Læknablaðið - 01.03.2022, Qupperneq 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 159
Dagur í lífi krabbameinslæknis
á geislameðferðardeild
6.35 Á fætur og börnin vakin, við borð
um morgunmat saman og við eiginmað
urinn drekkum gott kaffi. Hann þarf að
vera mættur snemma í vinnu vegna fjar
fundar við útlönd og því geng ég morgun
túrinn með hundinn í dag og hann smyr
þá nestið.
7:55 Kem mér út, aðeins of seint. Mætt
í vinnu upp úr kl 8. og á læknafund á
geisladeild.
8.30 Mætt á geisladeild á fund okkar
fjögurra lækna þar.
Við ræðum meðal annars um inn
réttingu á nýju viðtalsherbergi á geisla
deild.
9-10.30 Hitti sjúklinga sem eru í langri
lyfja og geislameðferð samtímis á mínum
vegum. Vandamálin eru misjöfn, auka
verkanir af krabbameinslyfjum, andlegt
álag og kvíði sem fylgir oft því að fá
krabbameinsgreiningu, verkir og nær
ingarvandi tengt geislameðferð á hálsi.
10.30 Sest við teikniborðið. Vegna
frestana, meðal annars út af óveðri, hefur
dagskráin og innkallanir riðlast. Ég vinn
að geislameðferð sem átti að vinna daginn
áður.
12.40 Kem aftur á geisladeild eftir há
degismat, fær mér kaffibolla og drekk á
kaffistofunni með geislafræðingum. Er
þakklát fyrir að eiga gott samstarfsfólk og
kaffispjallið er hluti af því að kynnast bet
ur og viðhalda góðu samstarfi.
13.00 Sest aftur við teikniborðið. Við
ákvörðun geislameðferðar er að mörgu að
hyggja. Þarf að setja mig inn í fyrirmælin
um geislameðferð, niðurstöðu samráðs
fundar, myndgreiningu og leiðbeiningar
um ákvörðun geislarúmmála.
14:31 Búin að klára að teikna verkefni
dagsins, meðal annars geislameðferð
vegna krabbameins í endaþarmi. Rifja
upp anatomíu grindarholsins og teikna
mesorectum og eitlastöðvar í grindarhol
inu á tölvusneiðmyndir. Ábyrgur sér
fræðingur samþykkir verkið.
14.32 Lít yfir uppfærðan verkefnalista
sem hefur lengst. Ég samþykki svokallaða
innstillingu hjá þeim sem hófu geisla
meðferð fyrr í dag, en þá er mynd úr með
ferðinni borin saman við þá tölvusneið
mynd sem meðferðin var unnin úr.
14:55 Óundirbúið spjall í dyragættinni
við hjúkrunarfræðing um sjúklingaupp
lýsingar og leiðbeiningar hvað varðar fyll
ingu endaþarms og þvagblöðru við geisla
meðferð á blöðruhálskirtli, en rúmmál
þessara líffæra þarf að vera sem stöðugast
meðan á geislameðferð stendur.
15:11 Skoða listann fyrir samráðsfundi
morgundagsins. Ekkert tilfelli er á sam
ráðsfundi vegna krabbameina á höfði og
hálsi fyrir morgundaginn.
15:13 Fyrst ég þarf ekki að undirbúa
samráðsfund, næ ég að vinna aðeins í
umbótaverkefni um rafrænar beiðnir og
fyrirmæli innan geislameðferðardeildar.
16:01 Tíminn flýgur, ég verð að hætta
þó ég sé komin í smá flæði í verkefninu.
Geng yfir á skrifstofuna og skipti um föt.
16:15 Umferðarteppa á Miklubraut. Læt
mig hafa það þar sem ég þarf alla jafna
ekki að aka Miklubrautina, eða lenda í
umferðarteppu á leið í og úr vinnu.
16.35 Skíðum barna skilað í skerpingu.
Reyndi að kaupa fjölskyldudagatal til
að koma heimilislífinu í skipulag aftur
eftir um þriggja mánaða tímabil litað af
einangrun, sóttkvíum og eftirköstum, en
enginn hafði heyrt um svona dagatal í rit
fangaversluninni.
17.30 Útréttingum lokið og held aftur
heim á leið, nú í mun minni umferð.
Geng frá þvotti á meðan eiginmaður
inn eldar matinn, menntaskólaneminn
á heimilinu hafði farið út með hundinn.
Fann fjölskyldudagatal í vefverslun og
panta.
18.30 Fjölskyldan borðar saman kvöld
mat, við kvöldmatarborðið spjöllum við
um daginn okkar.
19-20.30 Held áfram að vasast í þvotti
og þrifum og reyni að virkja börnin í
tiltekt í herbergjunum sínum. Miðjan
les upphátt fyrir mig á meðan ég prjóna
nokkrar umferðir og hlusta. Við gleym
um okkur aðeins og allt í einu er kominn
háttatími.
21:00 Börnin sofnuð og ég tek úr síðasta
þurrkara kvöldsins. Hundurinn mænir á
mig og vælir aðeins, gefur í skyn að hún
vilji fá kúrustund uppi í sófa. Ég er alveg
til í það líka, kveiki á sjónvarpinu og
hundurinn leggst sæll hjá mér og sofnar.
Ég gríp aftur í prjónana og horfi með öðru
auganu á sjónvarpið.
22:20 Tími til að koma sér í bólið, þó
fyrr hefði verið. Hugurinn orðinn rólegur
eftir amstur dagsins og augnlokin farin að
síga. Nægur svefn er gulls ígildi.
Vaka Ýr Sævarsdóttir
Vaka Ýr tók þessa sjálfu (selfie)
í vinnunni daginn sem hún skilaði inn
dagbókinni sem hér er birt.