Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Qupperneq 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur
Í framhaldi af grein minni í 3. tbl. Vík-
ingsins 2011 um tilurð línurennunn-
ar og vangaveltna um skýran uppruna
hennar aflaði ég mér upplýsinga bæði
frá Noregi og Færeyjum um þetta mál.
Í öðru bindi bókarinnar ,,Folk ved
havet“ eftir Bjarne Rabben er fjallað um
upphaf línurennunnar í Noregi. Þar kem-
ur meðal annars fram að upp úr 1920
hafi Karl S. Ristesund frá Kvamsøy hann-
að og framleitt eina rennu sem hann
reyndi án þess að framhald yrði á. Renn-
an virðist því ekki hafa náð til sjómanna
né útgerðarmanna.
Það sem næst gerist er að Johan
Remmen, skipstjóri á d/s ,,Svalbard“ er á
þorskveiðum við Íslands 1923 en með
honum um borð var meðal annarra
Andreas P. Fjøtoft sem stundað hafði
fiskveiðar við Ameríku á skipi þar sem
notuð var línurenna. Á grundvelli þekk-
ingar Andreas var sett saman línurenna
um borð sem notuð var við veiðarnar en
það er skoðun Johann Remmen að hér
hafi verið um að ræða fyrstu línu-
rennuna í Noregi.
Sverre Farstad skipstjóri sem gerði út
frá Løvsøya hefur látið eftir sér hafa að
Andreas K. Kerstad er verið hafði á fiski-
skipi með línurennu sem gert var út í
Ameríku hafi verið heima í Noregi á ár-
inu 1925 og þá voru smíðaðar að hans
undirlagi líklega 3 línurennur sem voru
notaðar um borð í báti sem gerður var út
frá Løvsøya. Þær slógu ekki í gegn og
lágu ónotaðar allt fram á árið 1929 en þá
var ein þeirra tekin um borð í línu-
veiðarann Eljen og reyndist þokkalega á
veiðum skipsins við Bjarnarey. Það var
samt ekki fyrr en um vorið 1930 þegar
skipið veiddi við Ísland og farið var að
beita í bala að rennan sló í gegn segir í
nefndri bók.
Frá Færeyjum fékk ég þær upplýs-
ingar að í bókinni ,,Havið og vit“ sé haft
eftir Símun Hansen að færeyskir línu-
veiðarar hafi tekið línurennuna í notkun
á árinu 1940.
Eftirfarandi eru helstu tímasetningar
varðandi þróun íslensku rennunnar:
• Hugmyndin að lagningsrennunni
kviknar hjá Kristni Kristjánssyni í
Leirhöfn á Melrakkasléttu haustið
1920.
• Árið eftir hefur Kristinn komið hug-
mynd sinni á blað og kannar hvort
hann geti fengið einkaleyfi á þessu
tæki en fær höfnun.
• Fyrsta lagningsrennan ásamt kransa-
setti er tilbúin á árinu 1923.
• Forseti Fiskifélags Íslands, Kristján
Bergsson skoðar rennu Kristins, vorið
1924.
• Forseti Fiskifélagi Íslands, Kristján
Bergsson pantar tvær rennur ásamt til-
heyrandi haustið 1925.
Séu tímasetningarnar bornar saman er
mjög langsótt að gera því skóna að hug-
mynd Kristins í Leirhöfn að rennunni
hafi komið frá Noregi þar sem hug-
myndin að rennunni kemur þar seinna
fram en hér á landi hjá honum.
Greinilegt er að hugmyndin að norsku
rennunni kemur frá Ameríku og berst til
Noregs með norskum sjómönnum sem
þaðan stunduðu sjó á þessum tíma. Ekk-
ert liggur fyrir um upphaf línurennur í
Ameríku það er hver átti hugmyndina að
henni og hvenær og hvar notkun hennar
hófst.
Fróðlegt væri að grafast fyrir um það
og fá botn í málið sem að auðsæjum
ástæðum verður að bíða betri tíma.
Umræðan um upphaf íslensku renn-
unnar hefur snúist um hvort hugmyndin
sé íslensk eða norsk. Af framan skráðu
er nokkuð ljóst, að minnsta kosti í mín-
um huga, að hugmyndin kemur hvorki
frá Færeyjum eða Noregi. Þá er eini
möguleikinn ef hún er ekki íslensk að
hún komi frá Ameríku sem auðvitað er
engin leið að útiloka þó líkurnar séu
vægast sagt afar litlar. Af hverju? Vegna
þess að í þeim gögnum sem áðurnefnd
grein grundvallaðist á er hvergi minnst á
þann möguleika en líklegt má teljast að
ef sá möguleiki hefði verið til staðar á ár-
inu 1920 þá hefði hans verið getið þar.
Í mínum huga er því enginn efi um að
hugmyndin að íslensku rennunni kemur
frá Kristni Kristjánssyni, vélsmið Leir-
höfn á Melrakkasléttu.
Helgi Laxdal
Uppruni línurennunnar
Línurenna Kristins jók ekki aðeins afla bátaflotans heldur var einnig mikið öryggi af henni frá því sem verið
hafði þegar línan varð að fara um hendur manna á leið í sjóinn. Myndin er frá Húsavíkurhöfn um eða upp
úr 1970. Trillur og stærri dekkbátar liggja við bryggju. Moskóvitsbíll frá Sovétríkjunum bíður eiganda síns.
Línurenna Kristins í Nýhöfn. Kransasettið er beint
undir rennunni.