Læknablaðið - 01.03.2022, Blaðsíða 23
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 135
R A N N S Ó K N
Greinin barst til blaðsins 3. júní 2021,
samþykkt til birtingar 17. janúar 2022.
mun líklegri til að vera ónæmir fyrir penisillíni en þeir stofnar
bakteríunnar sem voru taldir mengunarvaldar. Niðurstöður sýna
mikilvægi næmisprófa því myndun betalaktamasa hjá tegund
inni B. cereus getur haft mikla þýðingu fyrir val meðferðar. Rétt
er að leggja áherslu á að B. cereus er auk þess ónæmur fyrir kefaló
spórínum, þar á meðal þriðju kynslóðar. Einnig ber að hafa í huga
að ómögulegt er að greina á milli Bacillus- og Clostridia-tegunda
með smásjárskoðun og gramslitun.
Hlutfall mengraðra sýna milli ára gæti verið vanmetið. Þannig
var hlutfall jákvæðra blóðræktana af völdum Bacillus sem orsak
ast af mengun 69% árið 2010, sem er mun hærra en heildarhlutfall
mengunar í blóðræktunum (37%) sama ár.19 Einnig kom fram að í
40% tilvika þegar kóagúlasaneikvæðir stafýlókokkar ræktuðust
frá blóði var talið að um mengun væri að ræða.20 Í ofangreind
um íslenskum rannsóknum voru ekki notaðar sömu aðferðir og
hér var gert. Þó Bacillus sé þekktur mengunarvaldur má vissulega
velta því fyrir sér hvort einhver tilfellanna sem talin voru mengun
í þessari rannsókn hafi í raun verið sýking. Einnig er áhugavert að
í hópnum möguleg sýking eru 10/10 með hita >38°C og 8/10 með
CRP >50 og gætu talist grunsamleg staðfest sýkingartilfelli. Ýmsar
ástæður lágu að baki en það vóg þyngst að yfirleitt var eingöngu
tekið eitt blóðræktunarsett.
Í hópi þeirra 10 sem taldir voru með mögulega sýkingu ræktað
ist Bacillus aldrei í tveimur eða fleiri blóðræktunarsettum en tvö
eða fleiri sett voru aðeins tekin í 3/10. Því má velta fyrir sér hvort
bakterían hefði ræktast í fleiri settum ef þau hefðu yfir höfuð verið
tekin. Í þeim tilfellum þar sem fleiri bakteríur ræktuðust var metið
sem svo að aðrar bakteríur væru ekki aðalsýkingarvaldar þar sem
Bacillus ræktaðist í fleiri blóðræktunarsettum.
Hjartaþelsbólgu af völdum Bacillus hefur verið lýst, ýmist í
tengslum við gervilokur og aðra aðskotahluti í/við hjarta eða
tengt neyslu vímuefna í æð.21,22 Því er vert að vera vakandi fyr
ir hjartaþelsbólgu ef Bacillus ræktast í blóði hjá einstaklingi sem
á við slíkan vanda að glíma og/eða er með aðskotahlut í eða við
hjarta. Myndun lífhimna og mikil framleiðsla og viðloðun gróa
gera Bacillussýkingar erfiðar í greiningu og túlkun, einkum ef
aðskotahlutir eru til staðar. Tilvist slíkra hluta getur einnig aukið
hættu á menguðum sýnum sem tekin eru til ræktunar. Með því að
taka að minnsta kosti tvö blóðræktunarsett aukast líkurnar á að
greina sýkingarvaldinn.
Styrkleikar og takmarkanir
Ífarandi sýkingar af völdum Bacillus hafa aldrei verið skoðað
ar áður á Íslandi. Útbúin voru sérstök skilmerki til að formgera
nálgun á niðurstöðu jákvæðrar ræktunar. Þessi skilmerki eru ekki
hafin yfir gagnrýni og þarf að prófa í öðrum efniviði sjúklinga.
Einnig hefur það klínískt vægi að vekja athygli á betalaktama
samyndun B. cereus. Ofangreindar upplýsingar gætu stuðlað að
skilvirkari meðferð og bættum vinnubrögðum við töku á sýnum
til ræktunar. Helstu takmarkanir rannsóknarinnar eru að metið
var afturskyggnt hvort bakterían hafi valdið sýkingum samkvæmt
fyrirliggjandi sjúkraskrárgögnum og aðeins var unnt að tegundar
greina hluta stofnanna.
Ályktanir
Bacillus er fremur sjaldgæf orsök ífarandi sýkinga, bæði í samfé
laginu og á sjúkrahúsum, en ónæmisbældir einstaklingar, þeir sem
hafa undirgengist aðgerðir og þeir sem neyta vímuefna í æð eru í
sérstakri áhættu. Í þessari rannsókn er leitast við að meta nýgengi
ífarandi sýkinga með Bacillus á lýðgrundaðan hátt í fyrsta skipti
svo höfundum sé kunnugt. Jafnframt eru settar fram tillögur að
greiningarskilmerkjum til að greina á milli sýkingar og mengunar,
sem er einnig nýjung og vert að prófa í öðru þýði. Ein takmörkun
sem læknar þurfa að takast á við er ófullnægjandi fjöldi ræktun
arsýna sem getur gert túlkun á niðurstöðum afar erfiða og mats
kennda. Hár fjöldi mengaðra sýna er sérstakt áhyggjuefni, en 71%
allra jákvæðra ræktana voru taldar endurspegla mengun. Mengun
getur kallað á viðbótarrannsóknir, auk sýklalyfjagjafar sem í raun
er ónauðsynleg og þarf því að kosta kapps um að lágmarka þær.
Í ljósi þess að að Bacillus getur lifað í gríðarlega fjölbreyttu
umhverfi, myndað lífhimnur og betalaktamasa er mikilvægt að
sofna ekki á verðinum þegar bakteríunnar verður vart og þá sér
staklega þegar um er að ræða sjúklinga sem nota vímuefni í æð.
Tafla IV. Fjöldi stofna í hverjum flokki fyrir sig sem var næmur fyrir
penisillíni og er sundurliðaður eftir því hvort um staðfesta sýkingu,
mögulega sýkingu eða mengun var að ræða.
Heild (n=126)
Staðfest
sýking (n=26)
Möguleg
sýking (n=10)
Mengun
(n=90)
Penisillín næmi (n=32) 2 2 28
Penisillín ónæmi (n=85) 22 7 56
Lélegt næmi (intermediate)
(n=1)
0 0 1
Næmi ekki athugað (n=8) 2 1 5