Lögmannablaðið - 2021, Qupperneq 14
1995 – Framtíðin bankar á dyrnar
Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður varð fyrst kvenna formaður Lögmannafélags
Íslands. Gegndi hún embættinu til ársins 1997. Það var síðan ekki fyrr en árið
2018 sem kona sat næst í stóli formanns, Berglind Svavarsdóttir, sem gegndi
formennsku til ársins 2021.
Lögmannablaðið hóf göngu sína og hefur komið út óslitið síðan.
Lögmenn voru skyldaðir til að kaupa starfsábyrgðar tryggingar og halda
fjárvörslureikninga og var þar með hætt að leggja fyrir fjármuni í ábyrgðarsjóð
lögmanna.
Síðast en ekki síst þá var í fyrsta skipti haldið knattspyrnumót á vegum Lögmannafélagsins.
1996 – Merki félagsins táknar réttlæti og óhlutdrægni
Merki félagsins var útbúið í tilefni af 85 ára afmælinu. Hugmynd að því var sótt í gamalt tákn
fyrir stjörnumerkið vogina sem hefur frá fyrndinni verið tákn fyrir réttlæti og óhlutdrægni.
Í tilefni afmælisins voru Sveinn Snorrason og Guðmundur Pétursson kjörnir heiðursfélagar.
1998 – Ný lög, úrskurðarnefnd, heimasíða og félagsdeild
Lög um lögmenn nr. 77/1998 voru samþykkt sem þykja tíðindi til næsta bæjar. Á grundvelli
þeirra var svo stofnuð fimm manna úrskurðarnefnd lögmanna sem tók við því hlutverki
að fara með agavald gagnvart lögmönnum sem hafði verið á borði stjórnar félagsins frá
árinu 1942. Þá var sérstök félagsdeild stofnuð sem reka átti samhliða lögbundinni starfsemi
félagsins. Síðan þá hefur félagsdeild séð um Lögmannablaðið, námskeiðahald og fleiri
verkefni. Síðast en ekki síst þá var heimasíða félagsins opnuð www.lmfi.is.
2000 – Innanhússlögmaður í stjórn
Fyrsti innanhússlögmaðurinn var kjörinn í stjórn félagsins en fram að því hafði þótt rétt
að þar sætu einungis sjálfstætt starfandi lögmenn þar sem stjórnin sá um að úrskurða
í deilumálum lögmanna. Þá tók úrskurðarnefnd lögmanna við því hlutverki með nýju
lögmannalögunum nr. 77/1998. Ársæll Hafsteinsson tók sæti í stjórninni sem síðan hefur
verið skipuð innanhússlögmönnum jafnt sem öðrum lögmönnum. Þetta ár var Guðmundur
Ingvi Sigurðsson hrl. kjörinn heiðursfélagi.
2002 – Heiðursfélagar
Hæstaréttarlögmennirnir Árni Guðjónsson og Jón Finnsson gerðir að
heiðursfélögum.
2004 – Félag kvenna í lögmennsku
Félag kvenna í lögmennsku stofnað af 70 konum í Lögmanna félaginu sem vildu
efla samstarf og styrkja stöðu kvenna í lögmannastéttinni, sem og að auka áhrif
og þátttöku þeirra í félaginu.
2008 – Lagadagurinn
Lögmannafélagið, ásamt Lögfræðingafélagi Íslands og Dómarafélagi Íslands, hóf að standa
fyrir Lagadeginum árlega sem hefur verið stærsti viðburður í lögfræðingasamfélaginu á
Íslandi síðan. Á fyrsta daginn mættu 220 manns en í seinni tíð hafa allt upp í 600 manns
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/21
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995