Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Síða 6
6 – Sjómannablaðið Víkingur
Þegar við komum að honum gat á að
líta: Báðir björgunarbátarnir horfnir,
davíðurnar (bátsuglurnar) eins og snúið
roð í hund og skorsteinninn saman
klesstur til hálfs.
Við lónuðum hjá Úranusi í klukku-
stund eða svo en á meðan snarlygndi.
Þegar þeir á Úranusi töldu sig ekki þurfa
aðstoð héldum við áfram á fullri ferð í
hægum vindi en talsvert miklum sjó og
svona gekk það til niður að Helgolandi,
mikill sjór en hægur vindur.
Neyðarástand
Þegar við komum inn fyrir Helgoland
fáum við heldur betur fréttir. Hafnsögu-
skipið út af Elbu horfið og allar baujur
slitnar upp og engan hafnsögumann að
hafa. Þegar ég kom nær sá ég að það
braut á grynningunum báðum megin við
álinn svo það var enginn vanti að þræða
álinn upp til Cuxhaven.
Þegar til Cuxhaven kom fengum við
eftirtaldar fréttir: Fjöldi skipa lenti í
erfiðleikum, sjór gekk víða hátt á land
og braut flóðgarða bæði í Hollandi og á
Jótlandi. Neyðarástand var í Hamborg
og Cuxhaven þar sem sjór hækkaði um
3,5 metra. Talið var að 600 manns hefði
verið bjargað úr Sikenwerdergötu í Ham-
borg.
Meðal margra skipa sem þurftu aðstoð
var Júní frá Hafnarfirði með bilað stýri.
Víða urðu mannskaðar. Þar á meðal
fórust fimm manns í Bretlandi. Mér er
minnisstætt að við fengum íslensku
bannvöruna (bjórinn) í pokum því allir
kassar fóru í mauk í flóðinu.
Greinarhöfundur í Þýskalandi 1963.
Vagnhöfða 10 · 110 Reykjavík · Símar: 567 3175 & 897 5745 · Fax: 587 1226 · frysti@islandia.is
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra
bestu jóla- og nýárskveðjur
Hetjan
„Misjöfn verða morgunverkin. Ég hef
spunnið tólf álna garn, en þú hefur vegið
Kjartan.“
Guðrún Ósvífursdóttir við Bolla Þorleiks-
son þegar hann sagði henni víg Kjartans
Ólafsson.
*
„Smásaxast á limina hans Björns míns.“
Þórdís Ólafsdóttir, eiginkona Axlar-Björns,
þegar hún fylgdist með aftöku eiginmanns
síns árið 1596 og sá hann brotinn á útlimum,
afhöfðaðan og líkið hlutað í sundur og stykk-
in sett á stangir.
*
„Ég er nefnilega veik fyrir ekta karlmönnum.
En það er eins og þeir séu bara til í bíómynd-
um. Sennilega er það þess vegna sem ég er
ógift.“
Kolbrún Bergþórsdóttir Menningarvaktin í
Degi 29. desember 1998
*
„Væri hann vettlingur og hefði ég prjónað
hann rekti ég hann upp.“
Guðrún Gísladóttir á Hæli í Hreppum um
unnusta stúlku nokkurrar sem hún þekkti og
var ekki sama um.
Hvað um hjónabandið?
„Karlmenn sem hafa látið setja göt í eyrun á
sér eru frekar reiðubúnir undir hjónaband;
þeir þekkja sársauka og hafa keypt skartgrip.“
Rita Rudner
*
Ég á ennþá eftir að heyra karlmann biðja
um ráð til að aðlaga hjónaband og starfs-
frama.
Gloria Steinem
*
„Því eldri sem maður verður, því betur sér
maður hvílík list það er að búa í hjónabandi.
Maður verður að gefa, fórna, aðlagast, taka
tillit til, lesa hugsanir, sætta sig við að skilja
reiprennandi nótt og dag að maður á að sætta
sig við meira, aðlagast betur og fyrirgefa oftar
en karlmaðurinn.“
Auður Haralds í Hvunndagshetjunni.
*
„Það er kunnara en frá þurfi að segja, að pip-
arsvein í góðum efnum hlýtur að vanta eigin-
konu.“
Jane Austin, 1775-1817, enskur rithöfund-
ur. Úr bókinni Hroki og hleypidómar.
*
„Það er ekki óttinn
við að verða bund-
inn einni konu sem
skelfir karlmanninn
þegar hann hugsar
til hjónabands,
heldur aðskilnað-
urinn við allar hin-
ar.“
Helen Rowland,
1875-1950, banda-
rísk blaðakona.
Beckham er greinilega
gott eiginmannsefni,
myndi Rita Rudner segja.
Konur um karla