Læknablaðið - 01.03.2022, Side 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 115
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Póstdreifing
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Við höfum lært að hlutir sem við lesum um í sögubókum geta hent okkur og þeir koma án þess a
gera boð á undan sér. Við þurfum að vera betur undirbúin. Betur en við vorum fyrir tveimur árum,“
segir Már Kristjánsson, smitsjúkdómalæknir. Tvö ár eru frá fyrsta kórónuveirusmitinu hér á landi
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Einn af stóru lærdómunum af kórónuveiru
faraldrinum er hve vanbúin við vorum undir
svona mikinn atburð,“ segir Már Kristjánsson,
forstöðumaður lyflækninga og bráðaþjónustu
Landspítala og smitsjúkdómalæknir, þegar hann
lítur um öxl. Á þessum tveimur árum voru tekin
1,1 milljón sýni, um 94.000 hafa smitast, nærri
2000 manns smitast tvisvar og hátt í 50 látist af
völdum veirunnar.
„Kórónuveiran er þungt álagspróf á kerfið okk
ar. Ég held að það hafi staðist það fyrir fórnfýsi
margra þeirra sem stóðu að viðbragðinu.“ Hlustað
hafi verið á starfsfólk. Kastljósi hafi verið beint á
aðbúnaðinn.
„Bæði á heilsugæslunni og spítalanum vorum
við með lúin tæki.“ Bólusetningar í yfirgefnum
byggingum. Spítalinn vanbúinn. Greiningartæki
skorti. Húsnæði þjóðarsjúkrahússins óhentugt.
„Við urðum að ráðast í fjárfestingar á sama
tíma og aðrar þjóðir. Áhlaup varð á vörur og við
fórum í biðröðina enda eru lækningatæki ekki
hilluvara,“ segir Már. Læra megi af því hve margt
breytist þegar svo stór atburður verður. Íslensk
erfðagreining hafi stokkið til og nýtt tækni og
þekkingu sína. „Fólk gerði það besta úr því sem
það hafði og saman gátum við þetta allt saman.“
Már segir að persónulega hafi árin tvö verið
áhugaverð og lærdómsrík. „Það hefur verið mér
mjög kærkomið að fá að glíma við verkefnið í
framlínunni, móta viðbragðið, en um leið erfitt,“
segir hann enda hafi verkefnið verið tímafrekt og
tekið orku af öðrum hlutverkum í lífinu.
Már segir nöturlegt að ekki hafi verið bólusett
víðar um heimsbyggðina á sama tíma og vest
rænn heimur upplifi miklar framfarir í læknavís
indum. „Búið er að framleiða milljarða skammta.
Már Kristjánsson sunnan undir vegg Landkotsspítala og undir verndarvæng styttunnar af
Maríu mey sem vitnar um kaþólskan uppruna spítalans. Mynd/gag
Þurfum að vera betur undirbúin næst
Bóluefnin eru háþróuð, vel reynd vara sem spraut
að er í fólk á mettíma,“ segir hann.
Spurður um hvað hafi helst verið krefjandi
þessi tvö ár, segir hann að auðvitað sé hvatt til
skoðanaskipta og opinnar umræðu og málfrelsi
ríki. „Við sem höfum verið í forystu höfum þurft
að sitja undir ámæli fyrir til að mynda að nota
ekki ormalyfið Ivermectin. Það stappar nærri því
að vera falsáróður að hvetja til notkunar þess,“
segir hann og nefnir einnig þau sem stígi fram
gegn bólusetningu barna.
„Ég er hugsi þegar heilbrigðismenntað fólk
talar gegn þeim vísindalegu rökum sem koma
fram fólki til heilla,“ segir hann. „Með starfsleyf
inu fæst ákveðin viðurkenning á faglegri nálgun
og skynsemi sem mér finnst þorri þeirra sem tala
með þessum hætti ekki hafa virt, sem mér finnst
miður.“
Starfsfólk flytji
skrifstofuvinnuna heim
Undirbúningur er hafinn við að breyta skrif
stofum á Landspítala í sjúkrarými og bjóða
fólki sem það kýs að vinna heima.
„Við skoðum að rýmka meira um klínískt
starf og tökum því stefnuna í fjarvinnu til
endurskoðunar,“ segir Már Kristjánsson. Kom
ið hafi í ljós í COVID að mörgum henti betur
að vinna stundum heima.
„Hluti af heilbrigðisþjónustunni hefur
þegar færst í fjarþjónustu,“ segir hann.
„Við getum gert meira í þessum dúr,“ segir
Már. „Við erum að læra og ættum að nýta þá
þekkingu sem til er orðin.“