Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
„Þessi lög eru silfurtær eins og lind
sem mann langar að teyga úr enda-
laust … Það er sannarlega dýrð í
dauðaþögn en enn meiri dýrð er í
góðri tónlist sem þessari. Vonandi
er Ásgeir Trausti bara rétt að hefja
ferð sína í gegnum þagnarmúrinn.“
Svona skrifaði María Ólafsdóttir í
Morgunblaðið haustið 2012 er
fyrsta plata Ásgeirs Trausta kom
út. Og henni átti svo sannarlega
eftir að ratast satt orð á munn.
Platan sló óforvarandis í gegn hér-
lendis, seldist í bílförmum eiginlega
(yfir 40.000 eintök seld í dag) og
Frónbúar báru þennan rétt svo tví-
tuga pilt um á gullstóli í kjölfarið.
Og ekki að undra, tónlistin er nokk-
urn veginn eins og María lýsir,
falleg og melódísk og svo áreynslu-
laus eitthvað. Lindarlíkingin er góð.
Í kjölfarið átti Ásgeir eftir að leggj-
ast í víking og það með góðum ár-
angri. Er í dag með þekktustu
nöfnum íslenskum á erlendri
grundu, með aðdáendur víða um
veröld og bregður sér reglubundið í
hljómleikaferðalög.
Sjálfur var ég nýfluttur til
Skotlands þetta haustið og missti
meira og minna af þessu fári öllu.
Gat þó rýnt af krafti í næstu plötu
hans, Afterglow, sem gagnrýnandi
RÚV og líkti tónlistinni þá við fljót.
Hafði ekki lesið dóm Maríu samt!
Þar sagði ég m.a.: „Afterglow er
hugrakkt verk. Platan er seintekin,
gefur sig ekki og eftir að hafa
þrætt sæmilega kunnuglegar slóðir
Algjör (dauða)þögn er best
á fyrri hluta plötunnar tekur Ásgeir
stökk inn á ókannað svæði á þeim
seinni.“
Afterglow var sem sagt engin
endurtekning á fyrra afreki, þess
haglega gætt reyndar, og platan
hin stöndugasta, verð ég að segja,
einmitt vegna þess útgangspunktar.
Fyrir minn hatt hefur hann þó aldr-
ei gert betur en á síðustu plötu sem
er óður til rótanna, heimahaganna.
Í skrifum mínum um Sátt/Bury the
Moon fyrir RÚV sagði ég: „Þetta
eru fallegar smíðar, umlykja hlust-
andann, leyfa honum að gleyma sér.
Strengir, blástur og forritun, allt í
fallegu jafnvægi … Eins bjánalega
og það kann að hljóma hefur Ásgeir
aldrei verið meiri „Ásgeir“ en ein-
mitt hér. Hann er kominn heim.“
Svona hefur Ásgeir haldið um
tauma. Gætt þess að vera skapandi
en halda sig þó innan kunnuglegs
heims. Og nú hyggst hann taka of-
an fyrir frumburðinum sem kom út
í gær í sérstakri viðhafnarútgáfu, á
þrítugsafmæli höfundarins. Um er
að ræða tvöfaldan vínyl, í forláta
opnanlegu umslagi („gatefold“) og
er hann grænn í þokkabót. Fjórða
hliðin er án tónlistar en skartar
hins vegar grafinni mynd af
Ásgeiri. Platan inniheldur fjögur
aukalög og þar af eru tvö áður óút-
gefin. Einnig kemur hún út á svört-
um vínyl og á geisladiski. Ekki nóg
með það heldur verða tónleikar í
Eldborg í endaðan ágúst. Stór-
hljómsveit og strengir styðja þá við
flutning á plötunni í heild sinni.
Ég gluggaði í viðtal sem Silja
Björk Huldudóttir tók við okkar
mann í september 2012. Þá hafði
platan verið að seljast von úr viti og
Ásgeir standandi hissa eins og
flestir. Þar lýsir hann því að hann
gæti vel hugsað sér að gera tón-
listarkennslu að framtíðarstarfi en
þá var hann kenna krökkum á
Hvammstanga tónmenntir. Svo
varð ekki, eðlilega, þó að Ásgeir
hafi vissulega kennt okkur eitt og
annað með listfengi sínu á síðustu
árum.
»
Sjálfur var ég
nýfluttur til Skot-
lands þetta haustið og
missti meira og minna
af þessu fári öllu.
Þá Ásgeir Trausti, í kringum út-
gáfuna á Dýrð í dauðaþögn, 2012.
Ásgeir Trausti fagnar
tíu ára afmæli plöt-
unnar Dýrð í dauða-
þögn, verkinu sem
hrundi ferli hans af
stað, með endurútgáfu
og hljómleikum.
Frumburður Umslag plötunnar
sem kom Ásgeiri af stað.
Í dag Ásgeir
Trausti, anno
2022.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
79%
82%
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR
“THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE”
“A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR”
“A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME”
100%