Læknablaðið - 01.03.2022, Síða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 155
að ræða sjálfsvígshugsanir, lífsleiðahugs
anir og annað við sjúklinga okkar en
slíkar hugsanir koma fyrir alls staðar í
heilbrigðiskerfinu, hjá öllum læknum.“
Allir heilbrigðisstarfsmenn þurfi að geta
tekið þetta samtal við sjúklinga sína, farið
ofan í saumana og skoðað hvort þeir glími
við sjálfsvígshugsanir.
Mikilvægt að ræða málið
„Fólk gengur oft í gegnum erfiða tíma
í veikindum sínum sem geta leitt til
vonleysis og uppgjafar þótt ekki sé um
formlegan geðsjúkdóm að ræða.“ Gott sé
að opna umræðuna, spyrja um líðan og
þreifa á því hvort skjólstæðingar þeirra
beri merki um þunglyndi.
„Spyrja: Hefur þú verið dapur, ekki
fundið fyrir gleði, verið áhugalaus? Hafa
fleiri dagar en færri verið dimmir?“ seg
ir hún. „Hefur þú fundið fyrir lífsleiða,
jafnvel hugsað að það væri betra að vakna
ekki af svefni?“ Sé svarið jákvætt þurfi að
ræða málið. Alvarleika þess og aðstæð
urnar sem þær komi upp í. Smátt og smátt
megi fara dýpra í samtalið. „Hefur þú
reynt? Hvernig leið þér?“
Engin skotheld leið sé til að meta sjálfs
vígsáhættu. „Enginn spurningalisti eða
líffræðilegur mælikvarði. Þannig að allt
byggist þetta á klínísku mati,“ segir hún
og að matið geti verið misjafnt eftir því
hvenær dags það sé gert. „Fyrir hádegi
getur áhættan verið metin lítil en eftir há
degi getur hún orðið mikil.“ Eitthvað hafi
komið upp á ytra eða innra með einstak
lingi.
„Samtalið er lykilatriði því það getur
haft læknandi áhrif,“ segir hún. Oft sé
gott að ræða við einstaklinginn hvað hann
telji að verði við dauða hans. Sumir hafi
sektarkennd, vilja ekki vera byrði á fjöl
Þórgunnur Ársælsdóttir fyrir utan geðdeild Landspítala
þar sem hún hefur verið yfirlæknir síðustu fjögur ár.
Hún heldur erindi um mat á áhættu á sjálfsvígum á
Læknadögum í mars. Mynd/gag
skyldu sinni og hafi ranghugmyndir um
stöðu sína. „Hver og einn er einstakur og
saga hvers og eins er einstök. Samtalið,
manneskja við manneskju, er svo dýrmætt
og hjálplegt.“
Margir verndandi þættir
Þórgunnur talar einnig um verndandi
þætti. Edrúmennsku, að eiga fjölskyldu,
vera félagslega tengdur, hafa framtíðar
sýn, upplifa tilgang, trú, tengingu. „Við
þurfum tengingu og tilgang,“ segir hún.
„Það er mikilvægt að ræða þessa þætti
við sjúkling.“ Hún segir þó dæmi um að
sjúklingar sem glími við mikið þunglyndi
og vanlíðan séu ekki endilega í sjálfsvígs
hættu þótt þeir hafi ágengar sjálfsvígs
hugsanir.
„Þeir segja samt að þeir myndu aldrei
fyrirfara sér. Þeir nefna ástæðu. Hafa til
gang.“
Þórgunnur minnir lækna á bráða
móttöku geðdeildarinnar ef fólk er með
sjálfsvígshugsanir og plön og bendir fólki
í sjálfsvígshættu á Píetasamtökin og
hjálparsíma Rauða krossins, 1717.
Geðlækningar báru sigurorð af bæði
bæklunarskurðlækningum og bráða
lækningum hjá Þórgunni Ársælsdóttur
sem útskrifaðist 1992 úr læknisfræði,
lauk sérnámi 2005 auk náms í hugrænni
atferlismeðferð. Hún segir erfitt að meta
hvað leiddi hana að geðlækningum. Hún
hafi tekið ársfrí þremur árum eftir útskrift
úr læknisfræði og sinnt tónlistarnámi,
píanóleik og farið í fæðingarorlof og árin
því orðið tvö.
„Eftir tveggja ára hlé ákvað ég að fara í
geðlækningar. Það er erfitt að segja beint
af hverju en báðir bræður mínir glíma við
geðrofssjúkdóma. Ég þekki því geðræna
sjúkdóma í fjölskyldu minni. Margir hafa
spurt mig hvort það hafi haft áhrif. Ég get
ekki svarað því,“ segir hún. Þá hafi sam
nemandi í námi sem glímdi við geðrænan
vanda en kláraði geðlækningar verið mik
il fyrirmynd.
„Á 5. ári sem læknanemi var ég mjög
hrifin af aðferðum Gísla Þorsteinssonar
geðlæknis við kennslu. Mér fannst hann
besti læknir sem ég hafði nokkurn tíma
unnið með. Góður við sjúklinga sína og
eldklár. Þessar fyrirmyndir höfðu sín
áhrif,“ segir Þórgunnur.
Þótt Þórgunnur grípi nú aðeins stutt
lega í píanóið, í stað klukkustundalangrar
spilamennsku á dag hér áður, hefur tón
listin haft sín áhrif. „Báðir synir mínir eru
tónlistarmenn,“ segir hún stolt.
„En það er mjög gefandi að vera
geðlæknir. Þetta er skemmtilegt starf
og eitt af því besta við að vinna á geð
deildinni á spítalanum er gott samstarfs
fólk. Hér er sérstaklega góður andi.“ Mjög
gefandi sé að hjálpa fólki að ná tökum á
lífi sínu og eiga gott líf þrátt fyrir erfiða
sjúkdóma.
Gefandi að vera geðlæknir