Læknablaðið - 01.03.2022, Side 32
144 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
í þriðjung á næstu 15 árum. Halla lýsir
ástandinu á deildinni:
„Á deildinni eru margir að takast á
við stærstu áskorun lífs síns. Aðstaðan er
allt of lítil og léleg. Meðferðin getur tekið
allt að 6 klukkustundir í senn. Sjúklingar
geta varla staðið upp úr stólunum og rölt
um vegna plássleysis. Aðstandendur eru
hreinlega fyrir. Ekkert pláss er til að mat
ast og ekki einu sinni pláss fyrir sjálfsala“
segir Halla: „Starfsfólkið hleypur um,
hjúkrunarfræðingar sitja svo þétt að þau
eru nánast með hvert annað í kjöltunni.“
Signý Vala segir sárt að ekki sé hægt að
grípa til lausna sem liggi á borðinu þegar
svona framlag til úrbóta bjóðist. „Það er
vont að hugsa til þess að engar úrlausnir
eru í sjónmáli.“ Hún staðfestir lýsingar
Höllu.
Halla segir mörg kvíðin, döpur og jafn
vel sorgmædd. „Fólk leggur mjög mikið
á sig og berst fyrir lífi sínu. Alls konar
aukaverkanir koma upp og því verður að
vera hægt að ræða saman í næði og trún
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
450 milljón króna framlag
Krabbameinsfélagsins sett á ís
Ekki verður tekin afstaða til þess hvort þiggja eigi 450 milljón króna framlag Krabbameinsfélagsins
fyrr en ljóst er hvernig nýta á húsnæði Landspítala. Vonbrigði, segir framkvæmdastjóri félagsins.
Undir það taka Signý Vala Sveinsdóttir og Agnes Smáradóttir yfirlæknar á Landspítala
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameins-
félagsins, vill sjá nýja aðstöðu fyrir dagdeild krabba-
meinssjúkra og undrast það að engar áætlanir séu um
úrbætur. Mynd/gag
„Aðstaða krabbameinssjúkra á Landspít
ala er óviðunandi,“ segir Halla Þorvalds
dóttir, framkvæmdastjóri Krabbameins
félagsins. Undir það taka Signý Vala
Sveinsdóttir, yfirlæknir blóðlækninga á
Landspítala og formaður Félags íslenskra
lyflækna, og Agnes Smáradóttir, yfirlækn
ir lyflækninga krabbameina á Landspítala.
„Aðstaðan er algjörlega óviðunandi,
bæði fyrir sjúklinga, aðstandendur og
starfsfólk,“ segir Signý Vala. „Það er að
kallandi að leysa úr vandanum.“
Halla segir að fyrir tæpu ári hafi verið
samþykkt á aðalfundi Krabbameinsfé
lagsins að veita 450 milljónum króna til
byggingar nýrrar dagdeildar fyrir blóð og
krabbameinslækningar með því skilyrði
að ný deild verði tekin í notkun á þremur
árum í svokallaðri Kbyggingu Landspít
ala í Fossvogi. Boðið sé háð því að brugð
ist sé hratt við. Signý Vala segir að hug
myndin njóti víðtæks stuðnings.
„Nauðsynlegt er að heilbrigðisráðherra
hafi þetta mál sem eitt af forgangsverkefn
um sínum, það er að fyrsta flokks fram
tíðaraðstaða verði sett upp fyrir dag og
göngudeild blóð og krabbameinslækn
inga.“
Agnes segir vandann birtast víða í
starfseminni. Dýrari lyf séu notuð vegna
plássleysis. Ráða þurfi fleiri lækna
en ekki sé pláss fyrir þá. Skoðað
sé að kalla fólk til aðhlynningar
á kvöldin þar sem ekki er pláss á
daginn. „Við styðjum málið heils
hugar,“ segir hún. „Það er afar
brýnt þar sem ekki er gert ráð fyrir
deildinni á nýja spítalanum.“
Krabbameinsfélagið hefur í tvö
ár átt í viðræðum við Landspítala
um úrbætur, en hefur nú fengið
þau svör frá heilbrigðisráðuneytinu,
eftir fund með nýjum ráðherra í
ársbyrjun, að heildarendurskoðun
á húsnæði spítalans sé í gangi.
Ákvörðun um framhaldið verði byggð á
þarfagreiningu í kjölfar hennar. Halla seg
ir ákvörðun Krabbameinsfélagsins aðeins
gilda fram að næsta aðalfundi félagsins í
maí.
„Sjúklingar á deildinni fengu lyf fyrir
2,3 milljarða króna í fyrra. Kostnaður við
frágang Kbyggingarinnar og flutning
dagdeildarinnar er um 1300 milljónir
króna. Félagið er tilbúið til að leggja fram
rúmlega þriðjung þeirrar upphæðar,“ seg
ir Halla. Hún bendir á að bregðast verði
við bágri aðstöðunni því búast megi við
að krabbameinstilvikum fjölgi um hátt
F R É T T I R
Signý Vala Sveinsdóttir,
yfirlæknir blóðlækninga á
Landspítala.
Agnes Smáradóttir, yfirlæknir
lyflækninga krabbameina á
Landspítala.