Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.2022, Page 35

Læknablaðið - 01.03.2022, Page 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 147 Á Íslandi og á Norðurlöndunum hafa allir sama rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, nægilegt er að hafa búsetu í landinu til að geta gengið að því vísu. Ef við lítum til Bandaríkjanna hins vegar þarf fólk að kaupa sér tryggingar til að fá þessa grunnheilbrigðisþjónustu og þau sem ekki hafa efni á slíku geta átt von á feitum reikningi lendi þau í að þurfa á henni að halda. Slíkar einkatryggingar hafa ekki tíðkast hér á landi en þetta gæti þó breyst sökum þeirrar þróunar síðastliðinna ára að aukagjöld leggjast á einstaklinga er leita þurfa þjónustu á einkareknum læknastofum. Á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) stendur að hlutverk stofnunarinnar sé „að tryggja réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heil­ brigðisþjónustu.“ Á Íslandi eru allir sjálf­ krafa sjúkra tryggðir og því þýðir þetta að SÍ eigi að tryggja réttindi allra Íslendinga, en er raunin sú? Sérfræðilæknar Rammasamningar sérfræðilækna starf­ andi á stofu sem tóku gildi í janúar 2014 runnu út 31. desember 2018 og þessir læknar hafa því verið samningslausir í meira en þrjú ár. Reglugerðin um endur­ greiðslur hefur endurtekið verið fram­ lengd sem einhliða ákvörðun af hálfu SÍ en ekki verið tekið tillit til verðhækk­ ana í landinu, svo sem launahækkana, verðbólgu og kostnaðar við aðföng eða nýjungar í faginu. Sérfræðilæknar hafa neyðst til að taka upp svokölluð komu­ gjöld sem ekki eru niðurgreidd af SÍ til að svara þessum aukna kostnaði við rekstur læknastofa og þannig hefur trygginga­ vernd sjúklingsins í raun rýrnað án þess hann hafi gert sér grein fyrir. Sjúklingur­ inn hefur ekki annað val en að greiða gjaldið, vilji hann fá þjónustuna, en án Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Einn fyrir alla og allir fyrir einn Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. hjartalæknir og viðskiptafræðingur ingibjorg@holt.is Ingibjörg Kristjánsdóttir þess að hafa möguleika á endurgreiðslu frá sínu tryggingafélagi, það er Sjúkra­ tryggingum Íslands! Við það bætist að endurgreiðslureglugerðin sjálf er svo flók­ in að erfitt er að átta sig á fyrirfram hve háum reikningi má búast við, leiti maður sér læknishjálpar á stofu. Oft hefur verið bent á þá góðu og miklu þjónustu er veitt er á stofum sér­ fræðilækna og um það þarf ekki að efast. SÍ hefur það hlutverk að hafa eftirlit með þessari þjónustu en slíkt eftirlit er ekki í höndum fagaðila á vegum stofnunarinnar, það er lækna er hafa menntun og reynslu til slíks eftirlits, og verður það að teljast algerlega óásættanlegt! Eins og komið hefur fram í fréttum hefur SÍ frekar viljað greiða fyrir vissar aðgerðir erlendis en gera samning við stofnanir á Íslandi þrátt fyrir að hér sé til nauðsynleg sérfræði­ þekking, reynsla og aðstaða. Er þarna ver­ ið að veita aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu? Skilgreina þarf mun betur hvaða verk­ efni eiga tilheyra heilsugæslunni (fyrsta stigi), læknum í undirsérgreinum, svo sem á stofum, (öðru stigi) og Landspítala (þriðja stigi). Því Landspítali er jú þriðja stigs heilbrigðisstofnun (tertiary spítali) með það hlutverk að sinna stærstu og jafnframt flóknustu verkefnunum sem ekki er hægt að veita utan spítala. Þessi þrjú stig þjónustunnar þurfa síðan að vinna saman svo rétt verk séu unnin á réttum stað og þar af leiðandi sem hag­ stæðast fyrir þiggjendur og greiðendur þjónustunnar. „Að tryggja réttindi sjúkratryggða og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu“ Er SÍ að uppfylla sitt hlutverk? Er aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjón­ ustu tryggt? Eða er með þessu verið að skapa tvöfalt kerfi þar sem þeir sem efni hafa á geta borgað fyrir vissa heilbrigðis­ þjónustu meðan þeir sem ekki hafa efni á sitja á biðlista í nokkur ár með þeim skertu lífsgæðum er því fylgja? Það veitir von um betri tíma að núver­ andi heilbrigðisráðherra svaraði nýlega fyrirspurn á alþingi þannig að ekki skipti máli hvort heilbrigðisþjónusta væri veitt af hinu opinbera eða í einkageiranum. Að lokum vil ég hvetja heilbrigðisráð­ herra, forstjóra SÍ, forstjóra Landspítala og komandi stjórn Landspítala til að setjast niður og vinna saman til að skapa kerfi er tryggir áframhaldandi rétt allra Íslendinga að heilbrigðisþjónustu. Eins og skytturnar fjórar sögðu: „einn fyrir alla og allir fyrir einn“. LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO Félag almennra lækna Árni Johnsen Þórdís Þorkelsdóttir Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson Guðrún Dóra Bjarnadóttir Læknafélag Reykjavíkur Guðmundur Örn Guðmundsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna (FOSL) var stofnaður árið 2001. Upp haflegi tilgangur sjóðsins var að greiða fæðingarstyrki. Frá 1. mars 2022 taka gildi endurskoðaðar úthlutunarreglur. Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna greiðir: Læknar sem starfa samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og LÍ eiga rétt á styrk úr sjóðnum. Þeir sem stunda sjálfstæðan rekstur verða að sækja um aðild að FOSL og greiða iðgjald til hans. KYNNTU ÞÉR RÉTTINDI ÞÍN Sjá nánar á www.lis.is/is/sjodir/ fjolskyldu-og-styrktarsjodur • EINGREIÐSLUSTYRKI • ENDURHÆFINGARSTYRKI • FÆÐINGARSTYRKI • GLASAFRJÓVGUNARSTYRKI • STYRKI VEGNA NAUÐSYNLEGRA LÆKNISAÐGERÐA, SEM SJÚKRATRYGGINGAR GREIÐA EKKI • STYRKI VEGNA KAUPA Á HEYRNARTÆKJUM OG GLERAUGUM • STYRKI VEGNA SÁLFRÆÐIAÐSTOÐAR • STYRKI VEGNA TANNVIÐGERÐA • ÚTFARARSTYRKI • VEIKINDASTYRKI

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.