Læknablaðið - 01.03.2022, Síða 40
152 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
„Þá var bónus að geta farið saman á
ráðstefnur, verið með sitthvort erindið
og rætt hlutina.“ Þau hafi náð góðum
tengslum, til að mynda við innkirtla og
sykursýkislækna í Danmörku í gegnum
IDDC (Icelandic Danish Diabetes Club), í
gegnum Ástráð Einarsson.
Sterk tengsl við Bandaríkin
En nú komin með samstarfssamninga í
Bandaríkjunum, var erfið ákvörðun að
koma heim eftir að sérnáminu lauk? „Thor
er fæddur í New York og því bandarískur
ríkisborgari. Ég var með græna kortið
vegna hans. Okkur voru því allir vegir
færir. Við gátum farið hvert sem er. Þetta
var ekkert auðveld ákvörðun,“ segir Arna.
„Einmitt,“ samsinnir Thor, en hér
heima hafi opnast stöður fyrir þau bæði
þegar námi lauk. Fyrir hann hjá Hjarta
vernd og hana sem innkirtlalækni á
Landspítala. Þau hafi átt von á öðru barni.
„Mér fannst erfitt fyrstu árin heima og
hugsaði oft til þess að maður hefði átt að
taka aðra ákvörðun,“ segir hún. Thor segir
í gríni frá því að líf hans hefði orðið ann
að í hinu heimalandinu, enda kollegarnir
í deildinni hans ytra oft bent honum á að
hann gæti átt náðuga daga heima þar sem
makinn væri læknir.
„Líf þitt er á beinu brautinni. Þú þarft
ekkert að vinna,“ segir hann að þeir hafi
sagt, og hlær. En bjó hann sem barn í
Bandaríkjunum? „Nei, nei, en bræður
mínir ólust þar upp fram að grunn
skólaaldri. Tengslin við Bandaríkin voru
sterk og við fórum alltaf til Ameríku í
frí. Ég hafði ekki komið til meginlands
Evrópu fyrr en eftir útskrift.“ Hún grípur
inn í: „Hann hafði aldrei komið norður í
land. Nánast ekki farið upp Ártúnsbrekk
una,“ og Húsvíkingurinn hún því dregið
hann norður tvær helgar í röð á fyrsta ári
sambandsins.
Bandaríkin bíða
„Það var frábært og gaman að kynnast
einhverju öðru,“ segir Thor og þau fari
nú oft norður í fríum. Þótt þau séu í ein
angrun er mikið gera. En mun það breyta
sjónarhorni þeirra að hafa nú sjálf fengið
COVID19?
„Það er lærdómsríkt. Miðað við að vera
þríbólusett og samt svona lengi kvefuð
býð ég ekki í hvernig við hefðum verið án
bólusetningar,“ segir Arna. Thor segir að
hann hugsi strax um háa dánartíðni hjá
óbólusettum.
Eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi
„Ég tek undir með Runólfi að það þurfi að straumlínulaga hvað Landspítali á
að gera og hvað getur farið fram annars staðar,“ segir Arna um orð nýs forstjóra
Landspítala, Runólfs Pálssonar.
„Við eigum ekki að vera hrædd við að nýta þekkinguna sem leynist víða í kerf
inu. Landspítali á ekki að vera svona yfirgnæfandi og gera allt,“ segir hún.
Arna og Thor segjast alltaf hafa verið sammála um að íslenska heilbrigðiskerfið
sé eitt það besta á heimsvísu. „Það er svo mikilvægt að við heilbrigðisstarfsfólk
höldum því á lofti,“ segir hún. Fráflæðisvandinn sé til að mynda ekki spurning
um vonda þjónustu heldur peninga. „Þetta hruma eldra fólk sem er teppt á spítal
anum fær toppþjónustu þótt það eigi betur heima annars staðar.“
Thor bendir á að viðbrögðin hér heima við COVIDfaraldrinum kristalli þetta.
„Ég hugsa að við værum með tvöfalt fleiri innlagnir á sjúkrahúsið hefðum við
ekki svona gott heilbrigðiskerfi.“ Göngudeildin og aðrar stoðdeildir sem vinni að
forvörnum hafi þar ráðið úrslitum.
„Það gleymist að við gátum snúið á faraldurinn og lagt færri inn. Það er mikils
virði. Við ættum að draga oftar það jákvæða fram í stað þess að einblína á það
neikvæða.“
„Þær eru hrikalega háar og veikindin
meiri. En þetta er ekki nein venjuleg pest
og ég hef aldrei verið veikur svona lengi.
Ég er ekki alvarlega veikur en ég finn að
ég er veikur. Þyngsli, hæsi og hósti. Ég er
móður þegar ég fer upp stigann. Þetta er
eitthvað annað.“
En sjá þau fyrir sér að búa í Banda
ríkjunum seinna meir? „Ég væri alveg
til í að flytja þangað,“ segir Arna. Thor
grípur þráðinn. „Já, þau eru svo fjölbreytt.
Bandaríkin eru mörg lönd og maður get
ur valið úr.“ Margt sé svo heillandi við
Bandaríkin.
„Já, kannski maður eyði ellinni í Flór
ída,“ segir hún dreymin. „Nýja Mexíkó,“
bætir hann við.
Við varðveitum gögnin þín
2035090
2035090
Auðvelt
Öruggt
Þægilegt
Einfalt ekki satt
GAGNAGEYMSLAN
Gagnageymslan ehf. · Smiðshöfða 1, 110 Reykjavík · 587 9800
www.gagnageymslan.is · gagnageymslan@gagnageymslan.is
Nafn
Númer kassa
Innihald
Geymslutími
• Þú hringir í 587 9800 eða sendir okkur tölvupóst
• Við komum með tóma kassa og strikamerki
• Þú skráir gögnin, setur í kassana, límir strikamerkin á og lætur
okkur vita
• Við komum og förum með kassana í örugga geymslu þar sem
þú hefur alltaf aðgang að þeim
• Við pössum gögnin í vöktuðu rými við bestu aðstæður þangað
til þú vilt fá þau aftur, skoða þau eða taka til þín
Arna og Thor segjast alltaf hafa verið sammála
um að íslenska heilbrigðiskerfið sé eitt það besta á
heimsvísu. Mynd/gag