Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 28
28 MESSUR
á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
ARNARBÆLI Í ÖLFUSI | Útiguðs-
þjónusta kl. 14.
Kirkjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna leiðir söng, sr. Ninna
Sif Svavarsdóttir þjónar. Að guðsþjón-
ustu lokinni verður boðið upp á
kirkjukaffi í boði Kotstrandarsóknar
og kirkjukórsins. Ef veðrið bregst
verður guðsþjónustan í Kotstrandar-
kirkju.
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi-
stund kl. 11. Kirkjukórinn leiðir í al-
mennum söng. Organisti er Krisztina
K. Szklenár. Sr. Þór Hauksson flytur
hugleiðingu og þjónar fyrir altari.
ÁSKIRKJA | Sumarmessa Laugar-
dalsprestakalls í Áskirkju kl. 11.
Séra Davíð Þór Jónsson þjónar. Org-
anisti er Magnús Ragnarsson. Sjá
nánar um sumarmessur og prests-
þjónustu í prestakallinu á askirkja.is.
ÁSKIRKJA í Fellum | Sunnudagur.
Messa kl. 14 – Innsetning prests.
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, pró-
fastur á Austurlandi, setur sr. Krist-
ínu Þórunni Tómasdóttur inn í emb-
ætti prests í Egilsstaðaprestakalli
með sérstakar skyldur við Ássókn.
Kór Áskirkju syngur. Organisti: Jón
Ólafur Sigurðsson. Meðhjálpari: Berg-
steinn Brynjólfsson. Lesari: Kristófer
Hilmar Brynjólfsson.
Að messu lokinni býður sóknarnefnd
Ássóknar í kaffisamsæti í Kirkjusel-
inu Fellabæ.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta fellur inn í Sumarkirkjuna, sam-
starfsverkefni kirknanna í Hafnarfirði
og Garðabæ. Suðsþjónusta í Garða-
kirkju kl. 11:00. Sjá nánar undir
Garðakirkja
BESSASTAÐASÓKN | Sumar-
messur í Garðakirkju alla sunnudaga
kl. 11.
Sjá Garðakirkja hér í síðunni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa í
Bústaðakirkju 3. júlí kl. 20:00.
Bernadette Hegyi syngur og Jónas
Þórir spilar á flygilinn, sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir þjónar ásamt messu-
þjónum.
DÓMKIRKJAN | Messa 3. júlí kl.
11. Prestur er Jón Ásgeir Sigurvins-
son, Pétur Nói Stefánsson leikur á
orgelið. Dómkórinn syngur.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Útimessa í
Selskógi – Organisti kvaddur. Árleg
guðsþjónusta í útileikhúsinu í Sel-
skógi á Egilsstöðum sunnudag kl.
10.30. Torvald Gjerde leikur á harm-
oniku undir almennum söng og prest-
ar Egilsstaðaprestakalls þjóna. Þetta
verður síðasta guðsþjónusta Torvalds
sem organisti Egilsstaðakirkju eftir
yfir 20 ára starf og verður hans fram-
lag þakkað sérstaklega við þetta til-
efni.
Veitingar í skóginum að messu lok-
inni.
GARÐAKIRKJA | Kl. 11:00 Sum-
armessa í Garðakirkju. Gengið verður
til messu í Garðakirkju sunnudaginn
3. júlí. Þau sem vilja ganga mæti kl.
10:00 við Hafnarfjarðarkirkju og mun
Egill Friðleifsson leiða gönguna.
Messan hefst svo kl. 11 í Garða-
kirkju, sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar og
Ástvaldur Traustason leikur á orgel
og leiðir fjöldasöng með harmónikku-
undirleik á eftir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa-
messa sunnudag kl. 11. Kaffihúsa-
messur eru sumarmessur og verða á
sunnudögum kl. 11 út ágústmánuð.
Sr. Magnús Erlingsson þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Org-
anisti er Hákon Leifsson. Kaffi og
meðlæti.
GRENSÁSKIRKJA | Messa 3. júlí
kl. 11. Guðspjall dagsins fjallar um
góða hirðinn og við veltum fyrir okkur
hverjir þessi 99 sauðir eru og hverjir
eru týndi sauðurinn. Kristín Waage
organisti spilar, Kirkjukór Grensás-
kirkju leiðir messusönginn og sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt
messuþjónum.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.
Prestur er Pétur Ragnhildarson. Org-
anisti er Hrönn Helgadóttir og kór
Guðríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður er
Guðný Aradóttir.
Kaffisopi í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
í Garðakirkju kl. 11, gengið verður frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 10 undir leið-
sögn Egils Friðleifssonar. Sr. Jónína
Ólafsdóttir þjónar fyrir altari. Ástvald-
ur Traustason leikur á orgel og leiðir
fjöldasöng eftir messu með harm-
ónikkuundirleik.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur Irma Sjöfn Óskarsdóttir.
Messuþjónar aðstoða. Nordisk Kon-
certkor Nuuk syngur. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson.
Sunnudagur 3. júlí kl. 17. Orgeltón-
leikar. Organisti, Matthías Harðarson.
Píanóleikari, Guðný Charlotta Harð-
ardóttir. Miðaverð 3000 ISK.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar í
Kordíu kór Háteigskirkju leiða messu-
söng. Kaffisopi eftir messu.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
sunnudag kl. 11. Prestur er Sigurjón
Árni Sigfússon
HOFTEIGSKIRKJA | Hofteigskirkja á
Jökuldal. Laugardagur 2. júlí: Messa
kl. 14. Ferming. Prestur er Þorgeir
Arason. Organisti er Jón Ólafur Sig-
urðsson.
HVALSNESKIRKJA | Sumarmessur á
Suðurnesjum. Sjá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sumar-
messa í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnu-
dag kl. 20. Keflavíkurkirkja tekur þátt
í sumarmessunum. Sjá Njarðvíkur-
kirkjur hér á síðunni.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Lenka Mátéová
leikur á orgel kirkjunnar.
LÁGAFELLSKIRKJA | Sunnudaginn
3. júlí verður sumarguðsþjónusta kl.
11. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir
Linn þjónar fyrir altari og Þórður Sig-
urðarson organisti sér um tónlist og
leiðir safnaðarsöng. Meðhjálpari
Hanna Margrét Gísladóttir.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA, |
Sunnudagurinn 3. júlí. Kvöldmessa í
Lögmannshlíðarkirkju kl. 20:00. Séra
Magnús G. Gunnarsson þjónar, Sig-
rún Magna Þórsteinsdóttir organisti
og Margrét Árnadóttir söngkona sjá
um tónlistina.
NESKIRKJA | Kaffihúsamessa í
safnaðarheimili. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða söng. Prestur
er sr. Steinunn A. Björnsdóttir.
SANDGERÐISKIRKJA | Sumar-
messur á Suðurnesjum. Sjá Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Sumarmessur á
Suðurnesjum. Sjá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í
Garðakirkju, alla sunnudaga kl.
11:00.
Sjá Garðakirkja hér á síðunni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sumarmessur í Garðakirkju alla
sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja
tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá
Garðakirkja hér á síðunni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Göngu-
messa – gengið frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju 3. júlí kl. 20.00. Kristján Jó-
hannsson gengur með okkur um
„gömlu“ Ytri -Njarðvík og segir sögur
af húsunum og fólkinu sem þar bjó.
Sr. Brynja Vigdís leiðir bæn og bless-
un. Stefán Helgi organisti leiðir söng
við upphaf og lok stundarinnar.
Boðið verður upp á kaffi og konfekt
við lok stundarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Egilsstaðakirkja
✝
Þorsteinn
Norðfjörð
Lindbergsson
fæddist í Neskaup-
stað 2. júlí 1968.
Hann lést á Spáni
30. janúar 2022.
Þorsteinn var
sonur Lindbergs
Norðfjörð Þor-
steinssonar, f. 15.
ágúst 1936, og
Kömmu Andr-
ésdóttur, f. 19. október 1936,
d. 18. desember 2019.
Eftirlifandi eiginkona Þor-
steins er Fabiola Castillo Bar-
rera, f. 16. ágúst 1974. Sonur
Þorsteins er Lindberg Norð-
fjörð Þorsteinsson Gutiérrez, f.
25. nóvember 2000, og synir
Fabiolu eru Aaron Shwadsky
Castillo, f. 27. mars 2004, og
Isaac Shwadsky Castillo, f. 10.
febrúar 2006.
Systkini Þorsteins eru Stein-
unn, f. 1958, Jóhanna, f. 1960,
Andri, f. 1961, Sigríður, f.
1963 og Friðrik, f.
1978.
Þorsteinn bjó í
Moaña á Spáni þar
sem hann starfaði
sem gæðastjóri hjá
Iceland Seafood
Ibérica. Hann út-
skrifaðist úr Fisk-
vinnsluskólanum
og vann alla tíð
störf sem tengdust
sjávarútveginum.
Þorsteinn var fæddur og upp-
alinn í Neskaupstað, þar sem
hann gekk í Nesskóla og síðar
Verkmenntaskóla Austurlands.
Þorsteinn bjó í Neskaupstað til
ársins 1993 en þá fór hann til
Mexico í spænskunám þar sem
hann bjó til ársins 1998. Þaðan
flutti Þorsteinn til Hafnar-
fjarðar, lauk Fiskvinnsluskól-
anum og fluttist svo til Moaña
árið 2001.
Minningarathöfn verður
haldin í Norðfjarðarkirkju 2.
júlí klukkan 14.
Í dag kveðjum við Steina
frænda í hinsta sinn.
Steini frændi var einstakur,
þolinmóður og umhyggjusamur.
Alla tíð leit ég á hann sem stóra
bróður og hann á mig sem litlu
systur, þannig einkenndist sam-
band okkar. Á milli okkar ríkti
traust og vinátta. Ég er einstak-
lega þakklát fyrir að hann vissi
hvað mér þótti vænt um hann af
því að hann var duglegur að segja
mér hvað ég væri honum mikils
virði. Skilaboðin, myndirnar og
brandarana sem fóru á milli okkar
mun ég geyma á góðum stað.
Ég naut þeirrar gæfu að búa
með mömmu fyrstu ár ævi minnar
hjá ömmu og afa og ólst því upp
fyrstu árin mín með yngri systk-
inum mömmu. Í kringum sjö ára
aldur fannst okkur Friðrik
frænda fátt skemmtilegra en að
hrekkja Steina og þá helst ef hann
var sofandi inni í rúmi. Á þessum
árum var hann unglingur og að
mínu mati ægilegur töffari. Ég sé
hann ljóslifandi fyrir mér, með
strípur í hárinu og sítt að aftan og
í hljómsveit. Oft vaknaði hann ill-
ur við hrekkinn en um leið og
hann sá að ég var þarna þá var allt
fyrirgefið. Eins ef okkur Friðrik
vantaði eitthvað frá Steina þá var
ég alltaf send að spyrja af því að
hann sagði aldrei nei við mig.
Uppáhaldsminning mín með
Steina er án efa ferðin mín í heim-
sókn til hans í Mexíkó. Þar kynnti
hann mér borgina, fór með okkur í
ferðalag frá Mexíkóborg til Ixtapa
og þreyttist ekki á kenna mér eitt
og eitt orð í spænsku, fræða mig
um Acapulco og leyfa mér að
fljóta með honum og vinum hans á
barinn, þar sem hann þýddi allar
samræður fyrir mig.
Alltaf ríkti gleði í kringum
Steina, hann hafði eitthvert ljós
yfir sér sem ég get ekki útskýrt.
Hann var alltaf hvetjandi og vildi
alltaf gera allt fyrir mann. Sökn-
uðurinn eftir spjalli, með kaffi-
bolla við eldhúsborðið hjá afa, er
óbærilegur.
Ég kveð þig nú, elsku stóri
bróðir, með þessu ljóði, sjáumst
þegar minn tími kemur.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Fabi, Limmi, Aaron,
Isaac og afi. Missir ykkar er mikill
og votta ég ykkur mína innileg-
ustu samúð.
Þín litla systir,
Berglind.
Léttur, ljúfur, kátur eru lýsing-
arorð sem okkur kemur í huga
þegar við minnumst Þorsteins
Lindbergssonar, eða Steina
Limma eins og hann var alltaf
kallaður. Þegar við lokum augun-
um og látum okkur svífa á æsku-
slóðir í fjörðinn okkar fagra,
Norðfjörð. Eigum við bekkjar-
systkini Steina margar góðar
minningar tengdar honum, enda
mikill fjörkálfur og uppátækja-
samur. Við brölluðum margt sam-
an, hvort sem var í fjörunni, lysti-
garðinum, úti í Urðum, á
fótboltavellinum, í íþróttahúsinu
eða Oddsskarðinu yfir vetrartím-
ann, en Steini var sannarlega einn
af konungum fjallanna og getum
við enn séð hann fyrir okkur skíða
frjálsan í brekkunum eða agaðan í
skíðabrautinni. Við vonum að
hann svífi eins frjáls í sumarland-
inu og söknum þess að hafa náð að
hitta hann oftar á fullorðinsárum
okkar. En sögurnar bíða þar til
næst, kæri bekkjarbróðir og vin-
ur.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Við vottum fjölskyldu Steina
Limma okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd bekkjasystkina,
Ólína Freysteinsdóttir,
Birkir Sveinsson.
Þorsteinn Norð-
fjörð Lindbergsson
Minningar
Vinur minn Hlöð-
ver Örn Ólason (oft-
ast kallaður Hlöbbi)
er látinn. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 18. júní sl. eftir erfið
krabbameinsveikindi. Ég kynntist
Hlöðver á menntaskólaárum mín-
um (1964-1968) í gegnum bekkjar-
félaga, Magnús Ólason bróður
hans. Það sem tengdi okkur sam-
an var sameiginlegur áhugi á
bridge og knattspyrnu.
Margs er að minnast á rúmlega
hálfrar aldar samleið. Á skólaárun-
um kynntumst við vel og vorum við
Gunnar Ingi Birgisson tíðir gestir
hjá honum og systkinum hans í
Nóatúni en þar bjó Hlöðver á
námsárum sínum. Þar var oft tekið
í spil, en Hlöðver hafði gott forskot
á okkur þar sem mikil spilahefð
ríkti á Akranesi og var faðir hans
góður bridgespilari. Í Nóatúni nut-
um við þess að hann var höfðingi
heim að sækja og kokkur góður.
Þar fengum við félagarnir margan
góðan kvöldverðinn. Við komumst
að því að Hlöðver hafði byrjað
snemma að vinna og okkur varð
ljóst að hann hafði ávallt unnið með
námi, bæði til sjós og lands. Frá
Nóatúni sóttum við félagarnir oft í
veitingahús og lágu Röðull og
Þórskaffi vel við fæti. Enn fremur
fórum við oft saman í Klúbbinn,
Loftleiðir og Hótel Sögu.
Hlöðver lauk námi frá Vélskóla
Íslands og fór síðan í framhalds-
nám í tæknifræði í Álaborg. Eftir
að því námi lauk fluttu hann og
Sigríður eiginkona hans í íbúð í
Ugluhólum en byggðu svo hús í
Logafold í Grafarvogi. Fljótlega
Hlöðver Örn
Ólason
✝
Hlöðver Örn
Ólason fæddist
20. desember 1949.
Hann lést 18. júní
2022. Útför Hlöð-
vers fór fram 30.
júní 2022.
eftir að hann kom
heim frá Danmörku
fórum við að spila
reglulega og varð
Eiríkur Helgason
vinur hans þá fjórði
maður. Þetta gekk
svona til í nokkur ár.
Hlöðver varð fyrir
miklu áfalli þegar
eiginkona hans Sig-
ríður lést úr krabba-
meini 1987. Fljótlega
eftir andlát hennar fór Hlöðver á
vegum Eimskips hf. til vinnu í
skamman tíma bæði til Bandaríkj-
anna og Englands. Eftir aðra
heimkomu Hlöðvers átti spila-
klúbbur okkar eftir að stækka. Við
vorum svo lánsamir að fá Magnús
Ólason bróður Hlöðvers í hópinn.
Þetta var talsverð bylting hvað
varðar viðurgjörning allan, utan-
umhald um spilasjóð og ferðalög.
Klúbbnum okkar var lyft á hærra
plan. Undirritaður þurfti m.a. allt í
einu að hafa áhyggjur af matartil-
búningi fyrir félagana! Meðal
ferðalaga sem hópurinn fór í má
nefna London, París, Barcelona,
Madrid, Nice svo og Old Trafford
og ekki má gleyma Siglufirði. Síð-
asta ferð klúbbsins var haustið
2021 til Tenerife og var Hlöðver þá
búinn að ganga í gegnum strangar
krabbameinsmeðferðir.
Síðustu 15 árin var Hlöðver í
sambúð með Kristínu Waage og
reyndist hún honum mikil stoð og
stytta á þessum árum allt til enda.
Það er alltaf erfitt að kveðja góðan
vin og góðan dreng hinsta sinni.
Það tekur á. Í þessu tilviki veitti
Hlöðver mér ómældan styrk með
æðruleysi sínu. Megi sá styrkur
verða áfram til hjá Kristínu, Óla
og Eiríki. Minningin um góðan
dreng lifir.
Ég sendi öllum ættingjum og
öðrum ástvinum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Pétur Jónsson.
✝
Arnljótur Ein-
arsson fæddist
í Vestmannaeyjum
16. maí 1941. Hann
lést 30. apríl 2022.
Hann var sonur
hjónanna Lauf-
eyjar Guðjóns-
dóttur, kennara og
húsmóður, og Ein-
ars Arnar Björns-
sonar, bónda í Mý-
nesi í Eiðaþinghá.
Hann var elstur af sjö börnum
þeirra sem komust
á legg. Næst er Sig-
ríður Laufey, f.
1942, þá Björn, f.
1944, d. 2003, Ás-
kell, f. 1945, d.
2014, Úlfur, f. 1946,
d. 2019, Guðjón, f.
1949, og Hjörleifur,
f. 1955, d. 1981.
Útför Arnljóts
fór fram 9. maí
2022 í kyrrþey að
ósk hins látna.
Kæri stóri bróðir, kannski ég
hnoði einhverju saman!
Það voru átta ár á milli okkar
og við vorum ekkert mjög kunn-
ugir hvor öðrum fyrstu tuttugu til
þrjátíu árin, en þú ferð af okkar
heimili sextán ára og þá er ég bara
7-8 ára. Þú ferð til Seyðisfjarðar
að vinna og þaðan síðan til Ak-
ureyrar þar sem þú menntar þig
sem bifvélavirkjameistari. Síðan,
1965-6, flytur þú til Egilsstaða
með fjölskyldu þína, eiginkonu og
dóttur, rétt áður misstuð þið barn
sem fæddist fyrir tímann, sem var
mikill harmur fyrir þig og mál slík
ekki rædd í þá daga.
Eitt ár bjugguð þið í Mýnesi
meðan var verið að kanna að
koma upp verkstæði á Egilsstöð-
um (en þann vetur var ég að heim-
an í skóla). Fyrsta verkstæðið var
framan við Fagradalsbraut sem
nú er, en síðan byggðir þú verk-
stæði inn með Vallavegi og fékkst
lóð hjá Pétri á Egilsstöðum. Þessi
verkstæðisrekstur stóð yfir í tutt-
ugu ár. En þú komst líka upp fal-
legu heimili með þessu og bjugg-
uð þið í Bláskógum 2, fyrst á neðri
hæð og síðan efri.
Þú vandaðir mjög til verka og
þér líkaði ekkert fúsk, allt varð að
vera fyrsta flokks, og hafa margir
sagt þetta í mín eyru gegnum tíð-
ina. Margir voru búnir að vinna
hjá þér og þú útskrifaðir ein-
hverja sveina, en baráttan við
þetta var ekki alltaf dans á rósum
og í litlu samfélagi var stundum
tekist á og pólitíkin sterk. Þú
komst í gegnum þetta og gerðir að
þínu, áttir góða konu sem studdi
þig með ráðum og dáð og dóttirin
blómstraði, til fyrirmyndar í öllu
og mikið lík pabba sínum með
margt.
Þið flytjið svo búferlum til
Reykjavíkur 1985. Okkar sam-
band síðustu árin hefur verið þó
nokkuð mikið í síma en við hitt-
umst í borginni nokkrum sinnum
2019 (þegar við vorum þar vegna
veikinda mest það ár) en þú varst
farinn að bila í baki áður en þú
fórst til borgarinnar, sem svo
versnaði mikið. Síðan bættist við
hjartavandamál sem byrjaði með
fúski hjá læknum og þú varðst
aldrei góður af.
Við höfðum ráðgert að hittast í
sumar, en það fór á annan veg. Ég
og við biðjum fyrir kveðjur í sum-
arlandið, hittumst þar síðar, veit
að nokkrir munu taka vel á móti
þér. Þú varst mjög trúaður og
endaðir alltaf þínar kveðjur við
mig „guð veri með ykkur“ og ég
veit að hann er það.
Innileg samúð til dóttur og fjöl-
skyldu. Hafðu þökk fyrir sam-
fylgdina.
Þinn bróðir,
Guðjón.
Arnljótur
Einarsson