Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 84
Það er gott og þarft að ræða stöðu leikskóla- barna. Gleym mér ei er svo smá jurt að það var ekki hægt að litgreina hana með tækinu. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is odduraevar@frettabladid.is Stundum er það kallað gúrkutíð þegar allir eru í fríi og lítið að frétta, og fjölmiðlar þurfa að leita víðar og dýpra að efni til að fylla síðurnar. En sum mál eru alltaf stór, og ættu alltaf að fá athygli. Til dæmis er það gott og þarft að ræða stöðu leikskólabarna og þær tafir sem hafa orðið á inntöku 12 mánaða barna, og á fimmtudag voru kynnt- ar aðgerðir til að bregðast við því ástandi. Þetta eru ekki gúrkufréttir. Það var réttmætt að krefja borgarstjórn um svör og viðbrögð í þessu ástandi, og umræðan um leikskólapláss, fæðingarorlof og hvenær börn eru tilbúin til að fara á leikskóla var tímabær. Önnur mál eru að sama skapi alltaf gallsúr. Þar má nefna tilburði Rússlandsstjórnar og hakkara sem haldið er fram að séu ótengdir, til að þrýsta á ritstjórn Fréttablaðsins og netárásar sem framin var í kjölfarið. Í gúrkutíð mætti kalla slíkar fréttir súrar gúrkur. Við þörfnumst fjölmiðla sem segja okkur hvað er í gangi og ótt- ast ekki að ýfa fjaðrir. Engin eru yfir gagnrýni hafin. Hvorki borgarstjórn Reykjavíkur né Vladimir Pútin. n Súrar gúrkur Alexandra Briem, borgar- fulltrúi Pírata. MYND/AÐSEND n Frétt vikunnar Alexandra Briem Kristín Mjöll Bjarnadóttir Johnsen, myndlistarkona, litgreinir ýmsar íslenskar plöntur og afbyggir síðan, í verkum á fyrstu einkasýn- ingu sinni sem hún opnar á Menningarnótt. birnadrofn@frettabladid.is „Ég var alltaf að tína blóm og var með blóm í pokum úti um allt heima en vissi ekki alveg hvað ég ætlaði að gera við þau. Það þróaðist síðan í þessa sýningu,“ segir mynd- listarkonan Kristín Mjöll Bjarna- dóttir Johnsen. Hún opnar sína fyrstu einkasýningu, Villiblóm, á Menningarnótt. Á sýningunni sýnir Kristín Mjöll átta akrílmálverk sem eiga rætur í íslenskum blómum og jurtum. „Ég mála ekki beint blómin, heldur mála ég abstrakt verk út frá blóm- unum,“ segir Kristín Mjöll. Gaman að afbyggja „Mér finnst svo gaman að afbyggja og það geri ég þarna. Ég fer með blómin og læt litgreina þau með þar til gerðu tæki og þannig fæ ég litina sem ég nota svo til að mála verkin,“ útskýrir Kristín, sem fékk innblástur úr hinum ýmsu blóm- um og jurtum sem finnast víða á Íslandi, svo sem baldursbrá, lúpínu og gleym mér ei. „Plönturnar eru svo ólíkar og svo ólíkar á litinn. Til dæmis er gleym mér ei svo smá jurt að það var ekki hægt að litgreina hana með tækinu. Þá þurfti ég bara að leggja hana við litaprufuspjald og finna rétta lit- inn,“ segir Kristín. Sjónræn ritgerð Hún segist hafa lagst í mikla rann- sóknarvinnu fyrir sýninguna sem jafnvel megi líkja við sjónræna rit- gerð. „Ég hef haldið fjölda erinda og fyrirlestra um listræna rannsóknar- vinnu og mér finnst spennandi að setja listina í fræðilegt samhengi.“ Kristín finnur blómunum einn- ig sögulega merkingu með því „að þekkja sögu blómanna sem eru í bakgarðinum hjá okkur og við sem þjóð höfum nýtt okkur í hundruð ára, hvernig þau voru matreidd, nýtt sem lyf og hvaða nöfn þau bera. Að þetta séu ekki bara lítil blóm sem vaxa úti í garði, heldur hvaða merk- ingu þau hafa.“ Nakin á almannafæri Sýningin Villiblóm stendur yfir í tvo mánuði í versluninni Andrá Reykja- vík á Laugavegi. Kristín segir rýmið henta mjög vel fyrir sýninguna, fal- leg birta og vítt til veggja. Hún segist bæði spennt og stressuð yfir því að opna sína fyrstu einkamyndlistar- sýningu. Tilfinningin sé smá eins og að vera allsber úti. „Ég er búin að leggja mikla vinnu í þetta verkefni og það er fyrst og fremst skemmtilegt að fá að sýna fólki afraksturinn, en þetta er smá eins og ég sé allsber úti og það er auðvitað stressandi,“ segir hún hlæjandi. n Litgreinir íslensk villiblóm Kristín Mjöll kemur litgreindum villiblómum fyrir á sýningunni og finnst svolítið eins og hún sé að stíga nakin fram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða eða aðgang að útsölum á undan öðrum með því að skrá þig á póstlista Dorma. STÓLA DAGAR 18. - 31. ágúst 20% afsláttur af öllum stólum Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr. AVIGNON hægindastóll með skammel Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður. Fullt verð: 169.900 kr. Nú 135.920 kr. KOLDING hægindastóll með skammel Stillanlegur hægindastóll með skemli. Svart, rautt eða grátt leður/PVC. Stillanlegur hægindastóll með skemli. Ljósgrátt eða dökkgrátt áklæði. Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr. CANNES hægindastóll með skammel Vandaður, glæsilegur og þægilegur hægindastóll með þykku leðri á slitflötum á sterkum snúnings fæti. Koníaksbrúnt, svart, grátt eða rautt leður. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Ve rð o g vö ru up pl ýs in ga r í a ug lý si ng un ni e ru b ir ta r m eð f yr ir va ra u m p re nt vi llu r. 52 Lífið 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.