Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 78
Það er þannig með
marga velli sem eru níu
holur að það er oft
horft til þess að stækka
þá, oftast upp í átján
holur. Klúbburinn vill
það en til þess þarf
hann að njóta stuðn-
ings hjá sínu sveitar-
félagi.
Ólafur Pálsson olafur@vf.is - Páll Ketilsson pket@vf.is
Golffréttir og umfjöllun alla daga
„Þrjár fyrstu nýju brautirnar
koma vel út og markmiðið
er að vinna þrjár til fjórar
brautir í einu og ef allt gengur
vel verðum við komin með
18 holu völl árið 2026,“ segir
Hlynur Geir Hjartarson,
framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Selfoss.
kylfingur.is
Edwin Roald, golfvallahönnuður,
hefur undanfarin misseri unnið
að hönnun og breytingum á Svarf-
hólsvelli á Selfossi, í kjölfar þess að
ákveðið var að nýr kafli á þjóðvegi
norður fyrir Selfoss muni fara yfir
hluta golfvallarsvæðisins. Hann
klippir af tvær eldri brautir og hefur
áhrif á þrjár. Golfklúbburinn gerði
samning við sveitarfélagið Árborg
um meira landrými á Svarf hóli
til að gera nýjar brautir og stækka
völlinn.
„Það er þannig með marga velli
sem eru níu holur að það er oft horft
til þess að stækka þá, oftast upp í
átján holur. Klúbburinn vill það en
til þess þarf hann að njóta stuðnings
hjá sínu sveitarfélagi eins og önnur
íþróttafélög með íþróttamannvirki.
Ekki síst í þessu tilfelli, því að klúbb-
urinn leggur áherslu á að þetta verði
ekki bara golfvöllur, heldur að nýr,
breyttur og stækkaður völlur verði
einnig fjölnota, alhliða útivistar-
svæði. Það hljómar kannski ein-
kennilega í eyrum margra því við
erum vön því að sjá þessar skýru
línur, golfvöll hér, útivist þarna, fót-
bolta þarna, hestamennsku hér. Það
eru til góð dæmi, aðallega á Norður-
löndunum og annars staðar á land-
inu, um vel heppnaða svona blöndu,
jafnvel með reiðgötum, stígum til
göngu, hjólreiða eða hlaups, fugla-
skoðun o.fl. Þetta viljum við gera,“
segir Edwin í viðtali við blaðið Dag-
skrána.
Við gerð nýrra brauta hefur verið
notaður jarðvegur úr húsgrunnum
og gatnagerð, m.a. úr nýja mið-
bænum á Selfossi. Hann hefur
einnig verið nýttur til landmótunar
sem verður hluti af golfvellinum
og útivistarsvæðinu, til fegrunar.
Framtíðarsýnin hjá golfklúbbnum
er stórglæsilegur golfvöllur og úti-
vistarsvæði.
„Ef stuðningur fæst, fjárhagslegur
og á aðra lund, frá sveitarfélaginu og
jafnvel fleirum, til að stækka völlinn
umfram þetta, þá sjáum við mögu-
leika á því að vinna í þriggja til
fjögurra brauta áföngum á tveggja
ára fresti þ.e.a.s. 2023 og 2025 og svo
yrðu í lokin væntanlega tvær holur
sem lifa eftir. Þær gætu þá verið
teknar í notkun 2027. Auðvitað eru
öll svona plön langt fram í tímann
dálitið viðkvæm, en þetta er hug-
myndin,“ segir Edwin.
Hlynur Geir segir að starfsemin í
sumar hafi gengið vel. Heimamenn
stundi íþróttina vel og þá hafi fjöl-
margir gestir komið og leikið Svarf-
hólsvöll. Almenn ánægja sé með
nýjar brautir og framtíðarsýnina
á svæðinu og framkvæmdir gangi
vel. „Í ljósi þess hvað framkvæmdir
ganga vel þá er stefnan að opna 14
holu völl ásamt par 3 holu velli árið
2024. Svo er markmið okkar í GOS
að völlurinn verði orðinn 18 holur,
grænn og fallegur, þegar ný brú
opnar 2026,“ sagði Hlynur Geir. n
Svarfhólsvöllur verður átján holur 2026
Ha r a ldu r Fr a n k l í n Mag nú s ,
atvinnukylfingur lék mjög vel á
ISPS Handa World International
mótinu á DP Evrópumótaröðinni
á N-Írlandi í síðustu viku. Haraldur
endaði jafn í 26. sæti og vann hann
sér inn rúmar 2 milljónir króna í
verðlaunafé fyrir árangurinn.
Mótið var á DP Evrópumóta-
röðinni en Haraldur er með þátt-
tökurétt á Áskorendamótaröðinni.
Nokkrir af efstu kylfingunum á
stigalistanum voru fjarverandi og
þá fá kylfingar á Áskorendamóta-
röðinni tækifæri til að spila í efstu
deild. „Það er virkilega gaman. Ég
vil vera á þessari mótaröð og tel mig
eiga fullt erindi þar og gott betur,“
sagði Haraldur Franklín.
Nú í vikunni eru Haraldur og félagi
hans, Guðmundur Ágúst Kristjáns-
son, við leik í Stokkhólmi í Svíþjóð á
Áskorendamótaröðinni. Nánar um
það má lesa á kylfingur.is. n
Haraldur Franklín
góður á N-Írlandi
Þeir voru aldeilis heitir kylfingarnir í
Íslandsmóti klúbba í 5. deild á Silfur-
nesvelli á Hornafirði um síðustu
helgi. Fjórir kylfingar fóru holu í
höggi, tveir og tveir í sitt hvorri við-
ureigninni. Þetta er afar sjaldgæft og
ekki vitað til að þetta hafi gerst áður
hér á landi.
Á fyrsta keppnisdegi fóru þeir
Heimir Þór Ásgeirsson, Golfklúbbn-
um Vestarr og Halldór Sævar í Golf-
klúbbi Hornafjarðar holu í höggi í
sama leiknum. Halldór náði drauma-
högginu á 5. holu og Heimir Þór svar-
aði með öðru á 11. holu. Þetta gerðist
í holukeppnisleik þeirra í 5. deildinni
á fyrsta keppnisdegi.
Ótrúlegt en satt þá gerðist það
aftur á lokadegi mótsins að kylfing-
ar fóru holu í höggi í sama leiknum.
Dalvíkingurinn Kristbjörn Arn-
grímsson smellti kúlunni beint
ofan í 2. braut í leik gegn Ásgeiri
Ragnarsyni frá Golfklúbbi Vestarr.
Ásgeir lét það ekkert á sig fá og
lokaði leik þeirra félaga á 8. braut
(17. holu) með því að setja boltann
í holu með tilþrifum. Ásgeir gull-
tryggði þar sigur Vestarr í mótinu.
Ásgeir er faðir Heimis Þórs sem fór
holu í höggi á fyrsta keppnisdegi.
Hreint magnað. n
Draumahögg á
Hornafirði
Ungir kylfingar landsins léku mjög
gott golf á Íslandsmóti unglinga í
golfi á Leirdalsvell og í Setbergi 4. -
7. ágúst. Perla Sól Sigurbrandsdóttir,
GR, nýkrýndur Íslandsmeistari
kvenna, aðeins 15 ára, tryggði sér
annan Íslandsmeistaratitilinn í
röð á tveimur vikum. Hún sigraði
örugglega í f lokki 15-16 ára.
Perla Sól lék á +6, 75-74-70. Karen
Lind Stefánsdóttir, GKG, varð önnur
+16 og besta vinkona Perlu, Helga
Signý Pálsdóttir, GR, varð þriðja.
Í f lokki 17-18 ára stúlkna sigraði
Berglind Erla Baldursdóttir, GM, á
+14. Sara Kristinsdóttir, GM, varð
önnur á +19 og þriðja varð Nína M.
Valtýsdóttir á +21.
Logi Sigurðsson úr Golf klúbbi
Suðurnesja varð Íslandsmeistari í
f lokki 19-21 árs drengja eftir spenn-
andi keppni. Logi lék á -1 og þurfti
að fá fugl á síðustu holunni til að
tryggja sigurinn, en hann leiddi
með höggi fyrir hana. Hjalti Hlíð-
berg Jónasson, GKG, varð annar
en hann sótti hart að Loga og lék
síðustu tólf holurnar á f jórum
undir pari. Spennan var mikil á
lokaholunni en þeir voru saman
í holli. Hjalti sló innáhöggið á 18.
holuna á undan Loga og setti innan
við tvo metra frá. Logi svaraði með
innáhöggi sem endaði fet frá stöng.
Hreint magnað. Þriðji varð Aron
Emil Gunnarsson, GKG, á +1.
Gunnlaugur Árni Sveinsson,
GKG, sigraði í f lokki 17-18 ára á sex
höggum undir pari. Glæsileg spila-
mennska, en hann vann með níu
högga mun. Annar varð Róbert Leó
Arnórsson, GKG, á +3. Í 3.-4. sæti
urðu þeir Jóhann F. Halldórsson, GR
og Jóhannes Sturluson á +12.
Í f lokki 15-16 ára sigraði Akur-
eyringurinn Skúli Gunnar Ágústs-
son en hann var einu höggi betri
en Valur Snær Guðmundsson sem
einnig er frá GA. Skúli lék á -1 og
Valur á pari. Þriðji varð Guðjón
Frans Halldórsson, GKG; á +2. n
Íslandsmeistari aðra vikuna í röð
Perla Sól er óstöðvandi á golfvellinum.
Þrjár nýju
brautirnar á
Svarfhólfsvelli
lofa góðu.
MYND/
KYLFINGUR.IS
Einherjarnir fjórir á Hornafirði.
Haraldur Franklín stendur sig vel.
46 Bílar 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐGOLF FRÉTTABLAÐIÐ 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR