Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 35
Taktu skrefin
á ströndina
Skannaðu
málið hér
Óskum eftir starfsfólki í dreifingu.
Góðar tekjur í boði, kannaðu málið á
www.postdreifing.is
Læknir óskast til starfa
Laus er til umsóknar staða læknis á sjúkrahúsinu
Vogi. Sóst er eftir lækni með áhuga á meðferð og
þjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur
þeirra. Helst er óskað eftir lækni í 100% starf en
hlutastarf eða tímabundið starf kemur til greina.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg læknisþjónusta á sérhæfðu sjúkrahúsi fyrir
fólk með fíknsjúkdóm, ásamt vaktþjónustu (gæslu-
vaktir)
• Þátttaka í teymisvinnu ásamt hjúkrunarfræðingum,
sjúkraliðum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum og
sálfræðingum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sérfræðiviðurkenning úr flestum sérgreinum kemur
til greina, s.s. geðlækningum, heimilislækningum
og lyflækningum
• Almennur læknir með lækningaleyfi án sérfræði-
menntunar kemur einnig til greina
• Íslenskukunnátta er skilyrði
• Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð
vinnubrögð
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og
Læknafélag Íslands. Umsókn fylgi náms- og starfs-
ferilskrá ásamt starfsleyfi.
Nánari upplýsingar veitir
Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs í
síma 530-7600 eða tölvupósti valgerdurr@saa.is
Helstu verkefni
• Ávöxtun eignasafns LSR samkvæmt
fjárfestingastefnu.
• Mótun fjárfestingastefnu og stefnu
um ábyrgar fjárfestingar.
• Stjórnun eignastýringarsviðs.
• Ábyrgð á upplýsingagjöf til stjórnar
og annarra aðila.
• Ábyrgð á greiningu verðbréfasafns.
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila
á fjármálamarkaði.
• Sjóðastýring.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
ásamt því að hafa verðbréfaréttindi.
• A.m.k. 5 ára reynsla af eignastýringu.
• Umfangsmikil þekking og reynsla af
fjármálamörkuðum.
• Leiðtogahæfni og drifkraftur.
• Framsýni, skipulag og áræðni.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og heilindi.
• Þekking og áhugi á ábyrgum fjárfestingum.
• Gott vald á hagnýtingu upplýsingatækni.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, jafnt
í töluðu sem rituðu máli.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí nk.
Sótt er um starfið á vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu. Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur Jóna
Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu
umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi.
Við búum að mikilli reynslu og þekkingu og vitum
að það krefst ábyrgðar og framsýni að ávaxta
eignir sjóðfélaga með traustum hætti til næstu
áratuga. LSR starfar í samræmi við vottað jafn-
launakerfi og jafnréttisáætlun sjóðsins.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
OGLEIÐTOGAHÆFNI
SVIÐSSTJÓRI EIGNASTÝRINGAR
FRAMSÝNI
Viltu stýra fjárfestingum stærsta lífeyrissjóðs landsins og halda utan um eignir ríflega 100.000
sjóðfélaga? LSR leitar að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga í starf sviðsstjóra
eignastýringar. Viðkomandi mun leiða reynslumikinn hóp sérfræðinga sem starfa í síbreytilegu
fjárfestingarumhverfi með trausta ávöxtun og ábyrgar fjárfestingar að leiðarljósi. Framundan eru
fjölbreytt og spennandi verkefni við aðstæður sem eru krefjandi en bjóða á sama tíma upp á
margvísleg tækifæri.