Læknablaðið - 01.03.2022, Side 48
160 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Ingvar Freyr Ingvarsson
hagfræðingur
Læknafélags Íslands
ingvar@lis.is
Mannaflagreining
Læknafélags Íslands
Steinunn Þórðardóttir
öldrunarlæknir
formaður Læknafélags Íslands
steinunn@lis.is
Læknafélag Íslands hefur unnið að gerð
spálíkans um mannaflaþróun lækna á
Íslandi til ársins 2040. Í spánni kemur
fram áætlað framboð lækna og ætluð eft
irspurn eftir læknum til ársins 2040. Við
gerð spálíkans er horft til ýmissa þátta,
til dæmis breytinga á aldurssamsetningu
þjóðarinnar. Gert er ráð fyrir að hópurinn
65 ára og eldri vegi þyngra í eftirspurn
eftir heilbrigðisþjónustu en þeir sem eru
yngri. Spálíkanið byggist á mannfjöldaspá
Hagstofunnar fyrir hlutfall 65 ára og eldri
af heildarmannfjölda á komandi árum. Þá
er einnig tekið mið af áætluðum breyting
um í læknastéttinni.1 Í spánni er meðal
annars tekið tillit til eftirfarandi þátta:
• Nýliðunar í læknastéttinni og aldurs
dreifingar.
• Fjölda lækna sem útskrifast frá Háskóla
Íslands og erlendum háskólum.
• Hlutfalls lækna sem stunda framhalds
nám hérlendis og þeirra sem kjósa að
fara utan til framhaldsnáms.
• Hlutfalls lækna sem setjast að erlendis
eftir nám.
• Núverandi aldurssamsetningar lækna
stéttarinnar.
• Hlutfalls þeirra sem fara á eftirlaun á
næstu árum, bæði hér á landi og er
lendis.
Sé litið á tölfræði um starfandi lækna á Ís
landi kemur ýmislegt áhugavert í ljós, sjá
mynd 1 og 2. Meðalaldur starfandi lækna
á Íslandi er nú um 48 ár og hefur því
lækkað lítillega frá árinu 2014. Það ár var
meðalaldurinn 50,4 ár. Yngri læknum hef
ur því fjölgað. Má það rekja annars vegar
til þess fjölda Íslendinga sem leggur stund
á læknisfræði erlendis. Þeir sem það gera
eru nær jafnmargir og nemendur í lækna
deild Háskóla Íslands. Hins vegar hefur
nýnemum við læknadeild Háskóla Íslands
fjölgað frá því að vera um 49 árin 2014 til
2016 í það að vera 62 árið 2021. Vaxandi
framboð sérnáms í læknisfræði hér á
landi hefur leitt til þess að læknar starfa
lengur hér á landi eftir útskrift og afla sér
sérmenntunar að hluta til eða að öllu leyti
hérlendis í ríkari mæli en áður.
Þá hefur orðið algjör viðsnúningur í
kynjahlutföllum þar sem 66% lækna undir
þrítugu eru konur en 34% eru karlar. Þó
yngri læknum hafi fjölgað síðustu miss
erin, þá eru 27% starfandi lækna 60 ára
eða eldri. Því er ljóst að liðlega fjórðungur
læknastéttarinnar hættir störfum næsta
áratug fyrir aldurs sakir. Því er mikilvægt
að nýliðun í stéttinni sé nægjanleg.
Aðalástæða þess að unnið er að spálík
ani sem þessu er að fá sem skýrasta mynd
af framtíðarhorfum í heilbrigðisþjónustu.
Miðað við gefnar forsendur er útlit fyrir
að það verði enn meiri skortur á læknum
á komandi árum en nú er. Þannig eru vís
bendingar um að það muni vanta 125130
lækna árið 2030, 210215 árið 2035 og 250
255 árið 2040. Þessi viðbót er umfram það
F R Á L Æ K N A F É L A G I Í S L A N D S
Mynd 1. Félagar í Læknafélagi Íslands
Mynd 2. Félagar í Læknafélagi Íslands eftir kyni og aldri
Konur Karlar
Konur Karlar