Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 ✝ Kristín Re- bekka Ein- arsdóttir (Didda) fæddist 22. maí 1935 á Ísafirði. Hún lést á Skógarbæ 5. júní 2022. Foreldrar Krist- ínar voru Einar Þorbergsson og Sigríður Valdi- marsdóttir. Kristín ólst upp á Ísafirði ásamt systkinum sínum þeim Valdimari, Camillu, Salvari, Braga, Bryndísi, Birnu og Ein- ari S., tvö þau síðastnefndu eru á lífi. Á Ísafirði vann Kristín ýmis störf, síðast hjá Landsbank- anum sem ritari bankastjóra. Árið 1955 kynnist hún Guð- mundi Tryggva (Mugg) frá Hnífsdal, eiginmanni sínum. Foreldrar hans voru Sigurður Sveins Guðmundsson og Aðal- heiður Tryggvadóttir. Didda og Muggur gengu í hjónaband á jóladag 1957 og bjuggu lengst af í Hnífsdal en fluttu til Hvammstanga 1990 þar sem Muggur tók við Rækju- verksmiðjunni Meleyri. Árið Leo. Tryggvi Snær, f. 1995, sambýliskona hans er Dagrún Ósk Jónasdóttir. Faðir þeirra var Guðmundur Jónas Jóhanns- son, f. 1959, d. 1998. Eiginmaður Aðalheiðar Önnu er Jón Ingi Björnsson, f. 1958. Synir hans eru Ingólfur Rúnar, f. 1987, og Jakob Helgi, f. 1992. Sambýl- iskona Ingólfs er Þóra Lind Þórsdóttir og eiga þau börnin Jón Þór og Ingu Rún. Kristín var mjög virk í félags- störfum og var heimili þeirra gestkvæmt. Í Hnífsdal var hún í stjórn kvenfélagsins Hvatar, söng með kirkjukórnum, stofn- aði ljósálfadeild skáta ásamt vinkonu sinni og var til margra ára í saumaklúbbi. Þegar hún fluttist á Hvammstanga söng hún með kirkjukórnum, gekk í kvenfélag og saumaklúbb og eignaðist þar marga góða vini. Eftir að hún flutti til Reykjavík- ur gekk hún í kvenfélag Graf- arvogskirkju. Kristín var gagnfræðingur, mjög námfús og sótti sér t.d. menntun í ensku bæði í Mennta- skólanum á Ísafirði og bréfa- skóla og kom málakunnátta hennar sér vel á ferðalögum þeirra hjóna. Hennar helstu áhugamál fyrir utan félagsstörf- in voru lestur, útsaumur, kross- gátur og ferðalög. Úför hennar verður gerð frá Seljakirkju í dag, 16. júní 2022, klukkan 13. 2000 flytjast þau til Reykjavíkur til að vera nær börnum sínum og barna- börnum. Þau eign- uðust þrjá dætur: 1) Bjarnveig Brynja, f. 1957, en synir henn- ar og Ásbergs Pét- urssonar, fyrrver- andi eiginmanns hennar, eru Guð- mundur Tryggvi, f. 1978, sambýliskona hans er Vig- dís Theódórsdóttir. Hann á tvær dætur, þær Ellý Rebekku og Emmu Elísabetu. Kristján, f. 1984, eiginkona hans Natty Gmds, börn þeirra eru Diana Mia og Máni Matikun. Unnusti Brynju var Jón Valgeir Gíslason, f. 1959, látinn 2014. 2) Dóttir, f. 1959 og lést hún samdægurs. 3) Aðalheiður Anna, f. 1962. Synir hennar eru þrír: Úlfar Óli, f. 1981, sonur Sævars Óla Hjörvarssonar. Sambýliskona Úlfars er Laufey Ágústsdóttir og eiga þau Viktoríu Önnu, Mar- gréti Ólöfu og Ágúst Ými. Jó- hann Tómas, f. 1989, eiginkona hans er María Rosario Blöndal og eiga þau soninn Guðmund Að kveðja mömmu sína er sárt, þótt ég hafi verið svo lánsöm að eiga hana í tæp 65 ár. Mamma var rétt orðin 87 ára og síðustu árin hafði hún verið heilsutæp. Kvartaði aldrei og sagði alltaf allt gott. Mamma var klár og skemmti- leg kona, hafði sína sérstöku siði að manni fannst. Hún var sann- kölluð B-manneskja. Hún fór hægt af stað inn í daginn, fletti af handahófi í Nýja testamentinu og las eina ritningargrein og svo draumráðningabókina. Eftir þetta var kominn tími á kaffi og sígó. Hún hélt því alltaf fram að hún reykti bara 3-4 á dag, ekki ætla ég að skemma það fyrir henni, því hinar hafa sjálfsagt bara brunnið upp meðan hún las blöðin eða réð krossgátu. Mamma las mikið en hún las öðruvísi en flestir. Alltaf einn kafla á íslensku og einn á ensku og svo voru það dönsku blöðin. Einn dag í viku eldaði hún eftir uppskrift úr Feminu, svona til að fá tilbreytingu í eldamennskuna, því henni fannst hreint ekki gam- an að elda mat og hrærði oft í pottunum með bók í hendi. Hún var mjög félagslynd og var bæði í kvenfélögum, kirkju- kórum og saumaklúbbum, orð- heppin og skemmtilega utan við sig. Hún skráði allt á tossamiða, stundum bara stikkorð sem þurfti svo að finna út úr hvað þýddi. Þessi siður vakti oft mikla kátínu. Við áttum mjög margar góðar stundir saman á ferðalögum er- lendis og hér heima. Þegar ferðast var í bíl var sungið. Það voru vísur eins og „Ég langömmu á“ og „Í dag kom hann Ingólfur Arnar“, ásamt mörgum öðrum. Hún var bara svo kát og skemmtileg. Hún hafði aldrei þörf fyrir að fara út að hreyfa sig. Það áttum við erfitt með að skilja. Það sem hún fór fór hún á bíln- um. Hún var afleitur bílstjóri og lagði bílnum alltaf þannig að hún þyrfti helst ekki að bakka, tók frekar aukahring. Eitt sinn var hún stoppuð af lögreglunni í Króknum á Ísafirði. Lögreglan kom að bílnum og ávítti hana fyr- ir of hraðan akstur. Hún sagði: „Ég hægði nú strax á mér þegar ég sá ykkur.“ „Nei,“ sagði lög- regluþjónninn, „þú jókst hrað- ann.“ „Æ, þá hef ég stigið á vit- lausan pedala.“ Mamma og pabbi voru góðir dansarar og dönsuðu við hvert tækifæri. Oft var Pres- ley settur á fóninn og pabbi bauð sinni upp í dans. Þau voru af tjúttkynslóðinni. Takk fyrir allar okkar gleði- stundir. Á Skógarbæ söngluðum við oft saman. En svo fór sjónin og krafturinn, orkan var ekki meiri en það að segja: „Brynja mín, ertu komin? Það er gott.“ Svo kom stutt þögn. „Haltu í höndina á mér. Hvenær kemur pabbi þinn?“ Þá hafði hann rétt brugðið sér frá, blessaður karlinn. Pabbi hefur annast sína konu á aðdáunarverðan hátt í hennar heilsuleysi. Hún var lánsöm að eiga hann Mugg sinn, og starfs- fólkið á Skógarbæ kallaði þau turtildúfurnar og eiga þau miklar þakkir skildar fyrir alla þá vænt- umþykju sem þau sýndu þeim. En elsku mamma mín. Nú er kominn tími á að þakka og kveðja. Ég bið guð að geyma þig og allar góðar minningar verða varðveittar í ótal sögum sem ég og synir mínir getum rifjað upp um hana Diddu ömmu, með lang- ömmubörnunum sem líka sakna ömmu Diddu. Góða ferð. Þín Brynja. Maður man ekki eftir ömmu Diddu öðruvísi en að hafa verið ávallt létt í lund að dunda sér við krossgátu eða púsluspil. Við strákarnir vorum alltaf duglegir að heimsækja þau hjónin, og það kom fyrir að afi Muggur var á einhverju flakki, en þá var amma Didda ekki lengi að skora á mann í rommý. Leynibragðið hennar ömmu var alltaf að halda spilun- um lengi á hendinni, safna í góðar runur og loka í einu bragði. Hún var ekkert að draga úr getu sinni þó að við værum að stíga okkar fyrstu skref í spilamennskunni, en það gerði rimmurnar svo skemmtilegar og var alltaf mark- miðið okkar að ná loksins að vinna. Ef það tókst ekki við fyrstu 500 stig, þá fengum við að framlengja í 1.000 stiga leik. Hún hafði nefnilega endalausa þolin- mæði fyrir okkur, sem sýndi sig best þegar hún keppti við okkur í lönguvitleysu. Amma var alltaf blíð og góð við okkur strákana og það er mikill söknuður að henni. Ömmustrák- arnir: Jóhann Tómas Guðmunds- son, Tryggvi Snær Guðmundsson og Úlfar Óli Sævarsson. Enginn má sköpum renna og enn fækkar í systkinahópnum. Það virtust aldrei vera nein þrengsli á gamla bernskuheim- ilinu okkar á Ísafirði þrátt fyrir barnamergð, þótt húsið Fjarðar- stræti 27 hefði reyndar bara ver- ið rúmir 60 fermetrar að stærð. Engu að síður ávallt nægt hús- rými þegar gesti bar að garði. Samfylgd okkar systkina spannar yfir átta áratugi. Því er margs að minnast frá liðinni langri tíð. Saman höfum við svo sannarlega upplifað tímana tvenna. Mesta umbreytingaskeið í lífsháttum þjóðarinnar frá upp- hafi vega og raunar heimsins alls. Við vorum átta systkinin, 4 drengir og 4 stúlkur. Ég var ör- verpið og ólst upp með þremur systrum og vildi fá að vera með slaufu í hárinu eins og þær. Flest hin eldri voru farin að heiman þegar ég fór að muna eftir mér. Didda systir eða Didda Stína brúðumamma, eins og hún var þá stundum kölluð, var mín aðalfyr- irmynd. Síðar þekkt sem Didda Muggs, kennd við eiginmann sinn, athafnamanninn Guðmund Tryggva Sigurðsson, eins og títt var um aðrar konur í Hnífsdal. Mér er enn í fersku minni hvað hún var ávallt umhyggjusöm og passaði litla bróður sinn vel ef hættu bar að höndum og gætti þess vandlega að hann færi sér ekki að voða. Ævinlega svo góð og blíð, sem mótaði viðmót henn- ar alla tíð gagnvart fjölskyldu sinni og öllum vinum hennar og ættingjum. Didda systir var mjög eftir- minnileg og hress kona, ævinlega létt í lund og með bros á vör á hverju sem gekk. Lífsgleðin skein alltaf af þeim hjónum báð- um og smitaði úr frá sér til okkar hinna þegar fundum okkar bar saman, hvort heldur það var í litla húsinu þeirra, Strýtu í Hnífsdal, þar sem þau hófu bú- skap fyrir 66 árum, á Dalvegin- um, á Hvammstanga og svo síð- ustu tvo áratugina hér syðra. Orðheppin og skemmtileg var hún með afbrigðum. Taldi eitt sinn að það tæki því vart fyrir sig lengur að vera að baka, því bakk- elsið hyrfi alltaf strax eins og dögg fyrir sólu. Eitt sinn þegar hún var að fara í hárlagningu inn á Ísafjörð henti hana það óhapp að aka út af Hnífsdalsveginum. Það fór þó betur en á horfðist, hún rétt náði í tæka tíð og kvað það mikið lán í óláni að ekki hefði verið búið að slétta á henni hárið áður en hún lenti í fjörunni. En líf hennar var samt ekki alla tíð dans á rósum og stundum reyndi mikið á þegar þung áföll dundu á fjölskyldunni hennar. Þar kom hin jákvæða og sterka skaphöfn hennar sér vel á erfið- um stundum. Síðustu árin hafa verið henni þung í skauti vegna lasleika, sem hefur reynt mikið á þau sem næst henni stóðu, Mugg og dæturnar og barnabörnin. Á árum áður voru það hin stóru fjölskylduboð, skírnir, fermingar, afmæli og jólaboð sem tengdu stórfjölskylduna saman og voru hinir miklu fagnaðar- fundir. En nú eru breyttir tímar, niðjar foreldra okkar orðnir vel á annað hundrað talsins og sam- skiptin með öðrum hætti. Engu að síður er það samheldnin, ást- úðin og gleðin í anda Diddu sem heldur ættartengslum okkar saman. Nú þegar leiðir skilur vil ég votta fjölskyldu hennar innilega samúð. Blessuð sé hin fagra minning Diddu systur. Einar S. Einarsson (Dúddi). Didda móðursystir mín var einstök mannkostamanneskja. Það voru mikil forréttindi okkar systkinanna fyrir sunnan að eiga þess kost að fara á sumrum og heimsækja ömmu og afa og fleiri ættingja á Ísafirði, og svo Diddu frænku og Mugg, hennar góða mann í Hnífsdal, fá að dveljast hjá þeim dögum saman fyrst í litla húsinu sem þau kölluðu Strýtu og svo uppi á Dalbraut eft- ir að þau voru búin að byggja þar. Þarna var gaman að leika sér með vestfirsku frændsystkinun- um og öðrum krökkum, í kring- um ána og upp með hlíðum. Didda var lík móður minni í útliti en glaðværari í skapi, líklega sú með léttasta lund af öllum systk- inunum og merkilegt er til þess að hugsa að enginn sá hana öðru- vísi en hún væri í góðu skapi. Það er sjónarsviptir að þannig fólki og samúð mín er hjá Muggi, Brynju og Önnu og þeirra afkom- endum. Einar Kárason. Kristín Rebekka Einarsdóttir ✝ Elín Sigur- geirsdóttir fæddist í Hreið- urborg í Flóa 21. febrúar 1922. Hún lést á Sól- völlum á Eyrar- bakka 8. júní 2022. Foreldrar hennar voru Sig- urgeir Ólafsson, f. 29. júlí 1883, d. 4. apríl 1970, og Sigurlín Bjarnadóttir, f. 20. júlí 1883, d. 5. júlí 1970. Systir Elínar var Jóna, f. 28. mars 1919, d. 19. september 2010. Elín var ógift og barnlaus. Hún vann ýmis störf, m.a. í Selfoss- bíói, var ráðskona, við netagerð en lengst við fiskvinnu á Eyrarbakka. Hún bjó í eigin húsi á Eyrarbakka þar til vorið 2021 er hún fór á Sólvelli. Útför Elínar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag, 16. júní 2022, klukkan 14. Elsku Ella okkar, eða Ella amma eins og við þekkjum þig best. Okkur hefur alltaf fundist við voða heppin að eiga þriðju ömm- una í þér. Við munum alltaf muna eftir hversu hörkudugleg kona þú varst, rífandi upp rabarbara 98 ára úr flotta garðinum þínum svo við náðum varla að halda í við þig. Þú ert fyrirmynd okkar og við vonum að við verðum jafn hress á eldri árum eins og þú varst. Við hlökkuðum alltaf til í hverri ferð til þín á Eyrarbakka að rýna í bókaskápinn þinn og gæða okkur á yndislegu kökun- um sem þú ein gast bakað. Gest- risnin var alltaf í fyrirrúmi og ekki getum við gleymt jólasúk- kulaðinu sem við vitum ekki hvernig við komast af án næstu jól. Við teljum okkur vera rosa- lega heppin að hafa fengið að fylgja þér í þessu lífi og okkur þykir vænt um hvað við fundum mikla ást og kærleika frá þér. Við munum ávallt elska þig og minnast þín. Þín barnabörn, Sigurður Skúli Sigur- geirsson og Brynja Pálína Sigurgeirsdóttir. Mig langar að minnast Elínar Sigurgeirsdóttur eða Ellu frænku eins og við kölluðum hana venjulega. Ella var móður- systir mín og bjó á Eyrarbakka frá 1944 er hún flutti þangað með foreldrum sínum og mömmu frá Hreiðurborg í hús sem heitir Björgvin. Ég kom nokkrum sinn- um á Bakkann sem krakki en ég kynntist Ellu þó ekki að ráði fyrr en ég fór Laugarvatn en þá heim- sótti ég hana stundum um helg- ar, þá ekki síst þegar mann lang- aði í góðan mat og kökur. En það brást ekki hvenær sem maður kom í heimsókn, þá var alltaf hlaðið borð af tertum og kökum. Eftir að ég flutti alveg suður urðu heimsóknir tíðari og þá kynntist ég Ellu betur. Það fór ekki alltaf mikið fyrir henni en hún var föst fyrir og lét engan ganga á sinn hlut og þegar ald- urinn færðist yfir fékk ég stund- um að aðstoða hana þegar reynt var að ganga á hennar hlut. Það varð fastur liður í tilver- unni að heimsækja Ellu reglu- lega og alltaf fast fyrir jólin og þá var sannkallað veisluborð. Eins var gott þegar gulræturnar fóru að vaxa því hvergi hef ég fengið eins góðar gulrætur og úr garð- inum hjá henni. Ella hringdi allt- af þegar henni þótti tímabært að við kæmum að ná í rabarbara hjá henni, sem við fengum á hverju ári. Og þá var rokið af stað og fenginn rabarbari. Hún sleit upp rabarbarann sjálf þótt hún væri orðin 98 ára, það kom ekki til greina að aðrir gerðu það. Og ekki óðu sveitarstjórnarmenn yf- ir hana, hún stóð á sínu. Tvennt sagði hún mér að hún hefði ætlað að gera þegar hún færi á eftirlaun og það var að kaupa tölvu og taka bílpróf en því miður varð ekki af því. Eftir að hún flutti á Eyrar- bakka bjó hún alltaf í sama hús- inu, Björgvin, allt þar til síðasta vor er hún fór á Sólvelli þar sem mjög vel var hugsað um hana. Einnig naut hún þess að eiga góða að og ber þar helst að nefna Diddu dóttur Olgu vinkonu Ellu til fjölda ára og Hafstein mann hennar, en þau veittu henni ómetanlega hjálp sem ber að þakka. Eins voru nágrannar hennar duglegir að rétta henni hjálparhönd ef á þurfti að halda, ekki síst hjónin í Vestur-Björg- vin. Sigurgeir Skúlason. Elín Sigurgeirsdóttir ✝ Eggert Egill Guðmundsson fæddist á Blöndu- ósi 21. mars 1937. Hann lést 29. maí 2022 á sjúkrahús- inu á Blönduósi. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónasson, f. 3. júní 1905, d. 6. feb 1988, og Efemía Sigurlaug Guðlaugsdóttir, f. 18. júlí 1904, d. 15. feb. 2004. Systk- ini Eggerts eru Sigurlaug Jóhanna Guð- mundsdóttir, f. 1. maí 1941, d. 21. nóv. 1941, og eft- irlifandi systir, Ingunn Guð- mundsdóttir, f. 10. mars 1943. Eggert starf- aði lengst af sinni starfsævi í bókhaldsþjón- ustufyrirtæki sem hann stofnaði á Blöndu- ósi, þar sem hann bjó til ævi- loka. Eggert frændi eða frændi eins og þú varst alltaf kallaður af okkur systkinunum frá Ási. Þá er komið að kveðjustund, en minningin um yndislegan frænda og allt það sem þú gerðir fyrir okkur krakkana með alls konar óvæntum gjöf- um og dekri lifir áfram með okkur. Þú hafðir svo mikið dá- læti á börnum og þér þótti svo gaman að gleðja þau og það tókst þér svo sannarlega með okkur systkinin. Hjá okkur bræðrum standa upp úr, að öðru ólöstuðu, veiðiferðirnar sem við fórum með þér, oftast í Blöndu eða Laxá í Refasveit. Þetta voru miklar ævintýra- ferðir sem oft eru rifjaðar upp og við munum lifa lengi á. Þar kenndir þú okkur réttu aðferð- irnar við að veiða í ám, sem var nýtt fyrir okkur. Auðvitað gekk veiðin misvel en alltaf vorum við jafn spenntir að mæta á bakkann með þér og svo var auðvitað alltaf brunað með okkur í veiðihléinu í Blönduskálann þar sem við máttum velja okkur eitthvað gott að borða, sem oftast var nú Blönduborgari og franskar. Það verður mikill söknuður að þér kæri frændi, þú verður okkur alltaf kær í minningum okkar. Þínir vinir og frændur, Bjarni (Baddi) og Guðmundur (Gummi). Eggert Egill Guðmundsson Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.