Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 66
Elísabet Jóna Sólbergsdóttir var ekki há í loftinu þegar hún toppaði sitt fyrsta fjall, Búrfell við Hesteyri, en nú um helgina stefnir hún á að ljúka göngu sinni á 100 hæstu tinda landsins. Elísabet er Vestfirðingur, fædd í Bolungarvík upp úr miðri síðustu öld og lærði snemma að njóta sín í nátt­ úrunni. „Foreldrar mínir, Sólberg Jónsson heitinn og Lucie Einars son, byggðu sumarbústað í Leiru firði á sjöunda áratug síðustu aldar og þar dvöldum við í sumar­ fríum og við krakkarnir fórum í göngu með foreldrum okkar, klifr­ uðum sjálf og lékum okkur á árabát,“ segir Elísabet, aðspurð um áhugann á fjallaferðum. „Fyrsta eftirminnilega fjallið sem ég fór upp á var Búrfell upp af Hesteyri, sem ég gekk á með föður mínum þegar ég var sex ára. Fjöl­ skyldan var þá á Hesteyri á Reyr­ hóli hjá Sölva og Sigrúnu, síðustu ábúendunum þar. Á veturna fórum við á svigskíði með föður okkar bæði inn á Ísafjörð eftir að lyfta kom þangað og einnig í Bolungar­ vík, auk þess sem ég gekk mjög oft eftir skóla með skíðin á öxlunum upp í Traðarhyrnu fyrir ofan Bol­ ungarvík og skíðaði. Í dag myndi sú skíðun kallast fjallaskíðun,“ segir Elísabet, sem sjálf á fjögur börn og hafa þau öll bæði gengið og skíðað með móður sinni. Þriggja daga ganga í vaðstígvélum Útivistin heillaði strax og Elísa­ bet gerði allt til að komast í ferðir í Jökulfirði og á Hornstrandir. „Ég var fimmtán ára þegar ég komst í þriggja daga ferð með Sigga Viggó frænda mínum sem ég leit mjög upp til, enda hafði hann verið í Flug­ björgunarsveitinni á námsárunum fyrir sunnan. Ég hafði áður farið með honum á Drangajökul úr Leiru­ firði en í þetta sinn sigldum við í botn Hrafnfjarðar og fórum þaðan í Furufjörð og áfram yfir í Reykjar­ fjörð. Frá Reykjarfirði gengum við á Hrollaugsborg og áfram yfir Drangajökul í Leirufjörð,“ rifjar Elísabet upp, en ekki var búnaður­ inn á pari við það sem nú telst boð­ legt. „Ég var í slitnum vaðstígvélum og með þungan strigabakpoka sem eldri bróðir minn hafði fengið í fermingargjöf.“ Hún lýsir annarri ógleymanlegri ferð þegar hún gerðist sjálfboðaliði hjá Slysavarnafélagi Íslands. „Það átti að mála öll slysavarnaskýlin á Hornströndum og var varðskip til aðstoðar. Ég var svo heppin að ég fékk að mála skýlið í Barðsvíkinni sem var fjærst. Við máluðum skýlið um nóttina í dásemdarveðri og þar sem við fórum síðust í land og fyrst í skipið á bakaleiðinni var okkur boðið í sunnudagslærið í varðskip­ inu.“ Á þessum tíma var Elísabet farin að ganga yfir í Leirufjörð úr Unaðs­ dal í Ísafjarðardjúpi, sem er um 17 kílómetra leið og bauð ýmist frænku eða vinkonu að slást í för. „Ég átti hvorki áttavita né GPS­tæki, eingöngu vaðstígvél, en í minn­ ingunni fannst mér þessar göngur ekkert mál.“ Ef þú býrð alltaf við lúxus þá hættir þú að vissu leyti að njóta og þakka fyrir hvað við erum flest heppin. Við vorum í grenjandi rigningu fyrstu dagana og þar sem við maður- inn minn áttum ekki svefnpoka var notast við sæng og ég var í gamalli léreftsúlpu af ömmu minni. Elísabet ásamt Guðjóni manni sínum og dóttur þeirra Aðalheiði á Trölladyngju. MYND/AÐSEND Hundraðshöfðingi eftir helgina Henson-gallinn þvílík bylting Elísabet gerði smáhlé á fjallgöngum meðan á háskólanámi í lyfjafræði stóð, en á námsárunum í Kaup­ mannahöfn fjárfesti hún í göngu­ búnaði frekar en húsgögnum, eins og margir gerðu á þeim tíma. Eftir heimkomuna fór hún í fimm daga Hornstrandaferð með Guðjóni, manni sínum, bræðrum og mág­ konu. „Við vorum í grenjandi rigningu fyrstu dagana og þar sem við Guð­ jón áttum ekki svefnpoka var notast við sæng og ég var í gamalli lérefts­ úlpu af ömmu minni. Þetta blotnaði í upphafi ferðar og þornaði ekki fyrr en sólin lét sjá sig á Bjarnarnesi. Vos­ búðin var það mikil að augun sukku og var það í fyrsta og eina skiptið í öllum mínum ferðum,“ segir Elísa­ bet og bætir við í léttum tón: „Þvílík bylting þegar ég eignaðist Henson­ trimmgalla úr gerviefni.“ Eins og fyrr segir byrjaði Elísabet að ganga með föður sínum en síðar gengu þau hjónin mikið saman og snemma fóru börnin að koma með. „Börnin byrjuðu að ganga með mér nokkurra ára gömul, til að mynda fór elsta dóttir mín með mér á Drangajökul fimm ára og tví­ burarnir urðu sjö ára í Laugavegs­ göngu.“ Hún segir það hafa verið mikið gæfuspor að byrja að hlaupa með Trimmklúbbi Seltjarnarness eftir að hún eignaðist börnin. „Þar hef ég eignast marga skemmtilega hlaupa­ og göngufélaga. Í sérgöngur mínar í gegnum árin hef ég farið með vinnufélögum mínum Elínu og Halla og höfum við farið á ótal tinda og jöklaferðir í 20 ár.“ Hún hefur einnig nýtt sér göngur Ferðafélags Íslands og tekið þátt í bæði Landvættum og Landkönn­ uðum. „Ég elska að gera sitt lítið af hverju og skoða náttúruna frá mis­ munandi sjónarhóli,“ segir Elísabet og bætir við: „Síðustu ár hef ég líka verið í gönguskíðagengi Einars Torfa Finnssonar og þveraði meðal annars Grænland síðastliðið vor.“ Hundrað hæstu tindarnir Elísabet segist elska fjallgöngur, allt­ af hlakka til ferðanna og njóta und­ irbúningsins. „Þó ég sé að fara aftur og aftur á sama svæðið eða tindinn þá er ferðin aldrei eins, litbrigðin og víddirnar eru síbreytilegar sem og félagsskapurinn. Ég veit ekkert betra en þegar ég er búin að vera í göngu­ tjaldinu mínu, borða þurrmat, allt skorið við nögl ef ég er með allt á bakinu að koma til byggða, borða góðan mat og sofa í rúmi. Ef þú býrð Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Ef Elísabet toppar Gígtind í Eyjafjallajökli á morgun hefur hún gengið alla hundrað hæstu tinda landsins og fær þá nafnbótina Hundraðshöfðingi. Fréttablaðið/Ernir alltaf við lúxus þá hættir þú að vissu leyti að njóta og þakka fyrir hvað við erum flest heppin.“ Á 90 ára afmælisári Ferðafélags Íslands árið 2017 var ýtt úr vör verk­ efni sem ljúka mun þegar félagið verður 100 ára. Verkefnið snýst um ferðir á 100 hæstu tinda Íslands og er sprottið af verkefni Þorvaldar Þórssonar sem ákvað árið 2007 að kortleggja 100 hæstu tindana. Allir geta tekið þátt í ferðunum og býður Ferðafélagið upp á vottun um að fólk hafi klárað verkefnið og fá þeir sem því ljúka nafnbótina Hundraðs­ höfðingi. „Verkefnið var samþykkt síðasta ár mitt í stjórn Ferðafélagsins og mér fannst það mjög spennandi. Ég var spurð hvort ég ætlaði að taka þátt og ég hélt það nú. Að vísu var ég búin að fara á öll landsvæðin áður og hélt að ég væri búin með miklu fleiri tinda en raunin varð.“ Elísabet byrjaði á að skrá sig í ferðir á vegum Ferðafélagsins en miðaði hægt áfram. „Ég sá um mitt sumar árið 2019 að ef ég ætti að vera búin að ná tindunum fyrir 100 ára afmæli FÍ, en ekki mitt, þá þyrfti ég að fara að einblína sjálf á tindana sem mig vantaði. Ég byrjaði það sumar að nýta gott veður og fara á tind eða tinda í hvert sinn sem eitt af börnum mínum kom til landsins og bjóða þeim í hálendisferð og var maðurinn minn einnig oft með í för. Vatnajökull verðugt verkefni Árið 2020 skipulagði ég svo nokkrar ferðir með vinnufélaga mínum og ég kláraði það sumar alla tinda utan jökla. Árið 2021 fékk ég svo Leif Örn Svavarsson í lið með mér til að klára Vatnajökul og Bjarni bróðir minn og fleiri komu með mér í ferðirnar.“ Um 40 tindar eru á Vatnajökli og getur verið bæði snúið að nálgast svæðin á bíl og fá ásættanlegt veður á sama tíma og jökullinn er ekki of sprunginn. „Við Leifur enduðum með að fara í átta ferðir á Vatnajökul sum­ arið 2021, ein ferðin var þverun frá Breiðamerkurjökli yfir í Kverkfjöll. Náðum við öllum tindunum nema Bárðarbungu sem við toppuðum svo þann 6. ágúst síðastliðinn á gönguskíðum í nýföllnum snjó.“ Elísabet hefur nú náð 99 hæstu tindum landsins og viðurkennir að stundum hafi það reynst f lókið að púsla saman vinnu og fjallgöngum sem ná þurfi í þokkalegu skyggni. „Hraðinn er oft mikill bæði við undirbúning og að koma sér af stað beint eftir vinnu.“ Á morgun, sunnu­ dag, stefnir Elísabet á hundraðasta tindinn, Gígtind í Eyjafjallajökli. „Ég hef farið nokkrum sinnum á Hámund sem er hæsti tindur jökuls­ ins. Eftir Eyjafjallagosið myndaðist gígur og er Gígtindur hæsti punktur gígbarmsins,“ segir þessi tilvonandi Hundraðshöfðingi að lokum. n 34 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.