Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
✝
Kristbjörg
María Helga-
dóttir fæddist 25.
mars 1949 í Gerði,
Eskifirði. Hún lést
á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í
Neskaupstað 19.
júní 2022.
Kristbjörg eða
Lilla eins og hún
var alltaf kölluð
var dóttir Helga
Pálssonar, f. 26. júní 1897, d.
12. desember 1980, og Mekk-
ínar Kristjönu Guðnadóttur, f.
7. febrúar 1913, d. 23. janúar
1993. Þau bjuggu lengst af í
Gerði á Eskifirði og var Krist-
björg María yngsta barn þeirra
hjóna.
Kristbjörg átti sex systkini
Synir Kristbjargar og
Snorra eru: 1) Þorsteinn, f. 22.
nóvember 1969, giftur Ingi-
björgu Birgisdóttur og eiga
þau eina dóttur, Friðnýju Mar-
íu. 2) Kristinn Helgi, f. 15. júlí
1972, giftur Margréti Eiríks-
dóttur og börn þeirra eru
Gunnhildur Lilja, Natalía Sól
og Tristan Máni. 3) Páll, f. 13.
mars 1976, giftur Málmfríði
Einarsdóttur og eiga þau Þor-
stein Breka, Hrafnhildi Báru
og Rögnu Maríu. Fyrir á Páll
dótturina Alexöndru Mekkín.
4) Benedikt, f. 29. maí 1982,
giftur Ann-Kristin Künzel og
synir þeirra eru Júlíus Freyr
og Felix Hrafn.
Kristbjörg var húsmóðir en
vann einnig ýmis störf tengd
sjávarútvegi. Hún vann lengst
af hjá sjávarútvegsfyrirtækinu
Eskju hf. á Eskifirði en einnig
um tíma við síldarsöltun hjá
Friðþjófi hf.
Útför Kristbjargar Maríu
fer fram frá Eskifjarðarkirkju
í dag, 2. júlí 2022, klukkan 14.
sem öll eru látin.
Þau voru Haukur
Helgi, f. 1933,
fluttist til Dan-
merkur og lést þar
1992. Á Eskifirði
bjuggu Rafn, f.
1935, Guðni, f.
1940, Hörður, f.
1945, og Páll, f.
1941. Systir Krist-
bjargar var Erna
Sigríður, f. 1938,
sem lést fyrr á árinu.
Kristbjörg giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Þorsteini
Snorra Jónssyni, árið 1971.
Hann var sjómaður en starfaði
lengst sem verkstjóri í mjöl- og
lýsisvinnslu Eskju á Eskifirði.
Snorri er sonur Jóns Arnfinns-
sonar og Önnu Stefánsdóttur.
Elsku hjartans mamma mín.
Nú ertu farin frá okkur. Mik-
ið á ég eftir að sakna þín. Ég á
svo ótal margar minningar um
þig. Ein af þeim er þegar þú
vaktir mig, lítinn pjakk,
snemma morguns og gafst mér
Nesquik. Þú baðst mig um að
færa mig á koddann hans pabba
til að vera hjá Palla af því að þú
varst að fara að vinna í síld-
arsöltun og pabbi var á sjónum.
Þegar þú fórst svo í vinnuna
aftur eftir kvöldmat stóðum við
Palli á kolli og vöskuðum upp
og tókum til á heimilinu. Þú
varst svo glöð þegar þú komst
heim og sást hvað við höfðum
verið duglegir.
Ég hafði alltaf svo gaman af
því að vera nálægt þér. Þú
hafðir mig með þegar þú varst
að elda og baka. Við tókum til í
búrinu fyrir jólin og yfirleitt
vorum við að brasa í þessu seint
á kvöldin. Það er nú ekki langt
síðan við gerðum fiskibollur
saman. Mig langaði svo að læra
hvernig þú gerðir þær en ég
veit að þær verða aldrei eins og
hjá þér. Mamma, þú varst besti
kokkur í heimi og fengum við
að njóta margra ánægjustunda
við matarborðið í Bleiksárhlíð
37 þar sem þú reiddir fram
margar stórveislurnar.
Mamma, þú fylgdist alltaf vel
með mér og þegar ég var að
koma keyrandi niður Hólma-
hálsinn þá blikkaði ég bílljós-
unum því ég vissi að þú værir
við stofugluggann að bíða eftir
mér. Þú beiðst líka alltaf eftir
mér þegar ég var að koma af
sjónum. Þegar við fjölskyldan
komum keyrandi að norðan þá
beiðstu eftir okkur við stofu-
gluggann.
Einn góður vinur minn sagði
við mig að við bræðurnir hefð-
um unnið í foreldralottóinu. Það
er alveg rétt. Ég er enn með
annan fótinn á heimilinu ykkar
pabba og hef notið þess að eiga
samveru með ykkur þegar ég
hef verið í landi og ekki verið á
heimleið.
Við vorum alltaf dugleg að
heyra hvort í öðru og spjalla
um hversdagslega hluti. Þá má
ekki gleyma skemmtilegu sím-
tölunum þegar við vorum að
elda jólamatinn, rjúpurnar og
kálið. Þá vorum við að elda
saman en þó sitt í hvorum
landshlutanum. Við fylgdumst
að í matseldinni, steiktum rjúp-
urnar á sama tíma og byrjuðum
á sósunni.
Við áttum mjög góðar stund-
ir þar sem við sátum tvö og
spjölluðum um börnin mín sem
þér þótti svo ofur vænt um. Ég
sagði þér sögur af þeim og hvað
við værum að gera og hafðir þú
alltaf svo gaman af því. Mamma
þú vildir alltaf öllum vel. Þú
kvartaðir aldrei yfir veikindum
þínum og vildir aldrei láta hafa
fyrir þér.
Ég á eftir að sakna þess að
við förum ekki saman í bíltúr og
við fáum okkur nammi og tölum
saman um heima og geima. Við
áttum gott spjall fyrir ekki svo
löngu þar sem þú sagðir við mig
að þú þyrftir ekki að hafa
áhyggjur af okkur strákunum
þínum sem þú varst svo stolt af,
því við værum allir búnir að
koma okkur vel fyrir og ættum
góða maka.
Takk, elsku mamma, fyrir að
hafa verið svona góð við börnin
mín og Margréti mína og
reynst þeim öllum svo vel. Við
höfum öll misst svo mikið við
fráfall þitt. Takk fyrir allt,
elsku mamma mín, ég mun
varðveita minningu þína.
Þinn mömmustrákur,
Kristinn Helgi.
Á sunnudegi hringdi faðir
minn og tjáði mér að mamma
væri dáin.
Ég hafði haft á tilfinningunni
að þín líðan væri orðin slæm og
mun verri en þú vildir vera láta.
Maður er hinsvegar aldrei
tilbúinn.
Þú varst mjög hörð af þér og
vildir ekki láta hafa mikið fyrir
þér eða vera byrði á öðrum. Þú
hafðir einstakt lag á því að láta
öllum líða vel í kringum þig og
dekraðir mikið við okkur dreng-
ina þína. Þú vildir ekki þiggja
neitt í staðinn. Við fengum ást-
ríkt uppeldi frá þér, þú gagn-
rýndir ekki og ég fann það aldr-
ei að þú gerðir kröfur eða
ætlaðist til einhvers af manni.
Það var góð tilfinning. Þannig
komst þú einnig fram við
barnabörnin og þú varst í miklu
uppáhaldi hjá þeim.
Það verður ekki eins að koma
í Bleiksárhlíðina og við öll mun-
um þurfa að takast á við þessar
breytingar en það mun taka
tíma. Ég átti það til að bjóða
fólki heim til þín og við Málm-
fríður elduðum með þér og
gerðum fínt og þetta fannst þér
skemmtilegt án þess vilja við-
urkenna það en þú varst kyrrlát
manneskja. Ég mun sakna þess
og að fá þig til okkar í Dalak-
urinn og fá að dekra við þig.
Nú er komið að hinstu
kveðjustund og pabbi væng-
brotinn eftir langa samveru en
þið hugsuðuð vel hvort um ann-
að. Það er erfitt en við munum
hugsa vel um hann.
Frá pabba er þessi vísa:
Hjörðin mín er ekki öll,
engin grein ég ljósin.
Jörðin þín er freðin fjöll,
fallin eina rósin
(Halldór Laxness)
Hvíl í friði elsku mamma,
þinn sonur.
Páll (Palli).
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Þegar ég hugsa um þig, elsku
tengdamamma mín, þá kemur
lagið Íslenska konan upp í huga
mér. Elsku amma Lilla með
hlýjasta hjartað sem elskaði svo
heitt. Þú helgaðir líf þitt fólkinu
þínu sem við kunnum svo vel að
meta. Þú gafst strákunum þín-
um kærleiksríkt uppeldi, ást og
hlýju. Þú gafst svo mikið af þér
til okkar allra.
Ég var tvítug þegar ég hitti
þig fyrst, við Palli höfðum
kynnst um haustið í Reykjavík
og ákváðum að eyða áramót-
unum saman á Eskifirði. Mér er
minnisstætt hvað var gott að
koma til þín, inn á þitt heimili.
Hvað þú varst hlý og notaleg,
hvað maturinn þinn var góður.
Ég varð strax hrifin af Palla, ég
varð líka mjög fljótt hrifin af
þér og það átti bara eftir að
aukast með hverju árinu sem
leið.
Ég hafði eitt sinn orð á því
að þú hugsaðir aðeins of mikið
um aðra. Hefðir dekrað strák-
ana of mikið, þú varst alls ekki
sammála. Líklega gaf það þér
mikið að vera góð við aðra. Að
hlýja fötin hans Palla áður en
þú vaktir hann gerði honum
ekkert illt. Þú sagðist eiga svo
góða stráka að þér fyndist sjálf-
sagt að dekra þá. Það er ekki
hægt að vera annað en góður
strákur eigandi mömmu eins og
þig.
Árin okkar Palla á Eskifirði
voru góð, ég er þakklát fyrir
þann tíma því þá kynntist ég
þér svo vel. Ég var komin langt
frá fjölskyldunni minni með
fyrsta barnið mitt, tíu daga
gamlan Þorstein Breka. Ég
hafði þig og það hjálpaði mér
mikið. Ég labbaði til þín á
hverjum degi með litla dreng-
inn okkar í vagninum og við
drukkum marga kaffibolla.
Þú hafðir mikla ástríðu fyrir
matargerð og kunnir best við
þig heima í eldhúsinu. Þú vildir
vera fín, eiga fallega kjóla og
hafðir mikinn áhuga á fötum.
Það var gott að geta sagt þér
frá og sent þér myndir þegar
ég fékk mér eitthvað nýtt. Ég
losnaði við „kaupviskubitið“
þegar þú sagðir að laglegt ungt
fólk þyrfti að eiga falleg föt. Þú
varst líka svo lagleg og klæddir
þig svo fallega.
Við Palli fluttum suður því
mig langaði það. Þá komst þú
og sagðir það sem mig langaði
að heyra, ekki endilega það sem
þig langaði að yrði. Þú sagðir
nefnilega oft það sem aðra lang-
aði að heyra. Þú varst svo góð
við fólk.
Það var gaman að fá þig suð-
ur til okkar, þá fengum við að
dekra við þig. Þér fannst allt
óþarfi fyrir þig en þá þess held-
ur var einstaklega gaman að
gera eitthvað fyrir þig. Við
fengum okkur gellur á Þremur
frökkum. Kaffihúsin þar sem
við horfðum á fólk, margir
skrítnir fyrir sunnan. Bæjarins
bestu og Bakarameistarinn,
langbesta bakkelsið þar, eitt-
hvað sem þú hafðir séð auglýst.
Fórum í búðir og fleiri búðir
svo fengum við okkur Baileys í
klaka á kvöldin.
Þér fannst gaman að horfa á
okkur Palla í eldhúsinu. Þegar
þú varst komin austur hringdir
þú gjarnan og varst að gera
eins og við. Þú varst nýjunga-
gjörn og skemmtileg.
Þú varst hrifin af börnunum
okkar og þau mjög hrifin af þér.
Þér fannst allt sniðugt sem þau
sögðu og gerðu. Þau fundu fyrir
hlýjunni og góðmennskunni
sem einkenndi þig. Svo var auð-
velt að fá þig til að hlæja. Þú
varst alltaf sammála þeim, það
var gott fyrir þau að eiga ömmu
eins og þig.
Og loks þegar móðirin lögð er í
mold.
Þá lýtur þú höfði og tár falla á fold.
Þú veist hver var skjól þitt þinn
skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig
og gaf þér sitt líf.
Elsku Lilla, mín þú skilur
eftir þig stórt og vandfyllt
skarð. Það verður ekki eins að
koma á Eskifjörð og hafa þig
ekki. Mesta tilhlökkunin okkar
þegar við ferðuðumst austur
var að hitta þig og afa. Við
hugsum um afa Snorra.
Hvíldu í friði yndislega
tengdamamma mín.
Þín
Málmfríður
(Malla).
Elsku Lilla mín.
Nú er komið að kveðjustund.
Ég á eftir að sakna þín. Fyrir
mér varstu ekki bara tengda-
mamma mín heldur líka góð
vinkona. Það var hægt að ræða
við þig um allt milli himins og
jarðar. Núna nýlega vorum við
að ræða um þær hljóðbækur
sem við vorum að hlusta á. Þú
hafðir mest gaman af að hlusta
á ævisögur en varst líka búin að
hlusta á Dalalíf sem er mitt
uppáhald. Mig langar að þakka
þér fyrir það hvað þú varst
börnunum mínum góð amma.
Þú náðir svo vel til þeirra og
þau elskuðu þig svo heitt. Þú
varst svo natin og hugulsöm.
Ég mun alltaf hugsa til þín með
hlýju.
Þín
Margrét.
Það var ávallt auðvelt að leita
til ömmu Lillu, aðallega því hún
bjó í húsinu við hliðina á okkur
en einnig því ég var alltaf vel-
komin. Á mínum uppvaxtarár-
um var ég mikið hjá henni eftir
skóla, þar sem við spiluðum ól-
sen, kleppara og fleiri spil. Hún
hafði gaman af því að spjalla og
heyra frá atburðum dagsins.
Hún var góður kokkur og
bakari og fórum við fjölskyldan
flesta sunnudaga í mat til
ömmu þar sem borið var fram
dýrindis lambakjöt frá honum
afa.
Oft var eftirréttur og stendur
upp úr eplakakan hennar.
Síðustu ár hef ég fengið þann
heiður að gera jólafrómasinn en
við framkvæmd hans sat amma
og leiðbeindi mér í gegnum öll
skrefin en það er ekki erfitt að
klúðra frómas. Vonandi mun
hann heppnast eins vel í ár án
leiðbeiningar þinnar.
Amma ferðaðist mikið og
hafði gaman af því að fara utan
með fjölskyldunni. Fjölskyldan
fór saman til Portúgals, Spánar,
Þýskalands og síðast til Banda-
ríkjanna. Eftir löng ferðalög
sagði hún ávallt heima er best
en hún var mjög heimakær.
Amma var mikill tónlistar-
unnandi en var þó aðallega fyrir
gömlu lögin eins og maður segir
í dag. Hún hafði mjög gaman af
tónleikum og kom á flestalla
tónleika hjá mér í tónlistarskól-
anum á Eskifirði. Jólatónleikar
Björgvins voru þó þeir tón-
leikar sem voru í mestu uppá-
haldi hjá henni. Eiga orðin úr
hennar uppáhaldslagi, Gull-
vagninum, vel við þegar hún
kveður okkur í hinsta sinn:
„Gættu þín, geymdu mig,
gefðu mér friðinn. Já, langt hef
ég farið og mig langar heim.“
Friðný María.
Yndislega amma mín. Orð fá
því ekki lýst hvað ég sakna þín
mikið. Síðustu tvö ár hef ég
fengið að búa hjá þér og afa á
sumrin og fyrir það er ég æv-
inlega þakklát. Ég og þú áttum
alveg einstakt samband sem ég
mun ekki eiga með neinum öðr-
um. Ég gæti skrifað endalaust
um það hversu mikið best þú
varst, hafðir ekkert illt um
neinn að segja og vildir öllum
vel. Ég mun sakna þess að
slúðra með þér og hlusta á þig
hlæja. Það var mín lífsins lukka
að þú varst amma mín. Ég veit
að þú gast ekki beðið eftir að ég
myndi koma til þín í sumar og
ég hlakkaði svo til að eiga enn
eitt sumarið hjá þér. Ég vona
svo innilega að við hittumst aft-
ur einhvers staðar.
Þín
Gunnhildur Lilja.
Amma Lilla var hjartahlý,
góð og svo skemmtileg. Hún bjó
til mjög góðan mat. Amma Lilla
elskaði það þegar við komum til
hennar. Hún var alltaf tilbúin
með mat handa okkur þegar við
komum. Henni fannst gott að fá
sér kvöldkaffi með okkur þegar
við vorum í heimsókn hjá henni.
Hún elskaði jólakökur úr Bak-
aríinu við brúna. Allir sem
þekktu ömmu elskuðu hana.
Þín
Natalía Sól og
Tristan Máni.
Fyrir tveimur mánuðum
rúmum þegar við vorum í útför
mömmu sagði ég við þig, elsku
frænka, að nú værir þú ein eftir
af systkinunum, en ég átti alls
ekki von á að fylgja þér síðasta
spölinn í dag. En þú varst auð-
vitað búin að berjast við illvígan
sjúkdóm sem hafði sigur.
Það er margs að minnast, við
vorum eiginlega eins og systk-
ini fyrstu uppvaxtarárin okkar,
nutum okkar vel hjá ömmu og
afa á Gerði þótt átta ára aldurs-
munur væri á okkur, alla tíð
síðan höfum við haldið okkar
vinskap og það var alltaf gott
að heimsækja ykkur Snorra í
Bleiksárhlíðina. Þar var svona
svipað oft á borðum hjá þér og
hjá ömmu í Gerði, þú hafðir
greinlega numið matreiðslu-
tæknina vel af henni. Vil þakka
þér, elsku frænka, fyrir okkar
góða tíma sem við áttum saman
í uppeldinu á okkar yngri árum
og vináttuna sem hélst alla tíð.
Elsku vinur minn Snorri,
synir, tengdadætur og barna-
börn, votta ykkur mína dýpstu
samúð.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Grétar Rögnvarsson.
Elsku Lilla, margt kemur
upp í hugann þegar hugsað er
aftur í tímann. Þegar við Þor-
steinn sonur þinn urðum par
árið 1989 tókstu vel á móti mér.
Minningar streyma fram um öll
jólin sem við dvöldum hjá þér
og Snorra og strákunum á
Eskifirði þegar við vorum við
nám í Reykjavík. Eftir að nám-
inu hjá okkur Þorsteini lauk
fluttum við austur, fyrst eitt ár
í Neskaupstað og síðan þegar
við eignuðumst dóttur okkar,
Friðnýju Maríu, fluttum við yfir
á Eskifjörð í húsið við hliðina á
ykkur Snorra.
Þú tókst vel á móti okkur og
í gegnum tíðina reyndist þú ein-
staklega vel og ávallt tilbúin til
að hjálpa til ef þurfti á að halda.
Eldamennska og bakstur var
oft til umræðu hjá okkur, sér-
staklega ef eitthvað stóð til, jól,
páskar eða aðrar veislur. Fór-
um við oft saman á þorrablót og
aðrar skemmtanir þar sem við
skemmtum okkur vel.
Margar voru utanlandsferð-
irnar sem þið Snorri fóruð með
okkur í, ber helst að nefna á
sólarstrendur Portúgals og
Spánar, ásamt ferðum til
Þýskalands og Bandaríkjanna.
Helst stendur upp úr hlýtt og
gott viðmót þitt, áhugi þinn á
fjölskyldu og barnabörnum. Þú
fylgdist vel með lífi allra og
varst ávallt inni í öllu sem var
um að vera hjá fjölskyldunni.
Síðustu ár voru þér oft erfið
vegna veikinda en lítið vildir þú
láta á því bera og vildir frekar
einbeita þér að því að skilja eft-
ir góðar minningar og taka þátt
í lífi fjölskyldunnar eins og þér
var unnt. Þakka þér fyrir allt
elsku Lilla.
Kær kveðja,
Þorsteinn og Ingibjörg.
Kristbjörg María
Helgadóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744