Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 16.06.2022, Qupperneq 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið Lengjum helgina og höfumLOKAÐ laugard. 18. júní Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk sýnir einleikinn Stelpur og stráka eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, á þremur stöðum úti á landi í kvöld, 18. júní og 20. júní. Í kvöld verður sýnt í Herðubreið á Seyðis- firði, 18. júní í Valhöll á Eskifirði og 20. júní í Óðali í Borgarnesi. Leik- stjóri er Annalísa Hermannsdóttir, íslenska þýðingu gerði Matthías Tryggvi Haraldsson og Björk Guð- mundsdóttir leikur. Einleikurinn heitir á frummálinu Girls and boys og var fyrst settur upp í Royal Court Theatre í London 2018. Í verkinu segir frá því hvern- ig „óvænt stefnumót á flugvelli leið- ir af sér ákaft, ástríðufullt, sjóðandi heitt ástarsamband. Fljótlega tekur hið eðlilega fjölskyldulíf við. Þar til heimurinn þeirra fer að molna í sundur og hlutirnir taka óhugnan- lega stefnu.“ Miðasala fer fram á Tix.is. Í einleik Björk Guðmundsdóttir leikkona leikur í Stelpum og strákum. Stelpur og strákar á þremur stöðum Jóna Gréta Hilmarsdóttir jonagreta@mbl.is „Ég held að áhorfendur geti búist við því að ganga inn í annan heim, inn í ákveðið ástand eða upplifun.“ segir Katrín Gunnarsdóttir dans- höfundur um verkið ALDA sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur. Sýningin fer fram í Gerðarsafni 11. júní til 4. september frá kl. 10-17. Hugmyndin að verkinu kviknaði, að sögn Katrínar, þegar hún vann að verkinu Crescendo sem var frumsýnt í Tjarnarbíói árið 2018: „Í því ferli fann ég að það kallaði á mig að skapa verk sem var ekki sviðsverk, þar sem tíminn er afmarkaður og áhorfendur á afmörkuðum stað.“ Katrín segir sig hafa langað að vinna verk, frjálst frá fyrrnefndum hömlum, en það hafi tekið nokkur ár í þróun. Ólíkar upplifanir Í samvinnu við hina listrænu stjórnendurna, Baldvin Þór Magnússon og Evu Signýju Berger, kom skýrari mynd á verkið að sögn Katrínar. „Ákveðið var að hafa verkið á listasafni og vinna með það í samhengi við alla þessa þrjá þætti; hið sjónræna, líkamlega og hljóð- ræna“ segir Katrín. Að sögn Katrínar má líta á verkið sem myndlist eða dans eftir því hvaða gleraugu áhorfandinn setur upp: „Dansarar eru í rýminu allan daginn en samt er samsetningin ólík, dansararnir eru mismargir og það sem þeir fást við er líka mis- munandi. Þú getur komið einn dag- inn og svo þann næsta en þú sérð ekki endilega það sama. Upplifunin verður mjög ólík eftir því hvar þú kemur inn í sýninguna. Það er því hægt að segja að þetta sé þriggja mánaða langt dansverk eða innsetn- ing, eftir því hvernig á það er litið.“ „Fyrir mér er hugtakið kóreó- grafía nokkuð sem getur farið í önn- ur listform og sameinast öðrum list- formum. Margt getur verið kóreógrafíað þó það sé ekki dans. Þetta er ákveðin leið til þess að skapa kerfi og búa til myndir. Það er orðið algengara að danshöfundar geri kóreógrafíu fyrir bókverk, flug- elda eða jafnvel skip. Það er hægt að nota kóreógrafíu þótt dansarinn sé ekki manneskja“ segir Katrín. Kvennastörf kveikja Spurð um hver sé hugmyndin á bak við titilinn ALDA segir Katrín: „Aldan er hreyfiform sem rís og hnígur og það endurspeglast í því hvernig dansararnir koma og fara í verkinu og hvernig við vinnum með hljóðmyndina í rýminu. Kóreógrafía verksins er einnig eins og alda, að sumu leyti alltaf eins og öðru leyti aldrei eins. Ég vildi búa til eitthvað sem heldur áfram að þróast, svolítið eins og vistkerfi sem tekur stakka- skiptum í gegnum sumarið.“ Katrín segir að titillinn vísi líka í það hvernig við upplifum tíma: „Eva Signý Berg notar hálfgegnsæ tjöld í sjónrænu innsetningunni. Þar vinnur hún með eiginleika þeirra tjalda. Ef sett eru upp sífellt fleiri lög af tjöldunum minnkar sýnileikinn inni í rýminu. Svolítið eins og tíminn virkar, við sjáum ógreinilegar eftir því sem lengra líð- ur og að lokum hverfur fólkúr aug- sýn.“ „Ég held að verkið sé svolítið dá- leiðandi og draumkennt. Upplifunin, sem við leitumst eftir að framkalla hjá áhorfendum, er smá núvitund og einbeiting í rýminu.“ „Verkið ALDA sækir líka inn- blástur í líkamlega vinnu kvenna í hefðbundnum kvennastörfum sem eru oft síendurteknar hreyfingar; að syngja fyrir svefninn, þvo, prjóna, klæða o.s.frv.“ segir Katrín. Að sögn Katrínar urðu þessi kvennastörf ákveðin kveikja og því viðeigandi að vera í Gerðarsafni, safni tileinkað konu: „Við kynntum okkur sögu safnsins, Gerði Helga- dóttur myndhöggvara og hennar feril. Þá komu fram ákveðin form eins og spíralformið og síhreyfing sem Gerður vann með í sumum verkum sínum. Þannig fengum við innblástur frá safninu.“ Landsliðið í dansi Í verkinu dansa aðeins konur í takt við þema verksins. Þær eru Aðalheiður Halldórsdóttir, Anaïs Barthe, Halla Þórðardóttir, Heba Eir Kjeld, Lovísa Ósk Gunnars- dóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Sól- björt Sigurðardóttir og Védís Kjart- ansdóttir. „Þetta eru ótrúlega flottir atvinnudansarar úr ólíkum áttum. Ég myndi kalla þetta landsliðið í dansi.“ Hljóðverkið í sýningunni er skap- að úr röddum þeirra að sögn Katrínar. „Þær bæði humma og syngja í verkinu en við tókum líka upp söngva og hljóð með öllum röddunum. Þær eru því líka í raun hálfgerður kór.“ Dáleiðandi og draumkennt verk - ALDA nefnist þriggja mánaða löng innsetning á mörk- um dans og myndlistar, sýnd í Gerðarsafni í sumar Morgunblaðið/Hákon Tíminn Aðalheiður Halldórsdóttir dansar í verkinu ALDA. Verkið sækir í sögu líkamlegrar vinnu kvenna. Síhreyfing Aðalheiður og Védís Kjartansdóttir dansa í Gerðarsafni. Sigla binda nefnist samvinnuverkefni tveggja listhópa, listhópsins Arkir frá Íslandi og Codex Polaris frá Noregi, og verður sýning opnuð á verkum þeirra í dag kl. 17 í sal félagsins Íslensk grafík í Hafnar- húsinu hafnarmegin. Listamennirnir sem taka þátt í verkefn- inu eru tíu, fimm frá hvoru landi, og segir í tilkynningu að kveikjan að samstarfinu sé sameiginleg ástríða þeirra fyrir bókverka- listinni, metnaður til að skapa nýja list og áhugi á samvinnu og samtali um menningararfinn. Þátttakendur í sýningunni eru Anna Snædís Sigmarsdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Svan- borg Matthíasdóttir, Nanna Gunhild Amstrup, Solveig Landa, Rita Mar- haug, Imi Maufe og Randi Annie Strand. Bókverk sýnd í sal Íslenskrar grafíkur Bókverk Haf heitir þetta verk eftir Svanborgu Matthíasdóttur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.