Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 43

Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 43
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is „Þessi lög eru silfurtær eins og lind sem mann langar að teyga úr enda- laust … Það er sannarlega dýrð í dauðaþögn en enn meiri dýrð er í góðri tónlist sem þessari. Vonandi er Ásgeir Trausti bara rétt að hefja ferð sína í gegnum þagnarmúrinn.“ Svona skrifaði María Ólafsdóttir í Morgunblaðið haustið 2012 er fyrsta plata Ásgeirs Trausta kom út. Og henni átti svo sannarlega eftir að ratast satt orð á munn. Platan sló óforvarandis í gegn hér- lendis, seldist í bílförmum eiginlega (yfir 40.000 eintök seld í dag) og Frónbúar báru þennan rétt svo tví- tuga pilt um á gullstóli í kjölfarið. Og ekki að undra, tónlistin er nokk- urn veginn eins og María lýsir, falleg og melódísk og svo áreynslu- laus eitthvað. Lindarlíkingin er góð. Í kjölfarið átti Ásgeir eftir að leggj- ast í víking og það með góðum ár- angri. Er í dag með þekktustu nöfnum íslenskum á erlendri grundu, með aðdáendur víða um veröld og bregður sér reglubundið í hljómleikaferðalög. Sjálfur var ég nýfluttur til Skotlands þetta haustið og missti meira og minna af þessu fári öllu. Gat þó rýnt af krafti í næstu plötu hans, Afterglow, sem gagnrýnandi RÚV og líkti tónlistinni þá við fljót. Hafði ekki lesið dóm Maríu samt! Þar sagði ég m.a.: „Afterglow er hugrakkt verk. Platan er seintekin, gefur sig ekki og eftir að hafa þrætt sæmilega kunnuglegar slóðir Algjör (dauða)þögn er best á fyrri hluta plötunnar tekur Ásgeir stökk inn á ókannað svæði á þeim seinni.“ Afterglow var sem sagt engin endurtekning á fyrra afreki, þess haglega gætt reyndar, og platan hin stöndugasta, verð ég að segja, einmitt vegna þess útgangspunktar. Fyrir minn hatt hefur hann þó aldr- ei gert betur en á síðustu plötu sem er óður til rótanna, heimahaganna. Í skrifum mínum um Sátt/Bury the Moon fyrir RÚV sagði ég: „Þetta eru fallegar smíðar, umlykja hlust- andann, leyfa honum að gleyma sér. Strengir, blástur og forritun, allt í fallegu jafnvægi … Eins bjánalega og það kann að hljóma hefur Ásgeir aldrei verið meiri „Ásgeir“ en ein- mitt hér. Hann er kominn heim.“ Svona hefur Ásgeir haldið um tauma. Gætt þess að vera skapandi en halda sig þó innan kunnuglegs heims. Og nú hyggst hann taka of- an fyrir frumburðinum sem kom út í gær í sérstakri viðhafnarútgáfu, á þrítugsafmæli höfundarins. Um er að ræða tvöfaldan vínyl, í forláta opnanlegu umslagi („gatefold“) og er hann grænn í þokkabót. Fjórða hliðin er án tónlistar en skartar hins vegar grafinni mynd af Ásgeiri. Platan inniheldur fjögur aukalög og þar af eru tvö áður óút- gefin. Einnig kemur hún út á svört- um vínyl og á geisladiski. Ekki nóg með það heldur verða tónleikar í Eldborg í endaðan ágúst. Stór- hljómsveit og strengir styðja þá við flutning á plötunni í heild sinni. Ég gluggaði í viðtal sem Silja Björk Huldudóttir tók við okkar mann í september 2012. Þá hafði platan verið að seljast von úr viti og Ásgeir standandi hissa eins og flestir. Þar lýsir hann því að hann gæti vel hugsað sér að gera tón- listarkennslu að framtíðarstarfi en þá var hann kenna krökkum á Hvammstanga tónmenntir. Svo varð ekki, eðlilega, þó að Ásgeir hafi vissulega kennt okkur eitt og annað með listfengi sínu á síðustu árum. » Sjálfur var ég nýfluttur til Skot- lands þetta haustið og missti meira og minna af þessu fári öllu. Þá Ásgeir Trausti, í kringum út- gáfuna á Dýrð í dauðaþögn, 2012. Ásgeir Trausti fagnar tíu ára afmæli plöt- unnar Dýrð í dauða- þögn, verkinu sem hrundi ferli hans af stað, með endurútgáfu og hljómleikum. Frumburður Umslag plötunnar sem kom Ásgeiri af stað. Í dag Ásgeir Trausti, anno 2022. Morgunblaðið/Styrmir Kári MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com 79% 82% HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR “THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE” “A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR” “A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME” 100%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.