Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 18.07.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 18.07.2022, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022 mennskuna á þessum spilakvöld- um, voru þjóðmálin auðvitað rædd og höfðum við mjög ákveðnar skoðanir á gjörðum stjórnmálamannanna og þær vegnar og metnar, sérstaklega þó flokksfélaga okkar. Þegar ein okkar sigldi á önnur mið í pólitík- inni, færðist enn meira fjör í um- ræður og sjónarmiðin urðu fleiri og skemmtilegri. Þó að heilsan hennar Önnu hafi smátt og smátt farið versn- andi allra síðustu árin og verið til leiðinda, þá hélt hún reisn sinni og ekkert var gefið eftir í spila- mennskunni, rökhugsun og minni alveg á sínum stað. Sú vinátta sem við höfum átt í öll þessi ár er ómetanleg og ekki sjálfgefin. Við þökkum þessi ár, þessar góðu og gefandi stundir og sár söknuður mun fylgja okk- ur inn í nýjan tíma, án Önnu. Innilegar samúðarkveðjur til Kötlu, Hönnu Láru, Kristjáns og fjölskyldna þeirra. María E. Ingvadóttir, Ásdís J. Rafnar og Ingveldur Fjeldsted. Fallin er frá kær vinkona og fyrirmynd, Anna Kristjánsdótt- ir. Vináttu okkar má rekja ríf- lega 30 ár aftur í timann þegar við sátum saman í stjórn Sjálf- stæðiskvennafélagsins Hvatar undir forystu Önnu. Hópurinn hefur haldið saman allar götur frá fyrstu kynnum og hist reglu- lega. Eins og geta má nærri voru samræður mjög fjörlegar og há- pólitískar. Jafnframt var hópur- inn náinn og tók þátt í gleði og sorg hver annarrar. Anna hafði mjög sterkar skoðanir á flestum dægurmálum og nutum við þess að heyra viðhorf hennar meðal annars um frammistöðu stjórn- valda hverju sinni. Anna var mikill gestgjafi og ófáar samverustundir áttum við á fallegu heimili hennar og eig- inmanns hennar, Hauks Steins- sonar, sem lést fyrir nokkrum árum Um leið og við kveðjum kæra vinkonu, sendum við hlýjar sam- úðarkveðjur til Kötlu, Hönnu Láru, Kristjáns og fjölskyldna þeirra. Ellen Ingvadóttir, Helga Ólafsdóttir, Hrefna Ing- ólfsdóttir, Ingveldur Fjels- ted, Kristín Zöega, Oddný Vilhjálmsdóttir og Ragn- hildur Pála Ófeigsdóttir. Í dag kveðjum við Önnu Krist- jánsdóttur, fyrrum formann Hvatar, félags sjálfstæðis- kvenna í Reykjavík og stjórnar- konu í Landssambandi sjálf- stæðiskvenna. Anna var um langan tíma mjög virk í starfi Sjálfstæðis- flokksins. Hún var hluti af stórum hópi atorkusamra kvenna sem létu mikið til sín taka í félagsstarfinu með þá áherslu að greiða götur kvenna í stjórnmálum. Þessar konur höfðu ástríðu fyrir samfélags- málum, héldu fjöldann allan af vel sóttum fundum og viðburðum um málefni líðandi stundar hverju sinni og tóku virkan þátt í hvers kyns samfélagsstarfi og má þá sérstaklega nefna Mæðra- styrksnefnd. Anna var kjörin í stjórn Landssambands sjálfstæðis- kvenna árið 1987 og sat þar í stjórn um árabil. Hún tók við sem formaður Hvatar, félags sjáfstæðiskvenna í Reykjavík, sem er jafnframt elsta stjórn- málafélag kvenna á Íslandi, árið 1991. Í viðtali við Önnu í Morg- unblaðinu á 55 ára afmæli Hvat- ar árið 1992 sagði hún: „Við er- um ekki sáttar við ástandið. Okkur finnst þáttur kvenna ekki nógu mikill þegar litið er til þess að konur eru 50% kjósenda en hlutur alþingiskvenna ekki nema 20%. Konur hafa ekki þingstyrk á við það sem atkvæðamagn seg- ir til um,“ sem er dæmi um þann baráttuanda sem ríkti í kvenna- starfinu á hennar vakt. Við viljum þakka Önnu fyrir hennar mikilvægu störf í þágu frelsis og jafnréttis enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið brautryðjandi í jafnréttismálum og má það meðal annars þakka liðsheild þessara öflugu kvenna. Við vottum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Nanna Kristín Tryggva- dóttir formaður LS og Sirrý Hallgrímsdóttir formaður Hvatar. Ég minnist Önnu Kristjáns og eignmanns hennar Hauks Steins- sonar með miklu þakklæti og hlýju. Ég tel að það hafi verið mér mjög gæfuríkt spor að hafa feng- ið kynnst þeim þegar ég var 11 ára gömul, þegar þau réðu mig sem barnapíu að passa dóttur þeirra Kötlu, þá tveggja ára ynd- islega stúlku. Hefur mér auðnast sú gæfa að verða samferða þeim í lífinu. Þegar ég lít yfir þessi 60 ár hrannast upp minningar hversu gjafmild, rausnarleg og tillitssöm þau voru við mig. Það var aðdá- unarvert hversu mikið þau kenndu mér og tóku mig inn í fjöl- skyldu sína. Ég var velkomin í allar veislur hjá fjölskyldunni. Sem dæmi um rausnarskap þeirra var þegar ég átti mitt fyrsta barn, gáfu þau mér útigalla á barnið í þrjú ár. Þegar ég var að halda upp á eitt stórafmæli mitt þá hringdi Anna og bauð fram hjálparhönd, sem er mér ógleym- anlegt. Anna og Haukur voru miklir heimsborgarar og vinamörg. Anna stóð með lítilmagnanum, sbr. hún vann mikið með Mæðra- styrksnefnd og m.a. pakkaði inn gjöfum í desember til fanga. Anna og Haukur voru fáguð í alla staði og töluðu aldrei illa um fólk. Mikill kærleikur var milli Önnu og bróðir hennar Grétars og hans fjölskyldu. Ég kynntist einnig Kristjáni og Bergþóru foreldra Önnu og Grétars en þau reyndust mér einnig mjög vel þegar ég var að passa Kötlu. Þau sendu mér einnig gjafir við mikilvæg tíma- mót í mínu lífi. Ég mun ávallt minnast Önnu, Hauks, fjölskyldum og vinum þeirra með ljúfu þakklæti og hlýju í huga. Ég votta Kötlu, Hönnu Láru, Kristjáni, Grétari og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Megi Guð umvefja þau kærleika. Vil enda á erindi úr ljóðinu Kvæðið um fuglana Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Höf: Atli Heimir Sveinsson / Davíð Stefánsson) Erla Friðriksdóttir. Anna Kristjánsdóttir starfaði til margra ára sem sjálfboðaliði Mæðrastyrksnefndar Reykjavík- ur. Hún var bæði ljúf og góð manneskja og var mjög vel liðin af öðrum sjálfboðaliðum og þiggj- endum aðstoðar nefndarinnar. Ég kynntist Önnu þegar ég hóf störf sem sjálboðaliði hjá Mæðra- styrksnefnd Reykjavíkur árið 2005. Við náðum vel saman og áttum sameiginleg áhugamál svo sem bókmenntir og gat hún oft bent mér á góðar og fræðilegar bækur sem vert var að lesa. Nú er fallin frá yndisleg og dugleg kona, blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur sendi ég að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. ✝ Reynir Rík- arðsson, fædd- ist í Reykjavík 5. júní 1964. Hann lést á Landspítalanum 2. júlí 2022. Foreldrar Reyn- is voru Ríkarður Reynir Steinbergs- son, byggingar- verkfræðingur og framkvæmdastjóri Framkvæmda- nefndar byggingaráætlunar, síðar Verkamannabústaða og Húsnæðisnefndar Reykjavíkur 1969-1996, f. 13. apríl 1930, d. 25. maí 1996 og Gróa Valgerður Ingimundardóttir, klæðskeri og saumakona,f. 13. júlí 1931, d. 23. október 1978. Alsystkin Reynis eru: 1) Steinberg, f. 20. desember 1954, kennari. Dætur hans eru Val- gerður Ósk og Sigurlín Rós. 2) Hildur, f. 31. mars 1957, bygg- ingarverkfræðingur, gift Ellerti Má Jónssyni verkfræðingi. Þeirra börn eru Sara Rós og Ríkarður Már. 3) Heimir, f. 15. maí 1962, lögreglu- fulltrúi. Sammæðra bróð- ir Reynis er Ingi- mundur Bergmann Garðarsson, f. 29. mars 1949, bóndi, giftur Þórunni Kristjánsdóttur. Þeirra börn eru Indriði, Þórey, Gróa Valgerður og Ingvar Guðni. Reynir lauk gagnfræðaprófi frá Breiðholtsskóla 1979 og stundaði grunnnám í múraraiðn í Iðnskólanum 1980-1981. Reynir vann við byggingar- vinnu hjá Verkamannabústöð- um í Reykjavík, síðar Húsnæð- isnefnd Reykjavíkur, frá 1979 þar til verklegum fram- kvæmdum lauk hjá þeim árið 1998 og hjá Olíudreifingu frá 1998-2002. Síðar starfsmaður hjá Ás styrktarfélagi þar sem hann vann til dauðadags. Útför Reynis fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 18. júlí 2022, kl. 13. Þrátt fyrir að hafa óttast það um nokkuð skeið var það mikið áfall þegar ég fékk símtal, þar sem ég var staddur erlendis þess efnis að bróðir minn Reyn- ir hefði látist um kvöldið á Landspítalanum eftir erfið veik- indi. Reynir var ekki bara bróðir minn heldur einnig minn besti vinur og bar aldrei skugga á þá vináttu. Við ólumst upp saman en tvö ár skildu okkur að í aldri og má því með sanni segja að vináttan hafi staðið ævilangt. Reynir minn var einstök per- sóna, drengur góður, glaðvær, barngóður, trúr, einlægur og með góða nærveru. Hann var rólyndur, skapgóður og með gott lundafar en aldrei sá ég hann skipta skapi eða kvarta yf- ir veikindum sínum. Hægt væri að halda endalaust áfram og telja upp mannkosti Reynis en kærleikurinn var honum eðlis- lægur og gerði hann alla betri með nærveru sinni. Engan þekki ég sem var minnugri á afmælisdaga og var fátt notalegra en að vakna upp á afmælisdeginum við að Reynir hringdi og hóf samtalið á að syngja afmælissönginn og óska manni til hamingju með daginn. Reynir var gamansamur og sá hann oftast spaugilegu hlið- ina á málunum. Orðatiltæki sem honum voru töm eins og „Jesús minn“, „Guð minn góður“, „Blessaður kallinn“, „Aumingja kallinn“ og fleiri eiga eftir að lifa með fjölskyldunni um langt skeið. Við bræður tókum oft bíltúra í nágrenni Reykjavíkur þar sem mikið var spjallað og þá voru ferðir okkar saman til Akureyr- ar ógleymanlegar. Hugur Reyn- is leitaði oft norður í land en á Akureyri átti hann sínar bestu stundir með ömmu Sumarrós og Diddu frænku en þær og vina- fólk þeirra, Helga, Svan, Erla og Guðjón reyndust honum vel alla tíð. Þá átti Reynir líka góð- ar minningar úr Hrísey þar sem hann dvaldi oft á sumrin. Það var því ekki skrítið að við bræð- ur færum saman nokkrar ferðir árlega til Akureyrar og skemmtum okkur vel saman. Tekið var í spil, farið í stutta eða langa bíltúra, vinir heim- sóttir eða slappað af í Hríseyj- argötunni. Reynir naut þess að fara er- lendis en fyrstu ferðina fórum við til Danmerkur með foreldr- um okkar 1977, ári áður en móðir okkar dó. Næsta fjöl- skylduferð var farin til Spánar 2008 og síðustu ferðina fór hann til Danmerkur í tilefni 50 ára af- mælis síns. Minningar um þess- ar ferðir eiga eftir að ylja fjöl- skyldunni um ókomna tíð. Við fráfall Reynis myndast stórt skarð í lífi mínu enda átti Reynir stóran þátt í því. Við vorum í daglegu símasambandi, oftast mörgun sinnum á dag en Reynir var minn trúnaðarvinur sem hægt var að spjalla við um allt milli himins og jarðar. Hann var duglegur að hafa samband við okkur systkinin og vissi hann því manna best hvað var að ger- ast í fjölskyldunni hverju sinni. Má því með sanni segja að Reynir hafi verið sá sem sinnti fjölskyldumálunum best allra með því að færa okkur fréttir af hvort öðru, sem við hin gáfum okkur ekki nægilegan tíma til að gera í daglegu amstri. Ég trúi því og treysti að vel hafi verið tekið vel á móti Reyni í sumarlandinu, hann njóti sín vel núna heill heilsu með horfn- um ástvinum. Takk elsku Reynir fyrir sam- veruna, trausta og einlæga vin- áttu alla tíð. Heimir. Í dag kveð ég kæran bróður minn, Reyni Ríkarðsson. Ég man svo vel tilhlökkunina að eignast nýtt systkini. Ég var sjö ára, átti þrjá bræður og dreymdi um að eignast litla systur. Þegar ég svo frétti að lít- ill bróðir væri fæddur gleymdi ég því strax og var alsæl og að rifna úr stolti þegar ég sá hann, svo lítinn og fallegan. Það var gaman að fylgjast með honum stækka og þroskast, fá frá hon- um bros og hlátur og ærslast með honum. Hann var blíður og góður en líka ótrúlega stríðinn en því miður líka oft veikur. Or- sök veikindanna fannst ekki fyrr en Reynir var þrítugur. Ekkert var hægt að gera og Reynir hélt ótrauður áfram, haggaðist ekki. Hann hlífði sér hvergi og lét þetta ekki hafa áhrif á hvernig hann hagaði sínu lífi, að öðru leyti en því að hann hlýddi læknisráði um að skipta um vinnu. Fyrstu ár Reynis bjuggum við í blokk. Fullt af börnum og líf og fjör. Reynir tilheyrði yngri barnahópnum og naut sín vel og var oft fenginn til að líta eftir minnstu börnunum. Foreldrar okkar byggðu síðan hús í Geita- stekk og þar eignaðist Reynir sérlega góða félaga. Oft mátti heyra hlátrasköllin frá þeim úr kjallaranum. Vinskapurinn hélst vel fram yfir tvítugsaldurinn en þá fór hver sína leið, eins og verða vill. Reynir fór að vinna, eignaðist félaga sem fóru á djammið og á þessum tíma var Reynir mikill gleðipinni. Hann elskaði að ferðast og fór með okkur fjölskyldunni og félögum sínum í utanlandsferðir sem hann hafði sérlega gaman af. Síðar leyfði heilsan ekki flug- ferðir og þar með lögðust utan- landsferðir af. Hann lét það ekki á sig fá, frekar en annað, og ferðaðist því meira innanlands. Reynir var ótrúlega flottur karakter og með mikið jafnaðar- geð, gott minni, góðan húmor og tengdi á skemmtilegan hátt fólk, hluti og atvik og kom oft með stutt innskot með bros á vör og kímni í augum sem vakti hlátur. Ég áttaði mig fyrst á þessu þeg- ar fjölskyldan var í sinni árlegu dvöl hjá ömmu og Diddu föð- ursystur okkar en við vorum öll mjög náin og við elskuðum öll að hittast. Þá var sko glatt á hjalla- ,farið í ferðalög og þá á tveimur bílum. Á þeim tímum voru flestir vegir malarvegir og í eitt skipti þegar Didda keyrði fremri bílinn nokkuð greitt, fór hún í lausa- mölina og bíllinn byrjaði að dansa til og frá á veginum. Við í seinni bílnum supum hveljur. Þegar hættan var liðin frá heyrðist frá Reyni, líklega 5 ára: „Vá, Didda keyrir alveg eins og Manix,“ en Manix var lögreglu- maður í þáttaröð sem þá var í sjónvarpinu. Þetta var alltaf ein- kennandi fyrir Reyni og þau eru ófá hnitmiðuðu gullkornin sem frá honum komu og gerðu augnablikin bæði eftirminnilegri og skemmtilegri. Yndislegri og dagfarsprúðari mann en Reyni er vart hægt að hugsa sér. Hann hafði sérlega góða nærveru og við systkinin vorum svo heppin að hann naut þess jafnmikið að koma til okk- ar, og við nutum þess að fá hann. Síðustu ár má segja að við höfum verið í daglegum sam- skiptum og á heimilum okkar var hann ekki gestur heldur heimilismeðlimur. Hann var í raun „límið“ í systkinahópnum og fyrir það og svo ótalmargt annað er ég honum eilíflega þakklát. Við systkinin værum án efa ekki eins náin og miklir fé- lagar ef Reynis hefði ekki notið við. Hann fylgdist vel með sínu fólki og var umhugað um að allir hefðu það gott og að allt gengi vel hjá öllum í kringum hann. Ég kveð þið með söknuði elsku Reynir minn. Þín systir Hildur. Nú er komið að því að við kveðjum Reyni sem við kynnt- umst fyrir níu árum, þegar hann flutti í Viðarrima 42. Okkur þótti Reynir strax við fyrstu kynni ákaflega skemmtilegur maður, hann var ræðinn og hafði gaman af að spjalla en eftir því sem við kynntumst honum betur varð okkur ljósara hvað hann hafði sterkan og fallegan persónuleika að geyma. Reyni var umhugað um fólk og sem dæmi má nefna að hann mundi afmælisdaga flestra í Viðarrimanum, bæði íbúa og starfsfólks, og var ávallt fyrstur til að óska viðkomandi til hamingju með daginn. Hann var mikill aðdáandi vínarbrauða og kom ekki ósjaldan með þá tillögu að eitt slíkt væri keypt á föstu- dögum en stundum fór hann og keypti sjálfur vínarbrauð og vildi þá gjarnan bjóða öllum með sér. Reynir var stoltur maður og vildi að komið væri fram við sig af virðingu en hann sýndi einnig virðingu á móti, var úrræðagóð- ur (sérstaklega ef hann taldi sig vera komin í hugsanlegan Pepsi Max-skort), hafði skemmtilegan húmor og var mjög trúr sínum nánustu. Við dáðumst að því hvað hann átti einstaklega náið og fallegt samband við systkini sín, sem stóðu alltaf þétt við bakið á honum og hann var sér líka alveg meðvitaður um að þar stæði hann vel að vígi. Fyrir um þremur árum fórum við úr Viðarrimanum saman í sumarbústað. Þetta var ákaflega skemmtileg ferð og þar lék Reynir við hvern sinn fingur. Hann hafði oft orð á því eftir ferðina að gaman væri að fara aftur og alltaf stóð nú til að end- urtaka leikinn. Svo fór að ekkert varð úr því en minninguna um þessa ferð munum við geyma. Tveir staðir á landinu voru Reyni mjög hjartfólgnir en það var Hríseyjargatan á Akureyri og Hrísey. Þangað fór hann á hverju sumri og dvaldi þar ávallt í nokkrar vikur og var til- hlökkunin mikil áður en lagt var af stað. Einungis tveimur dög- um áður en hann lést hafði hann orð á því að hann stefndi á að komast til Akureyrar núna í júlí. Á þessum níu árum sem við þekktum Reyni náði hann að eigna sér stað í hjörtum okkar, við geymum með okkur öll sam- tölin, ólsen-spilastundirnar, bíó- ferðirnar og bíltúrana. Sjáum fyrir okkur brosið og í eyrum okkar hljómar hláturinn. Hvíl í friði elsku Reynir, það voru forréttindi að fá að kynnast þér. Árdís, Birna og Hrönn. Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl, svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar, að víst er engin veröld fegri til en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar. (Davíð Stefánsson) Þessar ljóðlínur eiga vel við hann Reyni sem við kveðjum nú. En að vera hér fyrir norðan og búa í Hríseyjargötunni var hans draumaveröld. Þar átti hann yndislegar minningar og margar góðar stundir með ömmu sinni og Diddu frænku. Hvergi í ver- öldinni fannst honum betra að dvelja. En við hér í Þingó sökn- um kærs vinar, sem aldrei kvartaði þótt lífið léki ekki við hann eins og okkur hin. Frá fæðingu átti hann við erfið veik- indi að stríða, sem að lokum urðu hans ofjarl. Reynir hafði ríka kímnigáfu og þær voru ófá- ar perlurnar sem frá honum komu. En nú er þessari jarðvist lokið og í nýjum heimkynnum bíður hans björt og fögur veröld, þar sem honum mun líða vel með öllum hinum englunum. Við biðjum Guð að blessa burtför góðs drengs. Elsku Steinberg, Hildur, Heimir og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur. Erla og Guðjón. Reynir Ríkarðsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.