Morgunblaðið - 16.06.2022, Síða 58
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022
Besta deild karla
ÍBV – Víkingur R. .................................... 0:3
KR – ÍA ..................................................... 3:3
Staðan:
Breiðablik 8 8 0 0 25:8 24
Víkingur R. 10 6 1 3 22:16 19
Stjarnan 8 5 2 1 17:10 17
KA 8 5 1 2 12:6 16
KR 9 4 3 2 15:11 15
Valur 8 4 1 3 14:11 13
Keflavík 9 3 1 5 14:17 10
Fram 8 2 2 4 14:21 8
FH 8 2 1 5 12:15 7
ÍA 9 1 4 4 10:20 7
Leiknir R. 8 0 3 5 4:13 3
ÍBV 9 0 3 6 6:17 3
Lengjudeild kvenna
Augnablik – Fylkir ................................... 0:2
FH – Grindavík......................................... 6:0
Víkingur R. – HK ..................................... 2:1
Staðan:
FH 7 6 1 0 23:4 19
Víkingur R. 7 5 0 2 17:9 15
HK 7 5 0 2 14:8 15
Tindastóll 6 4 1 1 8:4 13
Fjarð/Hött/Leikn. 6 3 2 1 13:6 11
Grindavík 7 2 1 4 6:15 7
Augnablik 7 2 0 5 8:15 6
Fylkir 7 2 0 5 6:13 6
Haukar 6 1 0 5 4:13 3
Fjölnir 6 0 1 5 4:16 1
3. deild karla
KH – ÍH..................................................... 2:4
Staðan:
Sindri 6 4 1 1 14:9 13
Víðir 6 4 0 2 16:8 12
Dalvík/Reynir 6 4 0 2 13:8 12
KFG 6 4 0 2 12:8 12
Elliði 6 3 1 2 9:7 10
Augnablik 6 3 1 2 8:10 10
Vængir Júpiters 6 3 0 3 9:9 9
KFS 6 3 0 3 10:14 9
Kári 6 2 1 3 6:8 7
ÍH 7 2 0 5 17:18 6
Kormákur/Hvöt 6 2 0 4 10:13 6
KH 7 1 0 6 5:17 3
Noregur
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit
Aalesund – Rosenborg ............................ 1:2
- Selma Sól Magnúsdóttir kom inn á hjá
Rosenborg á 64. mínútu.
Grimstad – Vålerenga ............................ 0:1
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
Brann – Arna-Björnar ............................ 5:0
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék fyrstu
70 mínúturnar með Brann og skoraði.
Svava Rós Guðmundsdóttir lék fyrri hálf-
leikinn.
>;(//24)3;(
Körfuknattleiks-
deild Þórs frá
Þorlákshöfn hef-
ur samið við kan-
adíska framherj-
ann Alonzo
Walker um að
spila með liðinu á
næstu leiktíð.
Walker, sem er
26 ára, hefur
leikið sem at-
vinnumaður í Georgíu og Slóvakíu
síðan hann útskrifaðist úr Portland
State-háskólanum árið 2020.
Walker skoraði 13 stig, tók 11
fráköst og gaf tvær stoðsendingar
að meðaltali í leik fyrir Prievidza í
Slóvakíu á síðustu leiktíð.
Þórsarar urðu Íslandsmeistarar í
fyrsta skipti á síðasta ári eftir 3:1-
sigur í Keflavík í úrslitaeinvígi. Lið-
ið tapaði hinsvegar fyrir verðandi
Íslandsmeisturum Vals, 0:3, í
undanúrslitum Íslandsmótsins á
síðustu leiktíð.
Þórsarar
styrkja sig
Alonzo
Walker
Knattspyrna
Besta deild karla:
KA-völlur: KA – Fram...............................18
Kaplakriki: FH – Leiknir R .................19.15
Keflavík: Keflavík – Stjarnan...............19.15
Hlíðarendi: Valur – Breiðablik............ 20.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
SaltPay-völlurinn: Þór – Grótta................18
Würth-völlurinn: Fylkir – HK .............19.15
Grindavík: Grindavík – KV...................19.15
Framvöllur: Kórdrengir – Selfoss .......19.15
Vogar: Þróttur V. – Afturelding ..........19.15
2. deild karla:
Sandgerði: Reynir S. – Þróttur R. .......19.15
3. deild karla:
Fífan: Augnablik – Kári.............................18
Dalvík.: Dalvík/Reynir – Korm./Hvöt .19.15
Fjölnisvöllur: Vængir Júpíters – Víðir19.15
2. deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – ÍR ......................19.15
Í KVÖLD!
Hjálmar Stefánsson, landsliðs-
maður í körfubolta og leikmaður
Vals, hefur framlengt samning sinn
við Hlíðarendafélagið til næstu
tveggja ára. Hjámar er uppalinn
hjá Haukum og kom til Vals í febr-
úar á síðasta ári frá Carbajosa á
Spáni. Hjálmar skoraði átta stig,
tók fjögur fráköst og gaf eina stoð-
sendingu að meðaltali í leik er hann
og liðsfélagar hans hjá Val urðu Ís-
landsmeistarar eftir sigur á Tinda-
stóli í oddaleik í úrslitaeinvígi.
Hjálmar var stigahæstur í odda-
leiknum með 24 stig.
Áfram hjá
meisturunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistari Hjálmar Stefánsson varð
Íslandsmeistari með Val.
Körfuknattleiksdeild Hauka hefur
samið við hina 18 ára gömlu Emmu
Sóldísi Hjördísardóttur. Emma er
uppalin hjá KR en lék með Fjölni á
síðustu leiktíð og varð deildar-
meistari með liðinu.
Hún skoraði 7,5 stig og tók 3,3
fráköst að meðaltali í leik á seinasta
tímabili. Emma hefur verið fasta-
maður í yngri landsliðum Íslands.
Verður hún hluti af U18 ára lands-
liðinu sem leikur á Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi í sumar. Þá hef-
ur hún einu sinni verið í
A-landsliðshópi Íslands.
Skiptir úr Fjölni
í Hauka
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Haukar Emma Sóldís Svan Hjördís-
ardóttir er komin í Hauka.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Eyþór Aron Wöhler átti sannkall-
aðan stórleik fyrir ÍA þegar liðið
gerði 3:3-jafntefli við KR í 9. umferð
Bestu deildar karla í knattspyrnu á
Meistaravöllum í gærkvöldi. Eyþór
Aron skoraði tvö mörk og lagði upp
hitt auk þess að vera óþreytandi í að
elta hvern einasta bolta og pressa
varnarmenn KR við hvert tækifæri.
Eyþór Aron kom Skagamönnum í
forystu eftir sendingu Steinars Þor-
steinssonar en markið hefði þó ekki
átt að standa þar sem Gísli Laxdal
Unnarsson slæmdi höndinni í andlit
Kennie Chopart í aðraganda þess.
Í fyrri hálfleiknum gerðu bæði lið
tilkall til þess að fá vítaspyrnu en
fengu hvorugt. Í báðum tilfellum
átti að dæma vítaspyrnu.
KR lét þetta ekki á sig fá og sneri
taflinu við þökk sé Atla Sigurjóns-
syni, sem átti stórleik í liði KR. Atli
lagði upp fyrra mark KR fyrir Ægi
Jarl Jónasson og skoraði svo sjálfur
eftir að hafa farið afskaplega illa
með Johannes Björn Vall í vörn ÍA.
Skagamenn voru hins vegar ekki
hættir og jöfnuðu metin um miðjan
síðari hálfleik þegar Eyþór Aron
lagði upp mark fyrir áðurnefndan
Steinar, sem átti sömuleiðis afar
góðan leik.
Eyþór Aron kom Skagamönnum
svo yfir þegar rúmlega stund-
arfjórðungur var eftir eftir góðan
undirbúning Gísla. Í uppbótartíma
varð Alexander Davey fyrir því
óláni að setja boltann í eigið mark
og tryggði hann KR þar með jafn-
tefli.
Leikurinn var hin mesta skemmt-
un. Fimm mörk, fullt af færum á
báðum endum, vafaatriði og liðin
skiptust á að vera með forystu.
Eftir leikinn er KR í fimmta sæti
með 16 stig og ÍA í tíunda sæti með
sjö stig. KR hefur aðeins unnið einn
leik á heimavelli í fimm tilraunum í
sumar á meðan ÍA hefur aðeins tap-
að einum útileik.
_ Arnór Sveinn Aðalsteinsson lék
sinn fyrsta leik fyrir KR í sumar og
var fyrirliði en leikmaðurinn hefur
glímt við meiðsli.
_ Steinar Þorsteinsson hélt upp á
100. leik sinn í efstu deild með því
að skora sitt 15. mark í deildinni.
Víkingur upp í annað sæti
Íslands- og bikarmeistarar Vík-
ings fóru upp í annað sætið með 3:0-
útisigri á ÍBV í Vestmannaeyjum.
Eftir frekar hæga byrjun á mótinu
eru Víkingar að finna vopnin sín á
ný, því liðið hefur unnið fjóra leiki í
röð í öllum keppnum.
ÍBV fékk fín færi til að skora
mörk og reyndi þónokkur skot að
marki Víkings en án árangurs. Það
hefur gengið bölvanlega hjá Eyja-
mönnum að skora mörk, því liðið
hefur spilað fjóra leiki í röð í deild-
inni án þess að koma boltanum í
markið. Fyrir lið sem er sigurlaust á
botni deildarinnar er það vægast
sagt mikið áhyggjuefni. ÍBV verður
að ná í stig gegn Fram í næstu um-
ferð.
Í stöðunni 2:0 gátu gestirnir leyft
sér að slaka á og virtist liðið ekki
hafa miklar áhyggjur af að fá á sig
mark, þrátt fyrir fín færi heima-
manna. Víkingar gengu svo frá
leiknum með þriðja markinu. Það er
komið mikið sjálfstraust í Víkings-
liðið og gaman að sjá unga leikmenn
byrja að skína. Kristall Máni Inga-
son verður bara betri og betri og
Ari Sigurpálsson hefur komið
skemmtilega inn í liðið. Næst á
dagkrá hjá Víkingi er leikur við
Eistlandsmeistara Levadia Tallinn í
forkeppni Meistaradeildarinnar og
verður skemmtilegt að sjá hvernig
meisturunum gengur í Evrópu-
keppni.
_ Sænski varnarmaðurinn Oliver
Ekroth skoraði sitt fyrsta mark í
deildarkeppninni á Íslandi.
Sjálfsmark á
ögurstundu
- Stórskemmtilegur markaleikur í
Vesturbæ - Meistararnir skoruðu þrjú
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einvígi Sigurður Bjartur Hallsson úr KR og Skagamaðurinn Jón Gísli Ey-
land Gíslason eigast við í skallaeinvígi í Vesturbænum í gærkvöldi.
Andrea Mist Pálsdóttir, leikmaður Þór/KA, er besti leikmaður níundu um-
ferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Andrea átti
afar góðan leik fyrir Þór/KA er liðið gerði 3:3-jafntefli við KR í mögnuðum
leik á Akureyri í fyrrakvöld. Hún lagði upp tvö síðustu mörk Akureyrar-
liðsins og var nálægt því að skora glæsilegt sigurmark í lokin. Andrea var
önnur tveggja leikmanna sem fengu þá einkunn en Samantha Leshnak,
markvörður Keflavíkur, fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í 1:0-sigri á
Stjörnunni. Andrea er í liði umferðarinnar í fyrsta sinn en Leshnak í fjórða
sinn. Ásdís Karen Halldórsdóttir, sóknarmaður Vals, er einnig í liði um-
ferðarinnar í fjórða sinn. johanningi@mbl.is
9. umferð
í Bestu deild kvenna 2022
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-3-3
Samantha Leshnak
Keflavík
Olga Sevcova
ÍBV
Hildur Antonsdóttir
Breiðablik
Ásta Eir
Árnadóttir
Breiðablik
Caroline Van
Slambrouck
Keflavík
Anna Rakel
Pétursdóttir
Valur
Ameera Hussen
ÍBV
Andrea Mist
Pálsdóttir
Þór/KA
Ásdís Karen Halldórsdóttir
Valur
Bergdís Fanney Einarsdóttir
KR
Kristín Erla
Ó. Johnson
KR
2
2
2
2
3
4
4
Andrea best í níundu umferð
ÍBV – Víkingur R. 0:3
0:1 Oliver Ekroth 8.
0:2 Erlingur Agnarsson 29.
0:3 Ari Sigurpálsson 76.
M
Telmo Castanheira (ÍBV)
Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Þórður Ingason (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Oliver Ekroth (Víkingi)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 8.
Áhorfendur: Um það bil 450.
KR – ÍA 3:3
0:1 Eyþór Aron Wöhler 17.
1:1 Ægir Jarl Jónasson 27.
2:1 Atli Sigurjónsson 48.
2:2 Steinar Þorsteinsson 66.
2:3 Eyþór Aron Wöhler 74.
3:3 Sjálfsmark 90.
MM
Atli Sigurjónsson (KR)
Eyþór Aron Wöhler (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
M
Kristinn Jónsson (KR)
Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Kaj Leo í Bartalsstovu (ÍA)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 4.
Áhorfendur: Um 600.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.