Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 E nglendingar unnu örugg- an sigur HM öldunga- sveita, 50 ára og eldri, sem lauk í Acqui Terme á Ítalíu á miðvikudaginn. Þeir tefldu fram Michael Adams og Nigel Short á fyrstu tveim borðum og sá fyrr- nefndi uppskar vel og var í raun maðurinn á bak við sigurinn. Eng- lendingarnir hlutu 17 stig af 18 mögulegum, einu stigi betur en Bandaríkjamenn. Ítalir náðu 3. sæti og svo kom íslenska sveitin í 4. sæti með 12 stig af 18 mögulegum. Í loka- umferðinni skutumst við upp fyrir Ungverja með 2½:1½-sigri í inn- byrðis viðureign. Jóhann Hjartarson vann þar góðan sigur en öðrum skákum lauk með jafntefli. Keppt var í tveim aldursflokkum en í flokki keppenda 65 ára og eldri unnu Englendingar einnig öruggan sigur. John tefldi þar á 1. borði og var jafn óstöðvandi og Adams í yngri flokknum. Menn voru almennt nokkuð sáttir við lokaniðurstöðuna því tafl- mennskan var æði misjöfn og sumir áberandi ryðgaðir eftir langt hlé frá keppni. Hæst bar frammistöðu Jóns L. Árnasonar, sem hlaut 6½ vinning af 8 mögulegum og hlaut silfurverð- laun á 4. borði. Þá fékk Margeir Pét- ursson bronsverðlaun á 3. borði með 5½ vinning af átta. Sigurskákir Jóns L. Árnasonar hans voru margar bráðskemmti- legar og með svörtu í kóngspeðs- byrjunum, hlaut hann 4 vinninga af 4. Jón hafði 19. aldar meistarana í miklum metum á í sínum yngri árum og tefldi eftirfarandi skák í stíl Paul Morphy og fleiri góðra manna. Skákin er auðvitað dálítið léttmeti þar sem hvítur var tiltölulega fljótur að missa þráðinn. En það þarf líka að fylgja vel eftir þeim færum sem gefast og það gerði Jón með glæsi- brag: HM öldungasveita, Acqui Terme 2022; 8. umferð: James Stevensson – Jón L. Árnas. Skoskur leikur 1. e4 e5 Sikileyjarvörnin var aðalbyrjun Jóns gegn kóngspeðinu en það breyttist á Ítalíu! 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. d4 exd4 5. Rd5!? Óvæntur leikur en frekar bitlaus. Hann hefði betur valið algengustu leiðina, 5. Rxd4 Bb4 6. Rxc6 bxc6 7. Bd3 o.s.frv. 5. …Rxd5 6. exd5 Bb4+ 7. Bd2 De7+ 8. Be2? Eftir 8. De2 verður ekki komist hjá miklum uppskiptum og jafn- teflislegri stöðu. 8. …d3! Snaggaralega leikið. Hvítur sá nú fram á að eftir 9. cxd3 Bxd2+ og 10. … Rb4 situr hann uppi eð stakt peð og heldur lakara tafl. 9. dxc6 dxe2 10. cxd7+ Bxd7 11. Dxe2 Dxe2+ 12. Kxe2 Bb5+! 13. Kd1 Úr vöndu var að ráða. Eftir 13. Ke1 kemur 13. … 0-0-0! með hug- myndinni 14. Bxb4 Hhe8+ og mátar. 14. 0-0-0 14. Kc1 Bxd2+ 15. Rxd2 Hhe8 Hrókurinn er á leið inn til e2. Hvítur er varnarlaus. 16. Rb3 He2 17. Hf1 Bc6 18. g3 Be4 – og hvítur gafst upp. Nepo nær öruggur með sigur í áskorendamótinu Ef svo fer fram sem horfir mun Rússinn Jan Nepomniachtchi ekki aðeins vinna áskorendamótið í Madrid á Spáni heldur hugsanlega með meiri yfirburðum en áður hefur þekkst í meira en 70 ára sögu þess- ara móta. Nepo vann Alireza Firo- uzsja með tilþrifum í 11. umferð og fyrir 12 umferð sem fram fór í gær var forskot hans 1½ vinningur. Hann átti að tefla við við Nakmura í gær og síðan Rapport og Duda í lokaumferðunum tveimur.Staðan: 1. Nepomniachtchi 8 v. (af 11) 2. Liren Ding 6½ v. 3. Nakamura 6 v. 4. Caruana 5½ v. 5. Radjabov 5 v. 6.-7. Duda og Rapport 4½ v. 8. Firouzsja 4 v. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Helgi Ólafsson Verðlaunahafar Margeir Pétursson fékk bronsverðlaun 3. borðs manna og Jón L. Árnason fékk silfurverðlaun 4. borðs manna. Íslendingar urðu í 4. sæti á HM öldungasveita Ævigangan verður endalaus refskák og rússíbani frá degi til dags þegar ekki reyn- ist unnt að segja ill- vígum, lífsógnandi sjúkdómum svo sem krabbameini og ann- arri óáran endanlega upp. Endalaus falinn fjandi sem sætir færis að trufla lífsganginn, grafa undan og finna leið til að skemma, draga úr, eyða og deyða. En þegar maður er við það að gef- ast upp á sjálfum sér, eða þegar við verðum fyrir hvers kyns von- brigðum eða okkur finnst okkur skorta eitthvað í lífinu, þá er svo ómetanlega ljúft og gott að eiga hinn djarfa varanleika í hjartanu sem enginn og ekkert fær bifað eða frá okkur tekið. Ævigangan getur nefnilega verið þyrnum stráður táradalur en er jafnframt oft eitthvað svo dulúðug og spennandi, litrík og falleg þar sem eitthvað óvænt og ánægjulegt er alltaf handan við hornið og kemur sífellt á óvart. Þegar nærveran við vatnið, nátt- úruna, himininn og húmið, mann- fólkið og mannssoninn er uppörv- andi og hlý, vökvandi og nærandi. Þegar við leyfum sólskini kærleika og friðar að mætast í hógværð en jafnframt glaðværð og þakklæti þar sem jákvæður húmor og hlýja fær færi á að ræktast með okkur og manna á meðal. Ljós lífsins Friðsöm þögnin í andblæ stund- arinnar minnir okkur á að and- artakið er þitt og það er núna. Umvefjandi ást Guðs er nefnilega nær okkur en við stundum höldum. Við getum skynjað hana allt í kring- um okkur. Hvert sem litið er. Hún er yfir og undir og allt um kring. Hún umlykur okkur á bak og brjóst og yfirgefur okkur aldrei. Hún fellur okkur í skaut hvert sem við snúum okkur. Hvort heldur er snemma dags eða síðla kvölds, um bjartan dag eða dimma nótt. Hún fylgir okkur allar stundir allt til enda veraldar. Hún mun skína og lýsa okkur um ævinnar veg inn til lífsins eilífð- ar dýrðar ljóma. Þang- að sem sólin skín, þar sem við getum notið fegurðar náttúrunnar og himinsins í sam- félagi ástvina. Hins fullkomna lífs í fullri gnægð eins og til stóð. Því að ég er þess fullviss að feg- urstu draumar, hinar dýrmætustu stundir og ljúfustu þrár séu aðeins sem forréttur að þeirri miklu veislu sem lífið raunverulega er. Því Jesús sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa … Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi … Og frá hjarta þeirra sem trúa á mig munu renna lækir úr lind lífandi vatns sem streymir fram til eilífs lífs.“ Þar sem rökkrið tekur við, dimm- an vex og ævin endar tekur hann þig í fang og ber þig á örmum sér í gegnum göngin myrku inn í bjarm- ann til eilífs sumars og ómót- stæðilegrar fegurðar. Þú samlagast ljósinu, ljósi lífsins. Ljósinu sem aldrei slokknar og fær þig til þess að langa til að lifa. Þess vegna skulum við halda full eftirvæntingar og vonar áfram veg- inn. Fela okkur höfundi og full- komnara lífsins á vald og gefast ekki upp. Með baráttu-, bænar-, samstöðu-, kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Refskák og rússíbani Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Ég er þess fullviss að fegurstu draumar, dýrmætustu stundir og ljúfustu þrár séu aðeins sem forréttur að þeirri veislu sem lífið raun- verulega er. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Björg Jónsdóttir fæddist 2. júlí 1896 á Stóra-Sandfelli í Skriðdal. Hún var dóttir Jóns Runólfssonar smiðs og Krist- bjargar Kristjánsdóttur hús- móður á Litla-Sandfelli. Björg var nefnd eftir eldri systur sinni sem lést aðeins ársgömul. Al- systkini hennar sem komust á legg voru Runólfur bóndi í Litla-Sandfelli og Gróa hús- freyja í Geitdal. Björg var bráðger og þótt lítil efni væru á heimilinu gekk hún í Kennaraskólann árið 1914 og var þar við nám í tvö ár. Eftir námið fór hún að kenna í Skrið- dal en síðar í Fellum og í Borg- arfirði eystra og hún var einnig heimiliskennari víða austan- lands jafnframt almennri kennslu. Hún var vinsæll kenn- ari og fór af henni gott orð hvar sem hún var. Árið 1930 hóf hún ljósmóðurnám í Reykjavík og lýkur því 1931 og þá ráðin sem ljósmóðir í Vallahreppi þar sem hún var til 1943. Á þessum tíma dvöldu ljósmæður iðulega allt að hálfan mánuð á heimili sæng- urkonunnar og hugsuðu um móður og barn. Björg giftist Einari Guðna Markússyni vinnumanni frá Reyðarfirði. Þeim varð ekki barna auðið, en Einar átti tvö börn frá fyrra hjónabandi sem voru henni sem fjölskylda. Þau hófu búskap á Keldhólum og bjuggu þar til 1949 þegar þau fluttu í Neskaupstað. Björg hóf að kenna börnum að lesa í Nes- kaupstað og leiðbeindi einnig í reikningi á heimili sínu. Björg lést 12. janúar 1994. Merkir Íslendingar Björg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.