Læknablaðið - 01.03.2022, Blaðsíða 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 133
festa sýkingu, mögulega sýkingu eða mengun (p=0,257). Alls voru
23 börn í hópnum, þar af voru þrjú talin með mögulega sýkingu
en eitt barn talið með staðfesta sýkingu. Nánari upplýsingar um
hópana þrjá má má sjá í töflu III.
Hjá sex sjúklingum þar sem bakterían var talin sýkingarvaldur
vaknaði grunur um hjartaþelsbólgu í legu, miðað við skráningar
og rannsóknir sem voru pantaðar, en allir höfðu þeir sögu um
virka neyslu vímuefna í æð. Helstu inngrip í aðdraganda sýkingar
voru skurðaðgerðir með íhlutum og liðástungur. Einn sjúklingur
lést í þeirri legu sem bakterían ræktaðist og var talin orsakavaldur.
Sá var talinn með staðfesta sýkingu en bakterían ræktaðist stuttu
fyrir andlát og aftur við krufningu. Algengast var að sýni sem
leiddi til greiningar væri tekið á bráðamóttöku, 18/36, eða helm
ingur allra tilfella mögulegra (10) og staðfestra (26) sýkinga.
Ræktunarniðurstöður
Í þeim tilvikum þar sem talið var um staðfesta sýkingu að ræða
ræktaðist bakterían í tveimur eða fleiri blóðræktunarsettum í 11
tilfellum en tvö eða fleiri sett voru tekin í 16/26. Þess utan, það er
þegar bakterían ræktaðist í 1/2 blóðræktunarsettum, voru rækt
anir frá öðrum líkamsvökvum jákvæðar, til dæmis í liðvökva,
berkjuskoli eða hráka. Í einu tilfelli ræktaðist bakterían ítrekað frá
liðvökva yfir 19 mánaða tímabil.
Hjá 4/26 þeirra sem voru taldir með staðfesta sýkingu ræktað
ist önnur örvera úr blóði eða liðvökva sem var ekki metin sem
aðalsýkingarvaldur. Einn þeirra var sjúklingur með endurtekn
ar liðvökvaræktanir en þar ræktaðist önnur baktería í 9/13 lið
vökvaræktunum, þar á meðal kóagúlasaneikvæðir stafýlókokkar,
Citrobacter braakii, Enterobacter cloacae, Stenotropomonas maltophilia
og Escherichia hermannii. Hjá hinum þremur ræktuðust í hverju til
felli fyrir sig Enterococcus faecium, Stenotrophomonas maltophilia og
Candida dubliniensis. Í þeim tilvikum þar sem talið var um mögu
lega sýkingu að ræða voru tvö eða fleiri blóðræktunarsett aðeins
tekin í 3/10 tilfellum.
Til eru 38 frystir stofnar frá tímabilinu og voru þeir skoðaðir
sérstaklega á blóðagar, MYPagar og BCSagar. Allir 38 stofnarnir
voru skoðaðir með massagreini (MaldiTof), en aðeins 7 þeirra voru
frá sjúklingum með staðfesta eða mögulega sýkingu. Af þeim
R A N N S Ó K N
Tafla II. Fjöldi jákvæðra ræktana með Bacillus á sýklafræðideild Landspítala 2006-2018, sundurliðaður eftir því hvort um staðfesta sýkingu, mögulega
sýkingu eða mengun var að ræða.
Alls (126) Staðfest sýking (n=26) Möguleg sýking (n=10) Mengun (n=90)
Blóð 116 22 9 85
Liðvökvi 7 1 1 5
Blóð og liðvökvi 1 1 0 0
Mænuvökvi 2 2 0 0
Tafla III. Fjöldi og meðalaldur tilfella þar sem talið var að Bacillus hafi orsakað staðfesta sýkingu, mögulega sýkingu
eða verið mengunarvaldur. Einnig má sjá frekari skiptingu í flokkana vímuefnanotkun í æð, illkynja sjúkdóma og aðra
auk frekari útskýringa á birtingarmyndum sýkingarinnar. Dæmi um undirliggjandi sjúkdóma í hópnum ,,aðrir” var
langvinn lungnateppa, hjarta-og æðasjúkdómur, alkóhólismi, lyfjafíkn og geðsjúkdómar en auk þess voru þar einstak-
lingar sem þurftu að gangast undir inngrip eða voru með áverka.
*Ekki mælt hjá tveimur.
Alls (126) Staðfest sýking (26) Möguleg sýking (10) Mengun (90)
Kyn
KK 84 19 7 58
KVK 42 7 3 32
Aldur
Meðalaldur (staðalfrávik) 46,4 (25,7) 46,9 (18,9) 31,9 (19,1) 47,8 (27,6)
Hópar
Vímuefnanotkun í æð 22/126 11/26 3/10 8/90
Illkynja sjúkdómar 30/126 6/26 4/10 20/90
Aðrir 74/126 9/26 3/10 62/90
Annað
Algengasta birtingarmynd
Blóðsýking/Sýklasótt
(14/26)
Blóðsýking/Sýklasótt
(7/10)
Hiti >38°C 24/26 10/10
CRP >50 mg/L 22/24* 8/10
Grunur um hjartaþelsbólgu 6/26 0/10
Spítalasýkingar 7/26 1/10
Inngrip í aðdraganda sýkingar 10/26 4/10