Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 Stærðir: 27-39 Verð: 6.995.- Vnr. BIS-92004 Stærðir: 27-38 Verð: 6.995.- Vnr. BIS-92004 Stærðir: 20-37 Verð: 6.995.- Vnr. BIS-92001 Stærðir: 20-37 Verð: 6.995.- Vnr. BIS-92001 - vönduð og falleg stígvél STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Það hefur, í raun og veru, aldrei verið sett upp sérstök sýning á mannamyndum og portrettmynd- um Kjarvals,“ segir Aðalsteinn Ingólfsson, sýningarstjóri mynd- listarsýningarinnar Andlit úr skýj- um – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals, sem opnuð verður í dag á Kjarvalsstöðum og er einmitt helg- uð manna- og portrettmyndum þess mikla meistara. Aðalsteinn segir að viðfangsefnið hafi því leg- ið vel fyrir og það hafi verið hans hugmynd að draga saman bestu mannamyndir, portrettmyndir og andlitsmyndir Kjarvals og sýna þær í einhverju samhengi. Aðalsteinn er spurður hvort hann hafi þurft að finna nýjan vinkil á þessi verk, í ljósi þess hversu vel þjóðin þekkir orðið verk Kjarvals. „Hafandi viðfangsefnið á tæru var aðalmálið að finna kannski ný verk eða verk sem fólk þekkti ekki, nýjan vinkil, það var aðalhausverkurinn,“ svarar hann. Úr raunsæi yfir í fantasíu En kom Aðalsteini eitthvað á óvart við skoðun þessara verka Kjarvals? „Jú, jú, Kjarval kemur manni stöðugt á óvart. Það voru verk sem ég hafði ekki hugmynd um og fann bara í gegnum tengsl við eigendur og áhugamenn um Kjarval, með því að elta uppi alls konar vísbendingar og upplýsingar um hver ætti hvað,“ svarar Aðal- steinn og líkir þeirri rannsókn við lögregluvinnu. Aðalsteinn segist ekki hafa gert neinar nýjar upp- götvanir varðandi listræna þróun listamannsins en segir augljósa ákveðna þróun í mannamyndum frá frekar hefðbundnu raunsæi, þ.e. að teikna fólk eins og það kemur fyrir í veruleikanum yfir í myndir þar sem fantasía er meira áberandi og hugarflug. „Á end- anum eru komnar myndir sem eiga að vera af fólki en líkjast alls ekki fólkinu. Myndirnar bera nafn þeirra en okkur flestum finnst þær ekkert líkjast þeim. Þá er það vegna þess að flestar myndanna hans eru ekki af fólki heldur um það, hvað honum finnst um þetta fólk,“ útskýrir Aðalsteinn. „Hann notar gjarnan landslag til að lýsa fólkinu, er kannski með mynd af einhverjum svipmiklum og sterk- um karakter og notar þá kannski björg eða eitthvað merkilegt og massíft úr náttúrunni til að lýsa manninum. Hann er eins og nátt- úran,“ heldur Aðalsteinn áfram. Þetta sé þróunin hjá Kjarval, hann fari að breyta út af því sem hann sjái og leggja meiri áherslu á eigin hugmyndir og fantasíur. Vildi heldur teikna og mála alþýðufólk Sýningin er í einum sal Kjar- valsstaða og eitthvað á annað hundrað myndir til sýnis, að sögn Aðalsteins. Þeirra á meðal eru mannamyndir sem Kjarval vann á Ítalíu og myndir af íslensku alþýðufólki. „Það var hans fólk,“ segir Aðalsteinn um alþýðufólkið fyrir austan og að Kjarval hafi haft mun meiri ánægju af því að teikna slíkt fólk en fyrirmenni í Reykja- vík. En hvernig stendur á því að fyrst núna er haldin sýning á mannamyndum Kjarvals? „Þetta er eitthvað út af því að hann hefur þennan sess meðal Íslendinga sem landslagsmálari númer eitt, tvö og þrjú. Fólk á erfitt með að tala um hann sem mannamyndamálara en svo kemur í ljós að það sem gerist í þessum myndum er að hann teng- ir saman íslenskt landslag og mannamyndir,“ svarar Aðalsteinn. Sýningin verður opnuð kl. 20 í kvöld. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sýningarstjóri Aðalsteinn við þrjú verka Kjarvals á sýningunni Andlit úr skýjum - mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals, á Kjarvalsstöðum. Kjarval kemur stöðugt á óvart - Sýning helguð mannamyndum Kjarvals opnuð á Kjarvalsstöðum - Mynd- irnar ekki af fólki heldur um það, segir sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson Bóndi Ein af stórkostlegum mannamyndum Kjarvals, „Björn Jóhannsson bóndi“ frá 1927, verk í einkaeigu. Á annað hundrað mynda verða til sýnis. Fold uppboðshús og fornbóka- verslunin Bókin standa fyrir bóka- uppboði á vefnum og eru að þessu sinni boðnar upp óvenjulega marg- ar fallegar bækur þar sem fagurt handverk færustu bókbandsmanna fær að njóta sín, eins og segir í til- kynningu. „Ríflega 100 númer eru boðin upp að þessu sinni. Má þar nefna sérstaklega sjaldgæfa útgáfu af Eyrbyggju frá 1897, verk sem er útgefið í Halle í Saxlandi. Þá verða boðnar upp Noregskonungasögur, góð eintök í ágætu bandi. Einnig er vert að nefna frumútgáfu verka Stephans G. Stephanssonar, sem komu út rétt um þar síðustu alda- mót, en verkið er hér í heild sinni og var prentað og gefið út í Vestur- heimi og hér á Íslandi. Hér er að finna öll bindin og góð eintök,“ seg- ir m.a. í tilkynningu og að þjóðsög- ur og þjóðsagnatengt efni sé nokk- uð fyrirferðarmikið á uppboðinu sem og ljóðabækur. Megi þar nefna sérstaklega eina bók eftir Davíð Stefánsson sem hafi ritað sérstakan miða eigin hendi með bókinni sem fylgi henni og sé einnig undirrit- aður af Davíð. Eitt elsta og fágætasta verkið er bók sem kom út 1629, De Regno Daniæ et Norvegiæ, en í henni kem- ur í fyrsta sinn grein Arngríms lærða um Ísland á prenti. Þá eiga Þórbergur Þórðarson og Halldór Laxness báðir frumútgáfur á upp- boðinu sem stendur yfir til sunnu- dagsins 26. júní. Fagurt handverk og fágætar bækur Skáld Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Skuggatríó Sig- urðar Flosasonar saxófónleikara leikur í forsal Sal- arins í Kópavogi í dag, fimmtudag, kl. 17. Tríóið er auk Sigurðar skipað heiðurs- listamanni Kópa- vogsbæjar, ham- mond-orgelleikaranum Þóri Baldurssyni, og trommuleikaranum Einari Scheving. Munu félagarnir þrír flytja „göróttan kokteil gríp- andi og skemmtilegrar tónlistar á mörkum djass og blús“, eins og segir í tilkynningu. Segir þar að mörg lag- anna hafi komið út á rómuðum plöt- um hópsins í blúsuðum djassstíl. Aðgangur er ókeypis. Skuggatríó Sig- urðar á Sumarjazzi Sigurður Flosason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.