Læknablaðið - 01.03.2022, Blaðsíða 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 157
F É L A G L Æ K N A N E M A
Ungur nemur, gamall temur, segir máls
hátturinn. Með þeim hætti er fyrirkomu
lagi náms í læknisfræði háttað og gefst
afar vel. Við lærum af þeim sem reyndari
eru og viljum temja okkur jafn öguð og
fagmannleg vinnubrögð. En hvað geta
reyndari læknar lært af læknanemum sem
eru að stíga sín fyrstu skref?
Fyrri hluta árs 2021 voru lögð drög að
stofnun hinsegin félags læknanema sem
ber nafnið „Ástblær“. Við erum hópur
nemenda sem höfum áhuga á hinsegin
málefnum og metnað fyrir því að gera
betur hvað þau varðar. Markmið félags
ins er að miðla fræðslu til samnemenda
og standa vörð um hinsegin nema sem
stunda nám við læknadeild Háskóla Ís
lands.
Þrátt fyrir gríðarlegar framfarir í átt
að skilningsríkara samfélagi hefur ekki
tekist að ná fram fullu félagslegu jafn
rétti. Með þessum samfélagsbreytingum
fylgja áskoranir sem læknastéttin verður
að taka þátt í að finna lausn á. Þegar ný
og betri meðferð við klínísku vandamáli
lítur dagsins ljós, kappkosta læknar að
uppfæra þekkingu sína því ótækt er að
bjóða sjúklingum upp á úrelta meðferð.
Sömu lögmál verða að gilda varðandi
samskiptafærni læknis.
Grundvallarhugtök hinseginleikans
Hugtök sem gott er að styðjast við eru
þessi: Kyneinkenni, kynvitund, kyntján
ing og kynhneigð. Skilningur á þeim
getur reynst vel til að öðlast betri innsýn
í veruleika hinsegin fólks og hvernig það
kýs að skilgreina sig. Kyneinkenni er hug
tak sem lýsir líffræðilegum einkennum,
þannig nær regnhlífarhugtakið intersex
yfir fólk með ódæmigerð kyneinkenni.
Ívan Árni Róbertsson
3. árs læknanemi og ritari Ástblæs
iar4@hi.is
Hugleiðingar læknanema
um hinsegin mál
Guðrún Anna Halldórsdóttir
3. árs læknanemi og formaður Ástblæs
gah18@hi.is
Kynvitund snýst um upplifun einstak
lings á eigin kyni. Upplifun flestra er í
samræmi við úthlutað kyn við fæðingu og
kallast það sís. Margir upplifa sig í gagn
stæðu kyni og eru þá trans, eða blöndu
af hvoru tveggja og eru þá kynsegin.
Kyntjáning segir til um hvernig einstak
lingur tjáir kynvitund sína, svo sem með
hegðun, klæðavali og líkamstjáningu.
Kynhneigð segir til um hverjum fólk lað
ast að. Þessum hugtökum er oft ruglað
saman, sem getur leitt til misskilnings.1
Áskoranir í samskiptum
Læknanemar eru að stærstum hluta með
jákvætt viðhorf til hinsegin fólks og vilja
læra að eiga góð samskipti. Oftar en ekki
fær heilbrigðisstarfsfólk litla sem enga
fræðslu eða þjálfun í að bera kennsl á
þarfir hinsegin fólks í heilbrigðisþjónustu.
Rannsóknir hafa sýnt að læknanemum
og öðru heilbrigðisstarfólki þykir oft
krefjandi að ræða um kynhneigð og kyn
vitund við sjúklinga sína. Að auki þykir
þeim erfiðara að ræða kynheilbrigði og
kynhegðun hinsegin fólks en þeirra sem
tilheyra ekki þeim hópi. Þetta getur leitt
til þess að hinsegin fólk leitar síður heil
brigðisþjónustu af ótta við fordóma eða
neikvætt viðhorf.2 Ef ekki tekst að byggja
upp traust og gott meðferðarsamband er
hætt við því að misst sé af mikilvægum
upplýsingum sem geta skipt máli við val
á meðferð. Í því felst meðal annars að fá
fram óskir sjúklings um hvaða persónu
fornafn hann notar og virða þá ósk.
Einnig er vert að taka fram að margir
hafa fyrirfram myndaðar hugmyndir um
hinsegin fólk sem geta verið byggðar á
staðalímyndum um ákveðna kyntjáningu
eða kynhneigð. Sem dæmi eru oft dregnar
ályktanir um kynhegðun einstaklings,
en öruggast er að spyrja hann út í eigin
kynheilsu.3
Rauði þráðurinn
Í raun erum við í þessum pistli að ræða
sömu hluti og í samskiptafræði sem
kennd er við læknadeild HÍ. Það er að
hlusta á sjúklinginn og mæta honum þar
sem hann er, án þess að dæma. Við teljum
að hægt sé að leiðrétta mismunun heil
brigðiskerfisins með því að búa til um
hverfi sem býður alla velkomna og óskum
eftir því að læknar séu með okkur í liði að
gera umhverfi hinsegin fólks í heilbrigðis
kerfinu enn betra.
Heimildir
1. Hinsegin frá Ö til A. otila.is/hinseginregnhlifin/kynvit
und ogkyntjaning/kynvitund/ febrúar 2022.
2. McNamara MC, Ng H. Best practices in LGBT care: A
guide for primary care physicians. Cleve Clin J Med 2016;
83: 53141.
3. Wahlen R, Bize R, Wang J, et al. Medical students'
knowledge of and attitudes towards LGBT people and
their health care needs: Impact of a lecture on LGBT
health. PLoS One 2020; 15: e0234743.