Læknablaðið - 01.03.2022, Síða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 119
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
The silent pandemic –
antimicrobial resistance
Karl G. Kristinsson
MD, PhD, FRCPath
Department of Clinical
Microbiology, Landspitali –
The National University Hospital
of Iceland
Faculty of Medicine, University
of Iceland
Þögli faraldurinn – sýklalyfjaónæmi
Það vakti mikla athygli þegar skýrsla um sýkla lyfja
ónæmi á vegum bresku ríkisstjórnarinnar kom út
árið 2016.1 Þar var því spáð að ef ekkert væri aðhafst
myndu dauðsföll af völdum sýklalyfjaónæmra bakt
ería vera orðin 10 milljónir á ári árið 2050. Margir
höfðu efasemdir og töldu að erfitt væri að ákveða
hvort einstaklingar með ónæmar bakteríur létust
vegna þeirra eða með þær.
Í lok janúar síðastliðnum birtist í Lancet viða
mikil grein um rannsókn þar sem leitast var við að
svara þessari gagnrýni.2 Farið var yfir gögn frá 204
löndum og svæðum til þess að áætla sjúkdómsbyrði
og fjölda dauðsfalla af völdum sýklalyfjaónæmra
baktería í heiminum árið 2019. Helstu niðurstöð
urnar voru að á bilinu 1,274,95 milljónir dauðsfalla
tengdust sýklalyfjaónæmi. Með lægri tölunni var
miðað við að í stað sýkinga af völdum ónæmra bakt
ería kæmu sýkingar af völdum næmra baktería, en
í þeirri hærri að í stað sýkinga af völdum ónæmra
baktería kæmu engar sýkingar. Það er því ljóst að
nú þegar eru sýkingar af völdum ónæmra baktería
á meðal algengustu dánarorsaka í heiminum (þriðja
algengasta dánarorsök ef miðað er við hærri töluna
en tólfta algengasta ef miðað er við þá lægri).
Mikill munur var á dánartíðni og sjúkdómsbyrði
eftir landsvæðum, hæst í Afríku sunnan Sahara en
lægst í Ástralasíu. Í rannsókn á dánartíðni og sjúk
dómsbyrði af völdum sýklalyfjaónæmis í Evrópu var
áætlað að árið 2015 hefðu um 33.000 dauðsföll verið
vegna sýklalyfjaónæmis, hlutfallslega flest í Suður
og AusturEvrópu.3 Af öllum löndum Evrópu var
Ísland með minnstu sjúkdómsbyrði og fæstu dauðs
föllin af völdum sýklalyfjaónæmis. Alvarlegustu
sýkingarnar voru af völdum karbapenem eða kólist
ínónæmra gramneikvæðra stafbaktería. Ífarandi
sýkingum af völdum karbapenemónæmra E. coli og
Klebsiella (KPE) heldur áfram að fjölga í Evrópu og
veldur sú aukning miklum áhyggjum, enda eru þær
bakteríur oft nær alónæmar.
Þótt Ísland sé með lægsta nýgengi slíkra sýk
inga fjölgar þeim jafnt og þétt. Fyrsti KPEstofninn
greindist á Íslandi árið 2015, og greindust tveir á
ári 20152018, 6 árið 2019 og 5 árið 2020.4 Allir þess
ir einstaklingar höfðu verið á ferðalagi í löndum
með hátt nýgengi KPE. Nú nýlega greindist einn
einstaklingur með KPE sem ekki var hægt að tengja
við ferðalög til útlanda. Það er áhyggjuefni að KPE
hafi smitast innanlands, hvort sem það er frá öðrum
einstaklingi eða með innfluttum matvælum.
Mikilvægt er að sporna við þessari þróun og
varðveita lágt nýgengi KPE og annarra fjölónæmra
baktería á Íslandi. Árið 2019 samþykkti ríkisstjórn
Íslands aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæm
is á Íslandi og að stefnt yrði að því að Ísland væri
í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu
sýklalyfjaónæmis. Í framhaldi af því var skipaður
starfshópur um aðgerðaáætlanir og fleira vegna
sýklalyfjaónæmra baktería í dýrum, sláturafurðum
og matvælum.
Starfshópurinn skilaði lokaskýrslu í febrúar 2021.5
Í skýrslunni er lagður grunnur að aðgerðaáætlun
með það að markmiði að varðveita möguleika á ár
angursríkri meðferð við sýkingum og viðhalda þeirri
góðu stöðu sem er á Íslandi með áherslu á „einnar
heilsu“ nálgun (það er að taka tillit til manna, dýra,
matvæla og umhverfis). Sett eru fram fjögur megin
markmið til að ná fram grunnmarkmiðinu.
• Að auka þekkingu og skilning almennings og fag
stétta á sýklalyfjaónæmi í anda „einnar heilsu“.
• Að stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun
sýklalyfja í dýrum og fólki.
• Að greina betur stöðuna á útbreiðslu sýklalyfja
ónæmis í íslenskum landbúnaði og íslensku um
hverfi.
• Að takmarka útbreiðslu ónæmis með forvörnum,
vöktun og íhlutandi aðgerðum.
Því miður hefur COVID19heimsfaraldurinn orðið
til þess að öll áhersla heilbrigðiskerfa
heimsins hefur farið í að bregðast við
honum. Heimurinn hefur þannig misst
mikilvæga samfellu í aðgerðum gegn
sýklalyfjaónæmi. Það á eftir að koma
í ljós hvaða áhrif það mun hafa á út
breiðslu sýklalyfjaónæmis.
Þögull faraldur sýklalyfjaónæmis
heldur áfram þótt við náum tökum á
COVID19faraldrinum. Nú þurfum við
að taka höndum saman með þverfaglegu
átaki og „einnar heilsu“ nálgun gegn út
breiðslu sýklalyfjaónæmis. Væntum þess
að fá dyggan stuðning ríkisstjórnarinnar með metn
aðarfullri aðgerðaáætlun, þannig að Ísland verði í
fararbroddi í aðgerðum gegn sýklalyfjaónæmi.
doi 10.17992/lbl.2022.03.678
Því miður hefur COVID-19-
heimsfaraldurinn orðið til þess að öll
áhersla heilbrigðiskerfa heimsins hefur
farið í að bregðast við honum. Heimurinn
hefur þannig misst mikilvæga samfellu í
aðgerðum gegn sýklalyfjaónæmi. Það á
eftir að koma í ljós hvaða áhrif það mun
hafa á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
Karl G. Kristinsson
sérfræðilæknir í
sýklafræði,
prófessor í sýklafræði
við læknadeild Háskóla
Íslands og yfirlæknir á
sýkla- og veirufræðideild
Landspítala
karl@landspitali.is
Heimildir
1. O‘Neill J. Tackling drugresistant infections globally: final report and
recommendations. The Review on Antimicrobial Resistance. London
2016.
2. Antimicrobial Resistance Collaborators. Global burden of bacter
ial antimicrobial resistance in 2019: a systematic analysis. Lancet
2022:S01406736(21)027240.
3. Cassini A, Högberg LD, Plachouras D, et al. Attributable deaths and
disabilityadjusted lifeyears caused by infections with antibioticres
istant bacteria in the EU and the European Economic Area in 2015: a
populationlevel modelling analysis. Lancet Infect Dis 2019; 19: 5666.
4. Halldórsdóttir AM (ritstj). Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería
hjá mönnum og dýrum á Íslandi 2020. Embætti landlæknis, Reykjavík
2021.
5. Kristinsson KG, Hreinsson K, Tryggvadóttir V, et al. Lokaskýrsla.
Starfshópur um aðgerðaáætlanir o.fl. vegna sýklalyfjaónæmra baktería í
dýrum, sláturafurðum og matvælum. Stjórnarráðið, Reykjavík 2021.