Morgunblaðið - 16.06.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Fyrir Alþingi hafa komið frumvörp
um áfengissölu og gengið misvel.
Meðal annars var leitað umsagnar
Áfengis- og tóbaksverslunar rík-
isins, en Ívar J. Arndal, forstjóri
ÁTVR, fann auknu
frjálsræði í þeim
efnum flest til for-
áttu, enda telur
hann sérhvert skref
í þá átt grafa undan
einkarétti ÁTVR til
smásölu með áfengi.
Það er eðlilegt að
leita álits stofnana á
auknum verkefnum, breyttu verk-
lagi og umhverfi eða fjárhags-
legum afleiðingum lagabreytinga,
en þær eiga ekki að reyna að svara
pólitískum álitaefnum fyrir löggjaf-
ann. Um slíkt á aðeins Alþingi að
fjalla.
- - -
Það er þó hátíð hjá hinu, þegar
stöku forstöðumenn og stofnanir
hins opinbera beita fjárlaganefnd
og Alþingi þrýstingi með fjölmiðla-
herferðum í fjárlagavinnunni, þar
sem upp koma árviss, skipulögð
neyðarástönd af ýmsu tagi. Það er
óþolandi og rétt að draga úr fjár-
veitingum til yfirstjórnar og veita
viðkomandi áminningu (og leysa
frá störfum láti þeir sér ekki segj-
ast) fyrst þeir hafa tíma og peninga
í ólýðræðislega undirróðurs-
starfsemi af því tagi.
- - -
Hvers vegna er liðið að stofnanir
eða fyrirtæki hins opinbera séu að
skipta sér af störfum löggjafans
með þessum hætti? Það er ekki í
verkahring stofnana að hlutast til
um grundvöll sinn, hlutverk eða
markmið, hvað þá að segja þinginu
fyrir verkum. Vilji forstöðumenn-
irnir skipta sér af pólitík eiga þeir
að skipta um starfsvettvang og
bjóða sig fram í stað þess að kaupa
viðamiklar álitsgerðir, lögfræðiálit
og otun um eigið mikilvægi, eins og
þeir séu hagsmunaaðilar. Allt auð-
vitað á kostnað skattgreiðenda,
sem alltaf fá að borga brúsann.
Ívar J. Arndal
forstjóri ÁTVR
Ríkið í ríkinu
gegn ríkinu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Hópur vísindamanna og annars
starfsfólks sem stendur að um-
fangsmiklum innviðaverkefnum
við Háskóla Íslands tók við svo-
nefndum ársfundarverðlaunum
skólans í hátíðarsal aðalbygg-
ingar í gær að viðstaddri Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur, há-
skóla-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra.
Innviðirnir snerta vísindastarf
á öllum fræðasviðum skólans.
Verðlaunin voru nú afhent í
fjórða sinn en þau eru veitt ár-
lega á ársfundi skólans til hópa
eða teyma sem þykja hafa sýnt
sérstakt frumkvæði og forystu
við uppbyggingu framúrskarandi
starfs innan skólans. Handhafar
ársfundarverðlauna HÍ eru valdir
í sameiningu af rektor og for-
setum allra fimm fræðasviða Há-
skóla Íslands. Átta aðilar fengu
verðlaun að þessu sinni.
Verðlaun fyrir vísinda-
starf í Háskóla Íslands
Ljósmynd/Háskóli Íslands
Verðlaun Handhafar verðlauna Háskóla Íslands ásamt Jóni Atla rektor og
Áslaugu Örnu, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Eldur Ólafsson er á stöðugum þeyt-
ingi milli Bretlands, Íslands, Græn-
lands og Kanada. Það krefst mikils
undirbúnings að ræsa að nýju aflagða
gullnámu í Grænlandi. Fyrirtæki
hans, sem þar til í dag nefndist AEX
Gold, en heitir nú Amaroq Minerals,
hefur uppi stórtæk áform um gull-
vinnslu á stærstu eyju veraldar en þau
ná ekki aðeins til hins glóandi málms
heldur einnig silfurs og jarðefna sem í
dag eru lífsnauðsynleg til framleiðslu
rafhlaðna í Teslur og aðra rafknúna
bíla. Þessir málmar eru því forsendan
fyrir orkuskiptunum sem kallað er
eftir.
Eldur er gestur Dagmála í dag og
ræðir þar tilurð fyrirtækisins og
hvernig hann hefur flækst milli landa,
m.a. alla leið til Kína þar sem hann
kom að uppbyggingu jarðvarmavirkj-
ana. Hann er kvæntur og þriggja
barna faðir, búsettur í Vesturbænum,
en vegna gullleitarinnar þarf hann að
sinna skyldum bæði vestan- og
austanhafs. Af lýsingum hans að
dæma er einskonar gullæði í farvatn-
inu á Grænlandi en æðið tengist ekki
síður fyrrnefndum góðmálmum. Hann
bendir á að það sé ekki tilviljun að Jeff
Bezos og Bill Gates líti nú til tækifæra
á Grænlandi. Þar sé næsta stóra sókn
í þessi mögnuðu efni. Þar liggja tæki-
færi Grænlendinga en einnig fyrir-
tækja á borð við Amaroq Minerals.
Líkt og Eldur lýsti fyrir blaðamanni
Morgunblaðsins um liðna helgi gætu
tækifærin einnig verið Íslendinga, sé
rétt á málum haldið og komið fram af
virðingu við Grænlendinga.
Gullvinnslan mun
hefjast á næsta ári
- Áætlað magn í
jörðu hefur aukist
að undanförnu
Leit Eldur Ólafsson er jarðfræð-
ingur. Hann stofnaði Amaroq M.