Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 48
Tónlistarhátíðin Hátíðni verður haldin á Borðeyri um
helgina en hún hófst í gær. Er hún á vegum tónlistar-
samlagsins Post-dreifingar og er nú haldin fjórða sinni.
Fjöldi tónlistarmanna og hljómsveita kemur fram á Há-
tíðni, m.a. DJ Flugvél og geimskip, Asalus, Dreymandi
hundur, Drengurinn fengurinn og Haraldur Helgason, K.
Óla og vinir og Svartþoka. Borðeyri stendur við Hrúta-
fjörð á Ströndum.
Hátíðni, hátíð Post-dreifingar,
haldin í fjórða sinn á Borðeyri
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík gerðu góða ferð í
Vesturbæinn og unnu 3:0-sigur á KR í Bestu deild karla
í knattspyrnu í gærkvöldi. Varnarmaðurinn reyndi, Hall-
dór Smári Sigurðsson, rak smiðshöggið með þriðja
markinu og var það sögulegt; hans fyrsta mark á ferl-
inum í efstu deild. »40
Halldór Smári skoraði fyrsta mark
sitt í efstu deild í 164. leiknum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bílar af öllum stærðum og gerðum
hafa verið líf og yndi Gísla S. Eiríks-
sonar frá því hann var barn. „Bílar
hafa alltaf fylgt mér, ég keypti fyrsta
bíl minn með pabba sex mánuðum
áður en ég fékk bílprófið 17 ára og
síðan hef ég átt á þriðja hundrað
bíla,“ segir hann.
Um þessar mundir á BMW,
tvennra dyra sportbíll árgerð 2003
sem lítur út eins og nýr þótt nær
tuttugu ára sé, hug hans allan. „Hann
er einn örfárra bíla á Íslandi með
þetta útlit,“ segir hann hróðugur.
Þau hjónin hafi keypt bílinn á Spáni
fyrir nokkrum árum og flutt hann
heim fyrir um þremur árum. „Ég hef
lítið þurft að gera fyrir hann enda er
hann mjög fínn eins og hann er.
BMW-bílar eru enda vandaðir og ég
kann vel við þá.“
Djásnið er með einkanúmerið
BMW Z4. „Númerið er í raun teg-
undin og því er það ekki venjulegt, en
það er hluti dellunnar. Ég hef áður
verið með einkanúmer en þetta er
sérstakt enda er bíllinn sérstakur.“
Unnið við bíla í áratugi
Gísli er húsasmiður að mennt og
starfaði sem slíkur en eftir að hann
slasaðist illa varð hann að fá sér aðra
vinnu og hóf störf hjá bílaumboðinu
Bifreiðum og landbúnaðarvélum, þar
sem hann var deildarstjóri í vara-
hlutadeild og sá meðal annars um að
panta varahluti í bíla. „Ég ílengdist
hjá B & L í 30 ár, ekki síst vegna þess
að þar snerist allt um bíla og því
skemmtilegt í vinnunni.“
Fyrsti bíllinn, sem Gísli keypti
með föður sínum, var Volkswagen
Variant, en rétt eftir að hann tók bíl-
prófið fékk hann sér eigin bíl. „Það
var gömul Volkswagen-bjalla.“ Um
árabil hefur hann keypt bíla, lagað þá
sjálfur eða farið með þá á viðurkennd
verkstæði, ef þess hefur þurft, og síð-
an selt þá aftur. Lengi vel var hann
einn í þessu en Gísli sonur hans hefur
verið með honum undanfarin ár.
Gísli leggur áherslu á að stússið við
bílana sé áhugamál. „Við höfum alltaf
lagt okkur fram við að hafa bílana
okkar í 100% lagi, höfum gert frekar
meira en minna fyrir þá.“ Hann
bendir á að hann sé hættur að vinna
og gott sé að hafa svona verkefni í
þrönga bílskúrnum, þar sem hann
dundi sér oft í gryfjunni. „Ég þekki
marga bifvélavirkja eftir að hafa
unnið lengi í faginu og þegar mikið er
að fer ég með bílana á viðurkennd
verkstæði og læt laga það sem þarf
að laga. Þetta er skemmtilegt áhuga-
mál.“
Tegundirnar eru margar og bíl-
arnir enn fleiri sem hafa öðlast nýtt
og betra líf í höndum Gísla. „Ég hef
reyndar verið lítið í amerískum bíl-
um, því það er meira mál að laga þá
en aðra bíla.“
Hann segist sérstaklega hrífast af
svokölluðum „sparibílum“, sem séu
oftar en ekki lítið keyrðir. „Sem bet-
ur fer eru margir sérstakir bílar til á
Íslandi,“ segir hann og snýr sér að
sportbílnum sínum. „Ég væri örugg-
lega meðlimur í Fornbílaklúbbnum
ef ég ætti nógu gamlan bíl, en ég
keyrði BMW-inn 153 kílómetra árið
2020 og aðeins meira í fyrra. Hann er
eiginlega bara safngripur í skúrn-
um.“
Safngripur í skúrnum
- Gísli S. Eiríksson hefur átt á þriðja hundrað bíla
- Heillast af sérstökum bílum og ekki síst í eldri kantinum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í uppáhaldsbílnum Gísli S. Eiríksson í BMW-sportbílnum árgerð 2003.
Draumabíllinn Einkanúmerið BMW Z4 segir allt um tegundina.