Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 14

Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa Með vísan til laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun, er fyrirhugað að halda próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa í október 2022 sem hér segir: Próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum: Fimmtudaginn 6. október. Prófið hefst kl. 9 og stendur til kl. 14. Próf í endurskoðun og reikningsskilum: Fyrri hluti mánudaginn 10. október. Seinni hluti fimmtudaginn 13. október. Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 16. Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 595/2020 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa. Próftökugjald er kr. 360.000 fyrir próf í endurskoðun og reiknings- skilum og kr. 120.000 fyrir próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðar- bókhaldi og stjórnendareikningsskilum. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir hvort próf sem er 20% af fjárhæð prófgjalds. Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir mánudaginn 8. ágúst nk. til prófnefndar. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi eða í tölvupósti á jon.a.baldurs@gmail.com. Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 5. og 7. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 94/2019. Próftakar fá þá senda reikninga fyrir prófgjaldinu og skal allt prófgjaldið vera greitt fyrir 15. september nk. Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk. Reykjavík, 2. júlí 2022. Prófnefnd löggiltra endurskoðenda. Uppi á Litla-Saxhóli í Snæfellsþjóðgarði láta starfs- menn frá Fönix stálsmiðju látlausan ferðamanna- strauminn upp á gíginn ekki trufla sig en þeir voru í vikunni að setja þar upp og sjóða saman útsýnispall úr korten-stáli. Í baksýn er Snæfellsjökullinn hulinn skýj- um. Útsýnispallurinn tekur við af rómuðum stálstíg eða tröppum sem liggja þangað upp. Árið 2018 var efnt til alþjóðlegrar samkeppni um verk á sviði landslagsmót- unar. Verðlaunin, kennd við Rosa Barba, voru veitt í Barcelona á Spáni og fékk tröppustígurinn upp á Litla- Saxhól fyrstu verðlaun. Byrjað var að leggja stíginn árið 2014 og verkinu lauk 2016. Stígurinn var hannaður af teiknistofunni Landslagi í Reykjavík. Morgunblaðið/Einar Falur Útsýnispallur í smíðum á Litla- Saxhóli í Snæfellsþjóðgarði Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is „Flutningurinn hingað breytti öllu og gerði gott fyrirtæki enn betra,“ segir Haraldur Þór Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota í Kaup- túni í Garðabæ, í samtali við Morg- unblaðið. Í dag, 2. júlí, eru slétt tíu ár frá því að Toyota flutti í Kaup- túnið. Af því tilefni tók Morgun- blaðið hús á félaginu til að sjá hvernig farið hefur um starfsemina á þeim áratug sem liðinn er. Starfsemi fé- lagsins var áður dreifð í 11 bygg- ingum við Ný- býlaveg í Kópa- vogi, þar sem fermetrafjöldinn taldi í heild rúm- lega 15 þúsund. Allar deildir voru við flutn- inginn samein- aðar undir einu þaki í tæplega 13 þúsund fermetr- um í Kauptúni, en að sögn Har- aldar Þórs reyndist það algjör bylting fyrir bæði starfsmenn og viðskiptavini Toyota og Lexus. „Aðstaðan við Nýbýlaveg nýttist vel á sínum tíma, en það var ljóst að starfsemin og reksturinn gat ekki vaxið þar, enda ekki rými til þess. Með því að flytja starfsemina hingað gjörbreyttist þjónustustig félagsins til hins betra, aðstaða starfsmanna var mun betri og síð- ast en ekki síst varð aðkoma við- skiptavina margfalt betri,“ segir Haraldur Þór, sem hefur starfað hjá Toyota í 30 ár og þar af sem framkvæmdastjóri síðastliðin 14 ár. „Hér er einn inngangur þar sem viðskiptavinir geta síðan komið bæði að þjónustudeild og söludeild. Við höfum mælt ánægju við- skiptavina í mörg ár og eftir að við fluttum sýndu mælingar að við uppfyllum þarfir þeirra mun betur. Að sama skapi höfum við búið til betri vinnustað fyrir starfsmenn, þar sem nándin er meiri og stuðn- ingur á milli deilda mun betri en áður var. Það skilar sér í betri þjónustu.“ Innlegg frá starfsmönnum Byko var til skamms tíma í því húsnæði þar sem Toyota og Lexus í Kauptúni eru nú og eins og gefur að skilja var nokkuð mikið rými sem hægt var að endurskipuleggja. Haraldur Þór leiðir blaðamann inn á verkstæði félagsins, sem þekur 3.500 fermetra og inniheldur 47 lyftur. Það er full þörf á slíku, þar sem það eru um 55 þúsund Toyota- bifreiðar í landinu sem þarf að þjónusta allan ársins hring. „Áður en fluttum héldum við rýnifundi með starfsmönnum og þeir komu með mikilvæg innlegg í það hvernig við hönnuðum hús- næðið,“ segir Haraldur Þór. „Frá upphafi var lagt upp með það að það skiptir ekki máli hvort við fáum hingað fólksbíl eða jeppa, það er nægt rými til að taka á móti öllum tegundum bíla hvenær sem er. Það er óhætt að segja að þjón- usta við bifreiðar sé umfangsmesta starfsemin hér, þegar horft er til mannskapar og rýmis, en innan hennar fellur stór varahlutalager sem og stærsta málningar- og rétt- ingarverkstæði landsins.“ Í norðausturhluta hússins má finna sérstakan sýningarsal fyrir Lexus, en þó svo að Lexus sé í eigu Toyota gera alþjóðlegir staðlar ráð fyrir því að þær bifreiðar séu seld- ar sér undir eigin vörumerki. Góð nýting á húsnæði Það vekur athygli blaðamanns að húsnæðið, í það minnsta sá hluti sem viðskiptvinir sjá, hefur lítið breyst á liðnum árum. Spurður nánar um það segir Haraldur Þór að húsnæðið hafi í raun nær ekkert breyst. „Við vorum aftur á móti sífellt að breyta aðstöðunni við Nýbýlaveg og reyna að nýta sem best það pláss sem þar var í boði. Eftir að hafa sem fyrr segir átt fundi með starfsmönnum og fengið þeirra sýn á eigin vinnustað náðum við að skipuleggja húsið þannig að það hefur staðist tímans tönn,“ segir hann. „Ef við værum í óhentugu hús- næði færi mikill tími í að finna leið- ir til að nýta það betur eða reyna að laga það einhvern veginn. Þess vegna skipti þetta okkur miklu máli, að geta flutt hingað þar sem við fengum nægilegt rými og gát- um skipulagt húsið eftir okkar höfði. Og þegar ég segi „okkar“ á ég við alla starfsmenn. Húsið og aðstaðan hér hefur reynst okkur það vel að við getum einbeitt okkur frekar að því að hlúa að starfsfólki, gera verkferla betri og svo fram- vegis. Við erum með daglega fimm mínútna fundi í hverri deild ásamt vikulegum og mánaðarlegum fund- um stjórnenda. Það hefur gefið góða raun þar sem hugmyndir flæða á milli starfsmanna og deilda á hverjum degi og tryggir þannig í senn ánægju starfsmanna og þjón- ustu við viðskiptavinina.“ Flutningurinn bætti fyrirtækið Morgunblaði/Arnþór Birkisson Sýningarsalur Viðskiptavinir og gestir Toyota sjá aðeins brot af húsinu í sýningarsal nýrra og notaðra bíla. Heilmikil vinna fer fram á bak við tjöldin. - Tíu ár eru liðin í dag frá því að Toyota og Lexus fluttu starfsemi sína undir eitt þak í Kauptúni - Starfsmenn komu að hönnum vinnurýmis - Yfir 100 bílar fara í gegnum þjónustu á hverjum degi Morgunblaði/Arnþór Birkisson Verkstæði Alla jafna fara yfir 100 bílar á dag í gegnum þjónustu á verk- stæði Toyota. Þar eru 47 lyftur og nægilegt rými til að athafna sig. Haraldur Þór Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.