Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2022, Side 45

Læknablaðið - 01.03.2022, Side 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 157 F É L A G L Æ K N A N E M A Ungur nemur, gamall temur, segir máls­ hátturinn. Með þeim hætti er fyrirkomu­ lagi náms í læknisfræði háttað og gefst afar vel. Við lærum af þeim sem reyndari eru og viljum temja okkur jafn öguð og fagmannleg vinnubrögð. En hvað geta reyndari læknar lært af læknanemum sem eru að stíga sín fyrstu skref? Fyrri hluta árs 2021 voru lögð drög að stofnun hinsegin félags læknanema sem ber nafnið „Ástblær“. Við erum hópur nemenda sem höfum áhuga á hinsegin málefnum og metnað fyrir því að gera betur hvað þau varðar. Markmið félags­ ins er að miðla fræðslu til samnemenda og standa vörð um hinsegin nema sem stunda nám við læknadeild Háskóla Ís­ lands. Þrátt fyrir gríðarlegar framfarir í átt að skilningsríkara samfélagi hefur ekki tekist að ná fram fullu félagslegu jafn­ rétti. Með þessum samfélagsbreytingum fylgja áskoranir sem læknastéttin verður að taka þátt í að finna lausn á. Þegar ný og betri meðferð við klínísku vandamáli lítur dagsins ljós, kappkosta læknar að uppfæra þekkingu sína því ótækt er að bjóða sjúklingum upp á úrelta meðferð. Sömu lögmál verða að gilda varðandi samskiptafærni læknis. Grundvallarhugtök hinseginleikans Hugtök sem gott er að styðjast við eru þessi: Kyneinkenni, kynvitund, kyntján­ ing og kynhneigð. Skilningur á þeim getur reynst vel til að öðlast betri innsýn í veruleika hinsegin fólks og hvernig það kýs að skilgreina sig. Kyneinkenni er hug­ tak sem lýsir líffræðilegum einkennum, þannig nær regnhlífarhugtakið intersex yfir fólk með ódæmigerð kyneinkenni. Ívan Árni Róbertsson 3. árs læknanemi og ritari Ástblæs iar4@hi.is Hugleiðingar læknanema um hinsegin mál Guðrún Anna Halldórsdóttir 3. árs læknanemi og formaður Ástblæs gah18@hi.is Kynvitund snýst um upplifun einstak­ lings á eigin kyni. Upplifun flestra er í samræmi við úthlutað kyn við fæðingu og kallast það sís. Margir upplifa sig í gagn­ stæðu kyni og eru þá trans, eða blöndu af hvoru tveggja og eru þá kynsegin. Kyntjáning segir til um hvernig einstak­ lingur tjáir kynvitund sína, svo sem með hegðun, klæðavali og líkamstjáningu. Kynhneigð segir til um hverjum fólk lað­ ast að. Þessum hugtökum er oft ruglað saman, sem getur leitt til misskilnings.1 Áskoranir í samskiptum Læknanemar eru að stærstum hluta með jákvætt viðhorf til hinsegin fólks og vilja læra að eiga góð samskipti. Oftar en ekki fær heilbrigðisstarfsfólk litla sem enga fræðslu eða þjálfun í að bera kennsl á þarfir hinsegin fólks í heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir hafa sýnt að læknanemum og öðru heilbrigðisstarfólki þykir oft krefjandi að ræða um kynhneigð og kyn­ vitund við sjúklinga sína. Að auki þykir þeim erfiðara að ræða kynheilbrigði og kynhegðun hinsegin fólks en þeirra sem tilheyra ekki þeim hópi. Þetta getur leitt til þess að hinsegin fólk leitar síður heil­ brigðisþjónustu af ótta við fordóma eða neikvætt viðhorf.2 Ef ekki tekst að byggja upp traust og gott meðferðarsamband er hætt við því að misst sé af mikilvægum upplýsingum sem geta skipt máli við val á meðferð. Í því felst meðal annars að fá fram óskir sjúklings um hvaða persónu­ fornafn hann notar og virða þá ósk. Einnig er vert að taka fram að margir hafa fyrirfram myndaðar hugmyndir um hinsegin fólk sem geta verið byggðar á staðalímyndum um ákveðna kyntjáningu eða kynhneigð. Sem dæmi eru oft dregnar ályktanir um kynhegðun einstaklings, en öruggast er að spyrja hann út í eigin kynheilsu.3 Rauði þráðurinn Í raun erum við í þessum pistli að ræða sömu hluti og í samskiptafræði sem kennd er við læknadeild HÍ. Það er að hlusta á sjúklinginn og mæta honum þar sem hann er, án þess að dæma. Við teljum að hægt sé að leiðrétta mismunun heil­ brigðiskerfisins með því að búa til um­ hverfi sem býður alla velkomna og óskum eftir því að læknar séu með okkur í liði að gera umhverfi hinsegin fólks í heilbrigðis­ kerfinu enn betra. Heimildir 1. Hinsegin frá Ö til A. otila.is/hinsegin­regnhlifin/kynvit­ und og­kyntjaning/kynvitund/ ­ febrúar 2022. 2. McNamara MC, Ng H. Best practices in LGBT care: A guide for primary care physicians. Cleve Clin J Med 2016; 83: 531­41. 3. Wahlen R, Bize R, Wang J, et al. Medical students' knowledge of and attitudes towards LGBT people and their health care needs: Impact of a lecture on LGBT health. PLoS One 2020; 15: e0234743.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.