Læknablaðið - 01.03.2022, Page 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 151
„Þessar stofnanir hafa leyft okkur
að þróa þetta áfram. Ef allt gengur eftir
munu þær koma út í plús,“ segir hún. En
voru þau aldrei við það að gefast upp?
„Við raunverulega gáfumst upp,“ segir
Arna. Þau hafi verið full af eldmóði í um
5 ár.
„Svo gekk okkur ekkert að koma
þessu á framfæri og gáfumst næstum
upp. Við gerðum ekkert í þessu nema á
vísindahliðinni í nokkur ár. En árið 2018
fengum við inn fjárfesta og gátum ráðið
framkvæmdastjóra, Sigurbjörgu Ástu
Jónsdóttur. Þá fengum við aftur áhuga á
þessu og höfum unnið markvisst að þessu
síðustu ár,“ segir hún.
En geta sjúklingar breytt lífsstíl sínum
sjái þeir í appinu að sjónin stefni í óefni?
„Tilgangur sjúklingsins er einmitt að sjá
hvaða breyting á tölunum muni draga úr
hættunni á vandamálum síðar.“ Hægt sé
að stýra betur blóðsykri og þrýstingnum.
„Þannig getur sjúklingurinn dregið úr
hættu á að fá æðaskemmdir í augu.“
Ómetanleg þekking
Hefðu þau lagt upp í þessa vegferð hefðu
þau vitað hversu langan tíma hún tæki?
„Já, já,“ svarar Thor af öryggi. „Úff,“ segir
Arna. Thor segir ferlið allt bæði gefandi
og lærdómsríkt. „Við höfum séð hluti
í nýju ljósi.“ Arna bendir á að þekking
þeirra á umgjörð sprotafyrirtækja hafi
aukist. „Við höfum lagt mikið á okkur í
rúman áratug án þess að vita hvort það
bæri árangur,“ segir hún. „Og flest sprota
fyrirtæki lognast út af.“
Ljóst er að þau hjónin búa yfir víð
tækri þekkingu saman. Líftölfræðingur
og innkirtlafræðingur. „Já, það er góð
blanda í mörgu og störf okkar hafa oft
skarast,“ segir Arna. „Nú eru 20 ár síðan
við komum heim úr sérnámi frá Iowa í
Bandaríkjunum. Ég er ekki viss um að við
hefðum getað unnið svona vinnu erlendis.
Þrátt fyrir að sprotaumhverfið á Íslandi
sé erfitt eru boðleiðir stuttar hér og hægt
að gera hluti sem ég er ekki viss um að sé
auðveldara erlendis,“ segir hún.
„Síðustu 20 ár hafa störf okkar skarast
miklu meira en við sáum fyrir þegar við
vorum í námi,“ segir hún. Thor samsinnir
því og segir að allt frá því að hann hóf
störf hjá Hjartavernd, sem rannsaki far
aldsfræði sykursýki 2, hafi þessi tegund
sykursýki leikið stórt hlutverk í starfsferl
inum.
Thor og Arna hafa nú lokið einangrun vegna
COVID-19 sem hrjáði þau þegar Læknablaðið
talaði við þau. Samhent og samstillt í starfi og
einkalífi. Mynd/gag
V I Ð T A L