Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
www.danco.is
Heildsöludreifing
Hvolpasveitin, Frozen o.fl.
Vinsælu leikföngin fást hjá okkur
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Tei
H
Tei
Hvolpasveitin
Magic paintbook
PeppaPig
Magic paintbook
Art Litabox 13x27 cm
Hvolpasveitin
Lyklak.budda
vo pasve n
Art Litabox 13x27 cm
Pop-Up Tjald
Hvolpasveitin
85x85x95cm
Pop-Up Tjald
Frozen II
85x85x95cm
OctoPlop It!
Suction Strip
20 cm
OctoPlop It!
Sucker Strip
Hand
OctoPlop It!
Lyklakippa
10 cm
Puffer ball Soccer
13 cm, 6 teg.
r en e
Stressbolti
lti 4 teg. 7 cm
Boltar SQUISHY
1 m
Kvenréttindafélag
Íslands, Mannrétt-
indaskrifstofa Ís-
lands, Öfgar, UN Wo-
men á Íslandi og
Öryrkjabandalag Ís-
lands hafa skilað inn
sameiginlegri skugga-
skýrslu til nefndar
sem starfar á grund-
velli samnings Sam-
einuðu þjóðanna um
afnám allrar mismununar gagn-
vart konum (Kvennasáttmálans).
Nefndin undirbýr nú fund þar sem
fulltrúar íslenska ríkisins munu
sitja fyrir svörum um framkvæmd
Kvennasáttmálans.
Ísland hefur trónað á toppi lista
Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World
Economic Forum) síðustu ár og
má því segja að Ísland standi öðr-
um þjóðum framar hvað viðkemur
jafnrétti kynjanna, enda hæla
stjórnvöld sér oft af því á al-
þjóðavettvangi. En hvað þýðir það
í stóra samhenginu? Þýðir það
ekki að við þurfum að vera öðrum
þjóðum fyrirmynd og passa að við-
halda og bæta jafnrétti hér á landi
á sama tíma og við styðjum við
aðrar þjóðir?
Ísland undirritaði Kvennasátt-
málann árið 1980, en hann var
ekki fullgiltur af Alþingi fyrr en
1985 eftir mikinn þrýsting frá
kvennasamtökum. Með fullgild-
ingu skuldbinda íslensk stjórnvöld
sig til þess að fara eftir sáttmál-
anum bæði við lagagerð og þegar
mál fara fyrir dómstóla. Nú erum
við vissulega með sterk jafnrétt-
islög á Íslandi en samningurinn
hefur þó ekki verið að fullu inn-
leiddur í íslenska löggjöf. Þrátt
fyrir að dómstólar eigi að horfa til
alþjóðlegra sáttmála þegar dómar
eru felldir sjáum við það ítrekað
að það virðist gleymast og ein-
göngu sé farið eftir íslenskum lög-
um, sem ekki eru jafn sterk og
Kvennasáttmálinn þegar kemur að
mismunun gagnvart konum.
Sem dæmi um það má nefna þá
gagnrýni sem við setjum fram í
skuggaskýrslunni
sem nú hefur verið
send til CEDAW-
nefndarinnar.
Í 5. gr. sáttmálans
kemur m.a. fram að
aðildarríkin skuli
gera allar viðeigandi
ráðstafanir til að
breyta félagslegum
og menningarlegum
hegðunarvenjum
karla og kvenna með
það fyrir augum að
takast megi að upp-
ræta fordóma og venjur sem
byggjast á hugmyndinni um van-
mátt eða ofurmátt annars hvors
kynsins eða á viðteknum hlut-
verkum karla og kvenna. Enn er
náms- og starfsval kynjanna kyn-
bundið hér á landi. Ábyrgð á
heimilum og börnum er enn oft á
herðum kvenna og hér ríkja enn
ákveðnar hugmyndir um það hvað
hvoru kyni um sig leyfist, sem
m.a. birtast í starfs- og námsvali.
Það þarf samstillt átak stjórn-
valda til að bæta úr þessu. Til
þess þarf t.d. að gera kynjafræði
að skyldufagi á öllum skólastig-
um, eins og kemur fram í skugga-
skýrslunni.
Í 6. gr. sáttmálans er áhersla á
að koma í veg fyrir mansal og
vændi sem hefur fengið mjög
aukið vægi á síðustu árum, en
þrátt fyrir það eru ekki nægileg
úrræði fyrir konur í vændi eða
sem lenda í mansali. Samkvæmt
Eurostat jókst vændi gríðarlega á
árunum 2016-2019 á Íslandi, en
þrátt fyrir það er ekki nægilegt
fjármagn hjá lögreglu til þess að
rannsaka mansal á konum eða til
að aðstoða þær sem lenda í því.
Samtökin hvetja því stjórnvöld í
skuggaskýrslunni m.a. til að auka
fjármagn til lögreglunnar til þess
að rannsaka þetta og koma í veg
fyrir mansal á Íslandi, sem og
köllum við eftir auknu fjármagni
til að styðja við þolendur.
Það er ekki einungis mikilvægt
fyrir jafnrétti á Íslandi að sátt-
málinn sé innleiddur að fullu hér-
lendis, heldur skiptir það einnig
máli á alþjóðaskala. Við höfum
ekki náð jafnrétti fyrr en jafnrétti
hefur verið náð alls staðar. Reglu-
lega fá íslenskar kvennahreyfingar
gagnrýni fyrir að vera of kröfu-
harðar, því jafnrétti sé mun verra
í öðrum löndum og megum við því
prísa okkur sælar hérlendis. Þar
komum við að ábyrgð Íslands sem
þess lands sem trónar á toppi
allra lista yfir kynjajafnrétti í
löndum. Með því að innleiða
Kvennasáttmálann í íslensk lög
sýnum við í verki að við virðum al-
þjóðaskuldbindingar, tökum jafn-
rétti kynjanna alvarlega og styðj-
um um leið við það að styrkja
jafnrétti á heimsmælikvarða því
það er mikilvægt að það sé sam-
ræmi í lögum um jafnrétti á milli
landa. Því fleiri lönd sem innleiða
sáttmálann, því nær erum við að
ná jafnrétti.
Framkvæmd Íslands á Kvenna-
sáttmálanum verður tekin fyrir á
fundi nefndarinnar í Genf í febr-
úar 2023. Í skuggaskýrslu samtak-
anna er bent á hvað betur má fara
í starfi íslenska ríkisins til að út-
rýma mismunun gagnvart konum
og hafa þau því enn tækifæri til
þess að gera betur áður en staða
Íslands gagnvart sáttmálanum
verður tekin fyrir í febrúar. Mun
fulltrúi samtakanna sem skrifuðu
skuggaskýrsluna einnig ávarpa
undirbúningsnefnd fundarins hinn
4. júlí þar sem farið verður ít-
arlegar í þau atriði sem fram
koma í skuggaskýrslu samtak-
anna.
Af hverju skiptir
kvennasáttmálinn máli?
Eftir Rut
Einarsdóttur » Það er ekki einungis
mikilvægt fyrir jafn-
rétti á Íslandi að sátt-
málinn sé innleiddur að
fullu hérlendis, heldur
skiptir það einnig máli
alþjóðlega.
Rut Einarsdóttir
Höfundur er framkvæmdastýra
Kvenréttindafélags Íslands.
rut@krfi.is
Styrjöld í kjölfar
heimsfaraldurs var
ekki það sem veröldin
þurfti á að halda.
Hvorki frá sjónarhóli
mannúðar né efna-
hags. Áhrif endur-
innrásar Rússlands í
Úkraínu verða sífellt
ljósari, á sama tíma
og ákveðinn doði virð-
ist færast yfir athygli
okkar á daglegum framgangi
stríðsins. Mannfall, hörmungar og
eyðilegging eru daglegt brauð. Ár-
angur árásaraðilans er takmark-
aður en seiglast þó áfram í krafti
virðingarleysis fyrir mannslífum
og eigum. Yfirtaka skal takast,
jafnvel þótt það verði á við-
brenndri auðn.
Alþjóðavæðingin endurmetin
Mörg gerðum við okkur ekki
grein fyrir mikilvægi Úkraínu í því
að brauðfæða veröldina. Að þar
væru að auki framleiddir íhlutir
fyrir bifreiðaframleiðslu og fram
færi mikilvæg hráefnavinnsla, sem
aftur væri nýtt til lykilframleiðslu
annars staðar í veröldinni. Sama á
við um Rússland, en þegar stríðs-
rekstur og viðskiptabann fara sam-
an verða keðjuverkandi áhrif á að-
fangakeðjur um alla
heimsbyggðina.
Árásarstríð Rússlands hefur nú
staðið í næstum fjóra mánuði og
lok þess ekki fyrirsjáanleg. Lítil
ástæða er til bjartsýni. Áhrif á að-
fangakeðjur, hráefnisverð og verð-
bólgu eru tilfinnanleg og skortur
er farinn að gera vart við sig á
ýmsum nauðsynjavörum. Afleidd
hungursneyð í þróunarríkjum er
því miður fyrirséð. Heimskreppa
gæti verið yfirvofandi, eða a.m.k.
tilfinnanlegur samdráttur hag-
vaxtar. Töpuð tækifæri og brostn-
ar vonir alls staðar.
Á móti þessu vegur aðlög-
unarhæfni manns og markaðar.
Bæði stríð og heimsfaraldur hafa
haft þau áhrif að mörg fyrirtæki á
Vesturlöndum endurmeta nú
hversu háð þau vilja vera aðföng-
um og undirframleiðslu á fjar-
lægum mörkuðum, þar sem erfitt
er að treysta á stjórnmálalegan og
efnahagslegan stöðugleika. Einnig
hvort verjandi sé að vera of háð
sambandi við lönd þar sem mann-
réttindi og lýðræði eru virt að
vettugi. Alþjóðavæðing undanfar-
inna áratuga, sem leitt hefur af sér
verulegt hagræði, er þannig komin
undir mæliker.
Jákvæð áhrif á efnahag,
en óvissan mikil
Sem betur fer stendur Ísland
um margt vel að vígi við þessar
aðstæður vegna sjálfstæðis í orku-
öflun og takmarkaðra viðskipta-
tengsla við Rússland, Hvíta-
Rússland og Úkraínu. Sem fyrr
virðist stríð á fjarlægri strönd hafa
jákvæð áhrif á okkar helstu út-
flutningsatvinnugreinar m.a. vegna
þess mikla viðskiptakjarabata sem
uppsveifla hráefnisverðs á erlend-
um mörkuðum hefur skilað fyrir
sjávarafurðir okkar og iðnvarning.
Ferðaþjónustan blómstrar nú sem
aldrei fyrr, enda ímynd þess að
vera talið eitt öruggasta og frið-
sælasta ríki heims sterk söluvara í
viðsjárverðum heimi. Samhliða því
má búast við að þrátt
fyrir viðvarandi átök
muni alþjóðamarkaðir
leita í átt að ákveðnu
jafnvægi.
Alþjóðlega sjást
merki þess að hús-
næðisverðbólga sé í
rénun, en ofris fast-
eignamarkaðar hefur
langt í frá verið sér-
íslenskt fyrirbæri. Ol-
íu- og gasverð er enn
hátt, en af þeim mörk-
uðum gæti verið tíðinda að vænta,
sérstaklega ef heimsókn Banda-
ríkjaforseta til Sádi-Arabíu og hins
hviklynda krónprins þar ber ár-
angur. Óvissa um efnahagshorfur
hér á landi er engu að síður veru-
leg og útkoman ræðst af fram-
vindu mála á alþjóðavísu. Sögulega
séð hefur Ísland verið eins og lauf
í vindi þegar kemur að efna-
hagsþróun á heimsvísu en á móti
vegur að staða þjóðarbúsins er
mun sterkari en áður.
Stöðugleikinn er
vandasamt verkefni
Að tryggja stöðugleika í þeim
stormi sem nú geisar er vanda-
samt verkefni og krefst mikils af
stjórnvöldum og aðilum vinnu-
markaðar. Þó eru ýmsir mögu-
leikar til þess að halda áfram veg-
inn m.a. hvað varðar ýmsar
umbætur. Við getum prísað okkur
sæl að vera komin jafn langt á veg
og raun ber vitni í nýtingu end-
urnýjanlegra orkugjafa. En betur
má ef duga skal. Full ástæða er til
að gera enn betur í orkuskiptum
og ekki má sjá ofsjónum yfir
meintu tekjutapi ríkisins tengt raf-
væðingu bílaflotans. Þar vegur á
móti framlag til loftslagsmála og
minni þörf á innfluttu eldsneyti.
Hnykkjum frekar á og gerum bet-
ur. Skattheimtu má aðlaga og
horfa til annarra þátta.
Á móti kemur að tengt breyttri
heimsmynd má gera ráð fyrir
auknum útgjöldum til öryggis- og
varnarmála. Það er fyrirsjáanlegt
en stjórnvöld hafa þar litlu deilt
með þingi og þjóð hvað gæti verið
í farvatninu. Um það þarf opna
umræðu og gagnsæi. Við eigum
einnig að sýna stuðning í verki við
Úkraínu eftir bestu getu, ásamt
því að sýna áfram rausn í þróun-
araðstoð. Okkur ber einfaldlega
skylda til þess.
Þótt sumarið hér á norð-
urslóðum hafi farið vel af stað og
veðrið leikið við okkur þurfum við
að nýta það vel til undirbúnings
fyrir þær áskoranir sem við stönd-
um þegar frammi fyrir. Margt af
því mun hafa bein áhrif á kjara-
viðræður vetrarins. Þar væri
forsjá án efa betri en kapp. Að
koma í veg fyrir átök á vinnu-
markaði sem erfitt verður að vinda
ofan af ætti að vera okkur öllum
meginmarkmið. Til þess að svo
megi verða þurfum við öll að
leggja okkur fram, framverðir
verkalýðshreyfingar, fulltrúar at-
vinnurekenda og stjórnvöld.
Eftir Friðrik
Jónsson
» Formaður BHM
skrifar um núver-
andi heimsmynd og
stöðugleika.
Friðrik Jónsson
Höfundur er formaður BHM.
Úkraína, alþjóða-
kreppa og Ísland
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG PÍPARA?