Læknablaðið - 01.03.2022, Qupperneq 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 149
Runólfur Pálsson er nýr forstjóri Landspítala.
Hann hefur starfað þar frá 1996, þekkir starfsemina
vel og er spenntur fyrir verkefninu. Mynd/gag
V I Ð T A L
íþyngjandi. „En þá verðum við samt að
hugsa í lausnum, því dagvinnutími er að
eins 24% af venjulegri viku.“
Fyrir áramót var samið við Klíníkina
um að skera niður af biðlistum spítal
ans fyrir um 175 milljónir króna. Ætlar
Runólfur að útvista meira í þessum dúr?
„Þetta eins og annað snertir markvissa
hlutverkaskipan milli helstu eininga heil
brigðisþjónustunnar. Ég hef lagt áherslu
á að hámarka nýtingu úrræða með hag
kvæmnisjónarmið að leiðarljósi. Þar á
meðal eru mögulega ákveðnar aðgerðir.
Þetta þarf að skoða eins og annað. Það
þarf að velta við öllum steinum,“ segir
hann og augljóst að hann er fullur starfs
þreks og tilhlökkunar að byrja.
En hvað ætlar hann að gera við pró
fessorsstöðuna sína í Háskóla Íslands?
„Það verður breyting á mínum störfum
fyrir skólann en ég mun ekki hætta,“ segir
Runólfur sem hefur vísindarannsóknir
á sínum snærum og 5 doktorsnema. „Ég
hef ekki hug á að hlaupa frá því. Þetta eru
verkefni sem hafa verið í uppbyggingu í
áraraðir, en ég hætti daglegum störfum
fyrir Háskóla Íslands,“ segir hann.
„Ég hef sinnt mikilli kennslu og verð að
hverfa frá því. Ég get ekki sinnt öllu áfram
en einbeiti mér að þeim verkefnum sem
ég get ekki svo auðveldlega sett í hendur
annarra og eru heppilegri viðureignar
samhliða starfinu.“
Alltaf verið annasamt
Forstjórastarfið er annasamt en Runólfur
býst þó ekki við að fjölskyldan finni mik
inn mun. „Ég hef í rauninni verið í veiga
miklum og krefjandi störfum alla tíð.“
Hann lauk kandídatsprófi í læknisfræði
frá Háskóla Íslands árið 1985, sérfræði
námi í lyflækningum frá Hartford Hospi
tal og Háskólanum í Connecticut árið
1991 og sérfræðinámi í nýrnalækningum
frá Massachusetts General Hospital og
Harvard Medical School árið 1996. Runólf
ur hefur starfað á Landspítala samfellt frá
árinu 1996 og sinnt fjölda stjórnunarstaða.
Hann á dóttur og son, Hrafnhildi og
Bjarna Pál, með eiginkonunni Ragnheiði
Linnet söngkonu. Hrafnhildur fylgdi í
fótspor hans en hún er í sérnámi í lyf
lækningum og hefur starfað um skeið á
COVIDgöngudeildinni. Bjarni Páll lauk
nýverið BSprófi í sálfræði og er nú í
meistaranámi í heilbrigðisvísindum. „Ég
hef ekki haldið þessu að þeim. Maður vill
að þau velji það sem þau hafa raunveru
legan áhuga á.“
Runólfur viðurkennir að hans fólk hafi
heldur búist við að hann færi að draga
úr verkefnum en auka þau, kominn yfir
sextugt. „En einhvern veginn þróaðist
þetta mjög hratt og ekki á stefnuskránni
að ganga svona langt í stjórnunarstörf
um. Þetta kemur þeim því á óvart en þau
styðja mig,“ segir hann.
„Þetta starf er svo spennandi þar
sem því fylgir óvissa. Áskoranirnar eru
margar. Hér þarf að hyggja að okkar dýr
mæta mannauði. Þar er læknahópurinn
mikilvægur og mér finnst ekki hafa tekist
að rækta þann garð nægilega vel allmörg
undanfarin ár. Við merkjum óánægju,“
segir Runólfur.
„Læknanámið er langt og strangt og
fólk á að njóta ávaxta erfiðisins í störfum
sínum sem læknar. Þetta er gríðarlega
áhugavert en jafnframt krefjandi starf og
því verður ánægjan að drífa fólk áfram,“
segir hann. En þarf hann þá að taka hand
bremsubeygjuna nú þegar svo margir lýsa
kulnun og þreytu?
„Já, þetta er áhyggjuefni en þetta
ástand var byrjað áður en COVIDfar
aldurinn skall á. Ég tel að við séum í
viðkvæmari stöðu en margar þjóðir því
okkar er lítil og við aðeins með þetta
eina stóra sjúkrahús, kröfurnar miklar og
mannaflinn takmarkaður,“ segir hann og
bendir á breytta tíma og því mikilvægt að
leggja sig fram um að viðhalda gæðum
kerfisins.
„Ættjörðin kallaði lækna áður til baka
að loknu námi erlendis en þróunin síð
ustu tvo áratugi hefur breytt því. Fólk er
ekki eins bundið af því að koma heim og
áður var. Samskiptin eru auðveld, ferðir
greiðar. Við verðum því að leggja okkur
fram við að laða fólk til starfa á Landspít
ala. Þess vegna verðum við að hlúa vel að
mannauði okkar.“
Meðferðarkjarninn
opnaður á
skipunartímanum?
„Ég ætla að vona að nýr meðferðar
kjarni verði kominn í notkun áður
en skipunartími minn er úti,“ segir
Runólfur Pálsson, nýr forstjóri Land
spítala sem ráðinn hefur verið til 5 ára.
„Ég er hóflega bjartsýnn því fram
kvæmdatími opinberra bygginga er
oft langur.“ Stór hluti húsakynna spít
alans er úreltur og takmarkaður. „Við
þurfum strax að ráðast í skipulags
breytingar til að mæta aukinni þjón
ustu og kröfum svo við ráðum við
verkefnin sem að okkur snúa,“ segir
hann.
„Það er einnig góður undirbúning
ur fyrir nýja meðferðarkjarnann, sem
verður jú aðeins hluti af spítalanum.“