Morgunblaðið - 18.07.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022
Öll áhöfn fraktflutningavélarinnar
sem brotlenti nálægt grísku borginni
Kavala á laugardag lét lífið, en átta
manns voru um borð. Flugvélin var
úkraínsk af gerðinni Antonov 12 og
var að flytja um ellefu tonn af her-
gögnum, þar á meðal jarðsprengjur,
til Bangladess. Sjónarvottar deildu á
samfélagsmiðlum myndskeiðum sem
sýndu flugvélina logandi þar sem hún
flaug yfir og sögðust sömuleiðis hafa
heyrt sprengingar koma frá vélinni.
Flugvélin hafði farið í loftið frá Nis-
flugvellinum í Serbíu um klukkan
tuttugu mínútur í níu að kvöldi með
vopn í eigu serbneska einkafyrirtæk-
isins Valir. Serbneski varnarmálaráð-
herrann sagði að vopnasendingin
hefði verið samþykkt af varnarmála-
ráðuneyti Bangladess í samræmi við
alþjóðalög.
Grískir fjölmiðlar fullyrða að flug-
stjórinn hafi óskað eftir heimild til að
nauðlenda á Kavala-flugvellinum, en
ekki tekist að ná á völlinn.
Herinn, sprengjusveitin og starfs-
menn grísku kjarnorkunefndarinnar
segjast ekki ætla að gera tilraun til að
nálgast svæðið fyrr en hægt sé að
álykta að það sé tiltölulega öruggt.
Eiturgufur á svæðinu
Fólk sem býr innan tveggja kíló-
metra frá slysstað var beðið um að
halda sig inni á heimilum sínum og
bera andlitsgrímur á laugardags-
kvöld til þess að tryggja öryggi sitt
gegn eiturgufum. Tveir slökkviliðs-
menn voru lagðir inn á spítala vegna
öndunarerfiðleika eftir að hafa andað
að sér eiturgufu á svæðinu.
Öll áhöfnin lét lífið
- Var að flytja um ellefu tonn af hergögnum til Bangladess
- Íbúar í grennd við brakið beðnir um að bera grímur
AFP
Brak Vélin náði ekki að nauðlenda á
flugvellinum við bæinn Kavala.
Evrópusambandið mun ræða hertar refsiað-
gerðir gegn Rússum í dag, en þeir hafa verið
sakaðir um að nota stærsta kjarnorkuver álf-
unnar til að geyma vopn og skjóta eldflaugum á
nálæg héruð í suðurhluta Úkraínu. Petró Kót-
ín, yfirmaður kjarnorkumálastofnunar Úkra-
ínu, sagði að Rússar hefðu komið fyrir eld-
flaugaskotum og notað aðstöðuna til
sprengjuárása í kringum borgina Dnípró.
Viðræður í dag en ákvörðun ekki tekin
Þar sem átökin halda áfram og valda í vax-
andi mæli alþjóðlegum orku- og matvæla-
kreppum íhuga utanríkisráðherrar ESB að
banna gullkaup frá Rússlandi, sem myndi sam-
rýmast þeim refsiaðgerðum sem G7-ríkin hafa
þegar beitt. Fleiri rússneskir aðilar gætu einn-
ig verið settir á svartan lista ESB. „Moskva
verður að halda áfram að greiða hátt verð fyrir
yfirgang sinn,“ sagði Ursula von der Leyen,
forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, eftir að hafa greint frá fyrirhuguðum
ráðstöfunum. Gert er ráð fyrir að stjórnvöld í
Brussel muni hefja viðræður um refsiaðgerðir í
dag, en ekki taka ákvörðun samdægurs, að
sögn háttsetts embættismanns ESB. Forseti
Úkraínu, Volodimír Selenskí, rak í gær yfir-
saksóknara sinn og yfirmann öryggisstofnunar
landsins úr starfi vegna gruns um landráð
úkraínskra lögreglumanna. Yfir 650 mál vegna
gruns um landráð og aðstoð við Rússland af
hálfu úkraínskra öryggisfulltrúa sæta nú rann-
sókn.
Brennuvargur á fundi slökkviliðsmanna
Á tveggja daga fundi fjármálaráðherra G20-
ríkjanna, sem stóð yfir í tvo daga á indónesísku
eyjunni Balí og lauk á laugardag, reyndu ráð-
herrarnir að leita lausna við aðsteðjandi fæðu-
og orkukreppu á sama tíma og þeir sökuðu
Rússa um að gera vandann einungis verri.
Ráðherrunum mistókst að komast að niður-
stöðu og gefa frá sér ályktun í lok fundarins.
Chrystia Freeland, sem tók þátt fyrir hönd
Kanada, segir ríkisstjórn sína hafa komið því
til skila á fundinum að hún vildi ekki að Rússar
yrðu viðstaddir hann. „Viðvera Rússlands á
þessum fundi var eins og að bjóða brennuvargi
á fund slökkviliðsmanna,“ sagði Freeland við
blaðamenn þar sem hún svaraði spurningum
þeirra yfir netið frá Balí um helgina.
„Það er vegna þess að Rússland ber eitt og
sér beina ábyrgð á ólöglegri innrás í Úkraínu,
og efnahagslegum afleiðingum hennar, sem við
finnum öll fyrir,“ bætti Freeland við, sem einn-
ig er varaforsætisráðherra og af úkraínsku
bergi brotin. „Við vorum skýr og eindregin um
það að þátttaka Rússlands væri óviðeigandi og
hreinlega bara absúrd.“
Eldflaugaárásir á óbreytta borgara
Á Donbas-svæðinu hafa skotgrafabardagar
og stórskotaliðseinvígi breyst í venjubundið
stríð. Aðskilnaðarsinnar sem studdir eru af
Kreml sögðust á föstudag vera að nálgast
næsta skotmark sitt, Síversk, eftir að hafa náð
yfirráðum yfir systurborgunum Lísítsjansk og
Severódónetsk um 30 kílómetra fyrir austan.
Hundruð kílómetra frá framlínunni ollu eld-
flaugaárásir miklu mannfalli óbreyttra borg-
ara í miðborg Vinnitsía, en tala látinna hækk-
aði í 24 á laugardag.
ESB ræðir hertar aðgerðir
- Rússar sakaðir um að geyma vopn í kjarnorkuveri - ESB íhugar að banna gullkaup frá Rússlandi
- Selenskí rekur yfirsaksóknara sinn vegna gruns um landráð - Aðskilnaðarsinnar nálgast Síversk
AFP
Forseti framkvæmdastjórnar Ursula von der
Leyen vill herða aðgerðir gegn Rússum.
Mótmælahreyfingin á Srí Lanka
náði hundraðasta degi sínum í gær,
en mótmælendur hafa á þeim tíma
rekið forsetann frá embætti og
beina sjónum sínum að arftaka
hans nú þegar efnahagskreppan
heldur áfram í landinu. Gotabaya
Rajapaksa flúði höll sína skömmu
áður en mótmælendur réðust inn í
hana um síðustu helgi og á fimmtu-
dag sagði hann af sér forsetaemb-
ættinu.
Íbúar landsins segja að fjármála-
óreiðu Srí Lanka megi rekja til
óstjórnar fráfarandi forsetans og
saka hann um að hafa neytt 22
milljónir íbúa landsins til að þola
skort á matvælum, eldsneyti og
lyfjum, sem hófst seint á síðasta ári.
Fækkað hefur í hópi mótmælenda
eftir brottför Rajapaksa og hafa
þeir yfirgefið þrjár helstu ríkis-
byggingarnar sem þeir hertóku;
forsetahöllina, bústað forsætisráð-
herrans og skrifstofu hans.
Ranil Wickremesinghe tók við
keflinu sem forseti, en hann hefur
skipað hernum og lögreglunni að
gera allt sem þarf til að tryggja röð
og reglu. Embættismenn varnar-
málaráðuneytisins hafa sagt að
fleiri hermenn og lögregla verði
flutt inn í höfuðborgina í dag til að
efla öryggi í kringum þingið.
Hundrað
dagar af
mótmælum
AFP