Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 18
Ég var spenntur,
hræddur, stressaður,
alls konar
Ég vil að
íslensku
ræturnar
mínar séu
hluti af
öllu sem ég
geri.
18 Íþróttir 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Hafnaboltakappinn Kristófer
Jonathan Bow varð í síðasta
mánuði fyrsti Íslendingurinn
til að vera valinn í nýliðavali
Major League Baseball (MLB)
vestanhafs. Ekki nóg með það,
Kristófer var valinn af stór
veldinu New York Yankees.
ÍÞRÓTTIR Kristófer Jonathan Bow
fæddist á Íslandi en f luttist til
Bandaríkjanna aðeins eins árs
gamall. Hann er alinn upp í Las
Vegas þar í landi. Faðir hans, Jona
than Bow, gerði garðinn frægan í
körfuknattleik hér á landi, þar sem
hann lék til að mynda með íslenska
landsliðinu. Þá lék hann með Hauk
um, Keflavík, KR og Val. Hann varð í
þrígang Íslandsmeistari. Móðir hans
er Ester Vigil Kristófersdóttir. Hún
fæddist hér á landi.
Hinn 21 árs gamli Kristófer
var valinn af Yankees í fjórtándu
umferð, val númer 430. „Það voru
alls konar tilfinningar í gangi hjá
mér á þessum degi. Þetta var á þriðja
degi nýliðavalsins og ég vissi að ég
fengi líklega ekki þann samning
sem ég vildi upphaflega hvað pen
ingaupphæðir varðar. Ég hafði því
smá áhyggjur. En að lokum fór ég til
Yankees,“ segir Kristófer, í samtali
við Fréttablaðið.
Átti erfitt val fyrir höndum
Það stóð Kristófer einnig til boða að
fara í eitt ár í háskólann í Arizona og
leika þar, ásamt því að stunda sitt
fjórða ár í háskólanámi. Hann hafði
áður verið í SuðurNevada háskól
anum, hvaðan Yankeesliðið valdi
hann. Kastarinn efnilegi taldi það
besta kostinn að ganga strax til liðs
við félagslið.
„Ég hefði getað farið til Arizona.
Fólk sagði mér að þá gæti ég þénað
mun meira eftir nýliðavalið á næsta
ári. Mig langaði hins vegar að byrja
strax. Peningarnir eru eitthvað
sem kemur síðar meir. Mér fannst
mikilvægast af öllu að hefja ferilinn
minn.“
Það var þó ekki auðvelt að segja
nei við Arizona. Skólinn er þekktur
fyrir það að þróa leikmenn áfram og
gera þá betri. „Sá skóli er meira að
segja oft kallaður æfingavöllur MLB.
Þetta er mjög góður staður til að
vera á. Þetta hefði hins vegar verið
fjórða árið mitt í háskóla. Aldurinn
skiptir líka máli í nýliðavalinu. Eftir
að hafa tekið allt inn í myndina
ákvað ég að fara ekki þangað,“ segir
Kristófer.
„Ég var spenntur, hræddur, stress
aður, alls konar, en ég held að ég hafi
tekið rétta ákvörðun. Heilt yfir var
ég mjög glaður með að geta verið
með félagi eins og Yankees, sem
kann virkilega að þróa leikmenn
áfram.“
Jarðbundinn með skýr markmið
Kristófer undirstrikar mikilvægi
þess að finna félag sem gat þróað
hann áfram og gert hann að eins
góðum kastara og möguleiki væri á.
„Ég var að leita að stofnun sem
væri góð í að þróa leikmenn. Það eru
ekki mörg lið sem þróa kastara eins
og Yankees gera. Þau eru með mjög
skýra mynd um hvað þau vilja gera
með leikmenn. Það er vel skipulagt
og rútínerað, þetta er bara frábært
umhverfi. Mig langaði að fara í lið
sem myndi leiða mig í átt að árangri
í mörg ár, ekki bara nokkur.“
Þó Kristófer hafi verið valinn af
Yankees þýðir það þó alls ekki að
hann sé þar með kominn í aðalliðið.
Það getur tekið nokkur ár fyrir leik
mann að spila í MLB eftir að þeir eru
valdir. Kristófer er jarðbundinn og
mun bíða þolinmóður eftir tæki
færinu. Þangað til gerir hann það
sem í hans valdi stendur til að verða
enn betri.
Kastari stórveldis heldur í íslensku ræturnar
Kristófer þykir gríðarlega efnilegur kastari. MYND/COLLEGE OF SOUTHERN NEVADA
Helgi Fannar
Sigurðsson
helgifannar
@frettabladid.is
„Markmiðið mitt núna er að verða
besti hafnaboltaleikmaður og kast
ari sem ég get orðið. Mig langar að
einbeita mér að sjálfum mér, ekki
öðrum sem eru í svipaðri stöðu. Ég
hef talað við marga og fólk talar um
að margir leikmenn verði uppteknir
af því sem er í gangi annars staðar. Ef
það að einbeita mér að sjálfum mér
tekur mig lengra en einhvern annan,
er það allt í lagi. Þetta gæti tekið
nokkur ár, gæti tekið meira en það
eða minna, en ég reyni að hugsa ekki
of mikið um framtíðina og einbeita
mér að því sem er að gerast núna.“
Þessi misserin er Kristófer staddur
í Tampa á Flórída, þar sem hann
æfir og spilar með Florida Complex
League Yankees, sem er undir sama
hatti og New York Yankees. Þar
spilar hann á einu af lægra deildar
þrepinu í bandarískum hafnabolta,
sem undirbýr leikmenn fyrir stærra
svið.
„Ég stefni á að vera hérna í Tampa í
allavega ár í viðbót. Ég er á byrjunar
stigunum, en það er þar sem allir
byrja,“ segir Kristófer.
Þó Kristófer sé með báða fætur á
jörðinni er hann afar metnaðargjarn
og ætlar sér langt. „Ég hef alltaf haft
mikið keppnisskap og viljað verða
frábær í því sem ég tek mér fyrir
hendur. Ég vil aldrei gera neitt með
hálfum hug, ég fer alla leið.“
Sem fyrr segir var faðir Kristófers
öflugur körfuboltakappi. Það var
hins vegar aldrei sett pressa á hann
að feta í sömu fótspor. „Mamma og
pabbi vildu bara að ég gerði það sem
ég vildi. Mamma sagði mér alltaf að
vera sá sem ég er og ég er svo þakk
látur fyrir það, ég ætti að gera það
sem ég hef áhuga á og gerir mig
glaðan.
Ég hafði meiri áhuga á hafnabolta
og var betri í honum,“ segir Kristó
fer, sem spilaði þó körfubolta fram
á menntaskólaárin.
Þykir vænt um íslensku ræturnar
Kristófer er ekki eini Íslendingurinn
sem var valinn í nýliðavali MLB í ár.
Magnus Ellerts, sem á ættir að rekja
hingað til lands, var valinn af Cleve
land Guardians.
„Það væri frábært ef við gætum
vakið áhuga á hafnabolta í landinu
okkar. Það eru ekki margir sem búa
þar en ef einn og einn fær áhuga
væri frábært að eiga þátt í því,“ segir
Kristófer.
„Ég vil að íslensku ræturnar
mínar séu hluti af öllu sem ég geri.
Ég á fjölskylduvini þarna og amma
og afi bjuggu þarna.“
Það er orðið langt síðan Kristófer
heimsótti Ísland síðast. Hann er þó
stoltur af landinu sínu og hlakkar
til að hafa meiri tíma aflögu til að
heimsækja það.
„Ég fór síðast þegar ég var tólf ára.
Mig langar að fara aftur eins oft og
mögulegt verður þegar ég hef tíma.
Ég er mjög upptekinn núna en við
næsta tækifæri fer ég aftur og geri
hluti sem ég hef áhuga á þar. Ég er
mjög spenntur fyrir því að skoða
landið sem fullorðinn maður.“
Kristófer langar einnig að læra
meiri íslensku. „Ég tala hana ekki
og skil ekki mikið heldur, en ég væri
svo til í að læra hana,“ segir Kristófer
Jonathan Bow, hafnaboltakappi. n