðið, H-listablaðið og Sjónvarpsvísir koma reglulega út. Ómar segir þessa miðla veita Eyjafréttum og eyja- frettir.is heilbrigða sam- keppni. Það megi aldrei sofna á verðinum. Fjölmiðlar sem starfa á landsvísu segja einnig fréttir frá Vest- mannaeyjum og veita þannig héraðsfréttamiðlunum öflugt aðhald. Ritstjóri Eyjafrétta í þriðja sinn - Nýir ritstjórar á Eyjafréttum og vefnum eyjafrettir.is - Meðalaldurinn á ritstjórninni er innan marka og enginn kynjahalli - Öflug blaða- og netútgáfa hefur löngum verið í Vestmannaeyjum Ljósmynd/Addi í London Eyjamenn F.v.: Sigurgeir Jónasson ljósmyndari, Ómar Garðarsson ritstjóri og Kári Bjarnason forstöðumaður. Útgefandi Eyjafrétta er Eyjasýn ehf., sem jafnframt á og rekur vefmiðilinn eyjafrettir.is. Eyja- fréttir koma út hálfsmán- aðarlega í prent- og netútgáfu. Ómar Garðarsson ritstýrir blaðinu Eyjafréttum. Hann er jafnframt ritstjóri Sjómanna- dagsblaðs Vestmannaeyja en 72. árgangur þess kom út fyrir nýliðinn sjómannadag. Blaðið er 132 blaðsíður að þessu sinni og stútfullt af fjölbreyttu efni. Hægt er að lesa blaðið á netinu. Auk ritstjórnarstarfanna er Ómar fréttaritari Morgunblaðs- ins í Vestmannaeyjum. Fjölbreytt ritstörf VESTMANNAEYJAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.