Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 48
Tónlistarhátíðin Hátíðni verður haldin á Borðeyri um helgina en hún hófst í gær. Er hún á vegum tónlistar- samlagsins Post-dreifingar og er nú haldin fjórða sinni. Fjöldi tónlistarmanna og hljómsveita kemur fram á Há- tíðni, m.a. DJ Flugvél og geimskip, Asalus, Dreymandi hundur, Drengurinn fengurinn og Haraldur Helgason, K. Óla og vinir og Svartþoka. Borðeyri stendur við Hrúta- fjörð á Ströndum. Hátíðni, hátíð Post-dreifingar, haldin í fjórða sinn á Borðeyri LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík gerðu góða ferð í Vesturbæinn og unnu 3:0-sigur á KR í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Varnarmaðurinn reyndi, Hall- dór Smári Sigurðsson, rak smiðshöggið með þriðja markinu og var það sögulegt; hans fyrsta mark á ferl- inum í efstu deild. »40 Halldór Smári skoraði fyrsta mark sitt í efstu deild í 164. leiknum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bílar af öllum stærðum og gerðum hafa verið líf og yndi Gísla S. Eiríks- sonar frá því hann var barn. „Bílar hafa alltaf fylgt mér, ég keypti fyrsta bíl minn með pabba sex mánuðum áður en ég fékk bílprófið 17 ára og síðan hef ég átt á þriðja hundrað bíla,“ segir hann. Um þessar mundir á BMW, tvennra dyra sportbíll árgerð 2003 sem lítur út eins og nýr þótt nær tuttugu ára sé, hug hans allan. „Hann er einn örfárra bíla á Íslandi með þetta útlit,“ segir hann hróðugur. Þau hjónin hafi keypt bílinn á Spáni fyrir nokkrum árum og flutt hann heim fyrir um þremur árum. „Ég hef lítið þurft að gera fyrir hann enda er hann mjög fínn eins og hann er. BMW-bílar eru enda vandaðir og ég kann vel við þá.“ Djásnið er með einkanúmerið BMW Z4. „Númerið er í raun teg- undin og því er það ekki venjulegt, en það er hluti dellunnar. Ég hef áður verið með einkanúmer en þetta er sérstakt enda er bíllinn sérstakur.“ Unnið við bíla í áratugi Gísli er húsasmiður að mennt og starfaði sem slíkur en eftir að hann slasaðist illa varð hann að fá sér aðra vinnu og hóf störf hjá bílaumboðinu Bifreiðum og landbúnaðarvélum, þar sem hann var deildarstjóri í vara- hlutadeild og sá meðal annars um að panta varahluti í bíla. „Ég ílengdist hjá B & L í 30 ár, ekki síst vegna þess að þar snerist allt um bíla og því skemmtilegt í vinnunni.“ Fyrsti bíllinn, sem Gísli keypti með föður sínum, var Volkswagen Variant, en rétt eftir að hann tók bíl- prófið fékk hann sér eigin bíl. „Það var gömul Volkswagen-bjalla.“ Um árabil hefur hann keypt bíla, lagað þá sjálfur eða farið með þá á viðurkennd verkstæði, ef þess hefur þurft, og síð- an selt þá aftur. Lengi vel var hann einn í þessu en Gísli sonur hans hefur verið með honum undanfarin ár. Gísli leggur áherslu á að stússið við bílana sé áhugamál. „Við höfum alltaf lagt okkur fram við að hafa bílana okkar í 100% lagi, höfum gert frekar meira en minna fyrir þá.“ Hann bendir á að hann sé hættur að vinna og gott sé að hafa svona verkefni í þrönga bílskúrnum, þar sem hann dundi sér oft í gryfjunni. „Ég þekki marga bifvélavirkja eftir að hafa unnið lengi í faginu og þegar mikið er að fer ég með bílana á viðurkennd verkstæði og læt laga það sem þarf að laga. Þetta er skemmtilegt áhuga- mál.“ Tegundirnar eru margar og bíl- arnir enn fleiri sem hafa öðlast nýtt og betra líf í höndum Gísla. „Ég hef reyndar verið lítið í amerískum bíl- um, því það er meira mál að laga þá en aðra bíla.“ Hann segist sérstaklega hrífast af svokölluðum „sparibílum“, sem séu oftar en ekki lítið keyrðir. „Sem bet- ur fer eru margir sérstakir bílar til á Íslandi,“ segir hann og snýr sér að sportbílnum sínum. „Ég væri örugg- lega meðlimur í Fornbílaklúbbnum ef ég ætti nógu gamlan bíl, en ég keyrði BMW-inn 153 kílómetra árið 2020 og aðeins meira í fyrra. Hann er eiginlega bara safngripur í skúrn- um.“ Safngripur í skúrnum - Gísli S. Eiríksson hefur átt á þriðja hundrað bíla - Heillast af sérstökum bílum og ekki síst í eldri kantinum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Í uppáhaldsbílnum Gísli S. Eiríksson í BMW-sportbílnum árgerð 2003. Draumabíllinn Einkanúmerið BMW Z4 segir allt um tegundina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.